Linn Maria skrifaði:
Hei😄 Jeg har akkurat strikket denne genseren, og den ble kjempefin. Nå gjenstår bare å sy på ermene, men jeg er usikker på hvordan jeg skal gjøre det slik at det blir penenst mulig. Skal jeg sy på retten eller på vrangen?
07.01.2015 - 16:45DROPS Design svaraði:
Hei Linn. Der er flere maader at sy sammen paa, det er at tage den som du ogsaa selv synes giver det bedste resultat. Men hvad med den her:
08.01.2015 - 15:46
Maja skrifaði:
Emilia spørger, om M2 ikke skal forskydes, når man har 56 masker på forstykket. Da 56 ikke er deleligt med 12, har man 8 masker til overs. Derfor er man nødt til at forskyde mønsteret og strikke således: Start med de 2 sidste rækker i M2, strik 4 hele M2 og slut med de 6 første rækker i M2. På denne måde passer mønstret bedre, om man får et rosa kryds midt for i stedet for en smule forskudt. Håber dette giver mening.
25.02.2014 - 22:07
Maggi skrifaði:
Hej! Jättefint mönster men vad betyden en MARKÖR? Mvh Maggi
05.01.2014 - 15:19DROPS Design svaraði:
Hej Maggi. Det er det samme som en märktraad, se her:
06.01.2014 - 12:38
Erika skrifaði:
Så aöt baby tröja denna ska jag göra :) lägger till i favoriterna men mina favoriter har blivit full igen :p så jag får köra på makens konto haha så jag har 20 fav på 6 mailkonton..
02.09.2013 - 08:37Kristin skrifaði:
The pattern is very cute. I am knitting size 2 years. I started on one sleeve. It seems a bit strange to knit 3 cm, after the rib, without M1 or increasing? Am I misunderstanding the pattern? Best regards from Iceland. Kristin
19.07.2012 - 11:27DROPS Design svaraði:
Dear Kristin, diagram starts from 7 cm (4 cm rib + 3 cm stocking) in size 2 years, and increases are every 4 cm, so that the first start after the first 4 cm. Happy Knitting !
04.12.2012 - 15:57
Emilia skrifaði:
Tack för hjälpen! Jag har dock en fråga till: på framstycket står det: "Sedan maskas det av så här på följande v från halsen: Maska av 1 m 2-3-3 (3-3) ggr = 13-15-17 (20-22) m kvar på axeln." Vad betyder "följande varv"? Är det varvet efter halsavmaskningen?
12.05.2012 - 21:12
Emilia skrifaði:
Jag förstår inte mönstret! När jag stickar varv 4 på M2 och maskar av för ärmarna ska det bli kvar 56 m till framstycket och 56 m till bakstycket. Men änså ska jag fortsätta sticka M2 på fram-och bakstycket trots att M2 är 12 m brett och 56 inte är delbart med 12?? Ska jag anpassa M2 och bara sticka de delar som passar för de kvarvarande 56 m eller är det något annat jag missar?
10.05.2012 - 19:43DROPS Design svaraði:
Du ska fortsätta med M.2 över de maskor som är kvar precis på samma ställe i M.2 som de var tidigare. M.2 ska alltså inte förskjutas, utan mönstret ska fortfarande passa med zic-zac och annat uppöver.
11.05.2012 - 00:05
Gunvor B skrifaði:
Helt underbar babytröja. Mycket fint mönster.
07.03.2012 - 15:06
Rubin#rubinsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 21-18 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEINING ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-120-132 (144-156) lykkjur með litnum rauður á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* í 3-3-3 (4-4) cm. Skiptið síðan yfir á hringprjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 4-6-4 (6-6) cm, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 54-60-66 (72-78) lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með stykkinu upp úr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú M.1 alls 2-2-3 (3-4) sinnum á hæðina. Prjónið síðan umferð 1-6 í M.1 1-1-1 (1-0) sinnum og umferð 1-3 í M.2 (stykkið mælist ca 17-19-21 (23-25) cm). Í næstu umferð (= umferð 4 í M.2) eru felldar af 10 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), nú skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-50-56 (62-68) lykkjur. Héðan er nú mælt. Næsta umferð (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón (= kantlykkja), prjónið 5. umferð í M.2 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með M.2 með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm (ATH: Haldið áfram í sléttprjóni með litnum kirsuber á eftir síðustu umferð í M.2 til loka). Fellið af miðju 16-18-20 (20-22) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 13-15-17 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm fellið af allar lykkjur (bakstykki mælist ca 26-29-32 (35-38) cm á lengdina). FRAMSTYKKI: = 44-50-56 (62-68) lykkjur. Héðan er nú mælt. Prjónið síðan M.2 með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-6-7 (7-8) cm fellið af miðju 14-14-16 (16-18) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið síðan af í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2-3-3 (3-3) sinnum = 13-15-17 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm fellið af allar lykkjur. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 28-30-32 (34-36) lykkjur með litnum rauður á sokkaprjón 4. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* í 3-3-3 (4-4) cm. Skiptið síðan yfir í sokkaprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð slétt jafnframt því sem aukið er út um 2-0-4 (2-0) lykkjur jafnt yfir í umferð = 30-30-36 (36-36) lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 4-4-6 (7-6) cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með stykkinu áfram upp úr. Prjónið síðan M.1 upp úr. Þegar stykkið mælist 5-5-7 (8-7) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING að ofan = 2 nýjar lykkjur sem eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 8½-5-6½(4-3½) cm millibili alls 2-4-3 (5-7) sinnum = 34-38-42 (46-50) lykkjur. Prjónið M.1 alls 3-3-3 (4-5) sinnum á hæðina. Prjónið síðan umferð 1-6 í M.1 0-1-1 (0-0) sinnum og umferð 1-3 í M.2. Skiptið nú yfir á hringprjón 4,5 jafnframt því sem prjónuð er 4. umferð í M.2, nú skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er áfram fram og til baka. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki (= 1 kantlykkja í garðaprjóni), haldið áfram með M.2 á milli kantlykkja og upp til og með umferð 11 í M.2 (merkt með ör í teikningu). Nú eru allar lykkjur felldar af í næstu umferð með litnum kirsuber (stykkið mælist ca 22-24-26 (29-33) cm). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið ermar í. Prjónið upp meðfram kanti í hálsmáli ca 60-70 lykkjur með litnum rauður á sokkaprjón 4. Í næstu umferð er prjónað slétt jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-62-66 (70-74) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* í 3-3-3 (4-4) cm, fellið síðan af allar lykkjur með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Brjótið stroffið niður tvöfalt með sauminn inn og saumið niður á bakhlið. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rubinsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.