Pia Bengtsson skrifaði:
Jeg skal strikke ærme og har taget ud og så passer mønsteret ikke mere altså der kommer fire grå masker ved siden af hinanden. Hvad gør jeg?
14.08.2016 - 21:16DROPS Design svaraði:
Hej Pia. Ja, det kommer til at ske automatisk, men er ikke en fejl. Du strikker videre og tager ud som staar og strikker som mönstret er.
07.09.2016 - 14:36
Soulhié Marie France skrifaði:
Merci pour vos réponses ultra-rapides, je vais essayer !
15.04.2015 - 13:38
Soulhié Marie France skrifaði:
Excusez-moi encore mais comment sont réparties les 8 augmentations dont il est question pour l'encolure ? merci pour votre réponse
14.04.2015 - 19:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Soulhié, pour augmenter dans le col sur les bordures des devants, augmentez 1 m dans chacune des sections 2 m end des 34 m côté col, vous aurez ainsi des côtes 8 fois (3 m end/2 m env) vu sur l'endroit, en haut de la bordure (côté col) et toujours 2 m end/2 m env au-dessus des autres mailles. Bon tricot!
15.04.2015 - 08:45
SOULHIE Michel skrifaði:
Bonjour, je souhaiterais avoir des explications en ce qui concerne la bordure. Je ne comprends pas la partie des augmentations. Par exemple qu'entendez-vous par " chaque section endroit " ? Je vous remercie d'avance pour votre réponse. Marie-France
01.04.2015 - 14:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-France, la bordure se tricote d'abord en côtes 2 m end/2 m env - vous augmentez ensuite 1 m end dans chaque section 2 m end (vu sur l'endroit) et continuez ainsi en côtes 3 m end/2 m env, puis 4 m end/2 m env (vu sur l'end) dans les sections concernées. Bon tricot!
01.04.2015 - 16:45
Camilla Jonasson skrifaði:
Hej. När man börjar denna kofta ska man ju ha en rätstickad maska i varje sida. Ska man även ha det sen när man fortsätter med bakstycket för sig? Eller kör man med bara slätstickning då?
12.01.2015 - 10:33DROPS Design svaraði:
Hej Camilla, nej på bakstycket behöver du inte ha en rätstickad maska, här fortsätter du mönstret. Lycka till!
02.02.2015 - 15:58
Karin Overeem skrifaði:
Jag undrar om hela koftat ska rätstickas? Tycker det på bilden ser ut som slätstickning från resåren och uppåt. Tack på förhand!
28.10.2014 - 17:06DROPS Design svaraði:
Hej Karin, Nej det skall slätstickas. Lycka till!
29.10.2014 - 15:20
Tina skrifaði:
Vielen Dank :)
15.03.2014 - 08:55
Tina skrifaði:
Ist es möglich, an diese Jacke eine Kapuze zu stricken?
12.03.2014 - 18:33DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, wegen des Schalkragens eigenet sich dieses Modell weniger für eine Kapuze. Unser Tipp: suchen Sie sich ein anderes Muster mit Kapuze und stricken Sie das sogenannen Pippi-Muster (von Pippi Langstrumpf), wenn Ihnen dies gefällt. Die evtl Anpassung an das Muster ist einfacher als den Schnitt zu ändern. Dort hilft Ihnen sicher der Laden weiter, bei dem Sie die Wolle kaufen.
14.03.2014 - 12:53
Anneli skrifaði:
Gör inte samma misstag som jag. När du ska bestämma vilken storlek du ska sticka, så står bystvidden uppe vid axlarna! Gå inte efter måttet längst ner. Jag har nyss börjat om, för min blev för liten... Verkar annars vara en trevlig kofta! Jag stickar den i Nepal, och det verkar bli mysigt.
21.12.2012 - 14:25
Ulrika skrifaði:
Alldeles underbar!!
28.06.2011 - 10:12
Catherine#catherinejacket |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa með sjalkraga og röndum úr DROPS Alaska. Stærð S - XXXL.
DROPS 135-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað er fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikninguM.1 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-172-184-200-216-236 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós grár DROPS Alaska. Í umf 1 (= rétta) er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl, 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm er fækkað um 12-12-12-16-16-16 l jafnt yfir í stroffi í næstu umf frá röngu = 148-160-172-184-200-220 l. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið M.1 þar til 3 l eru eftir, endið með fyrstu 2 l í M.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið M.1 1 sinni á hæðina, prjónið nú fyrstu 6 umf í M.1. Setjið nú tvö prjónamerki í stykkið 32-35-38-40-43-48 l (= framstykki) inn frá hvorri hlið (bakstykki = 84-90-96-104-114-124 l). Látið prjónamerki fylgja með uppúr. Í næstu umf (= 7. umf í M.1) er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – Lesið ÚRTAKA að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 12. hverri umf (þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis í 7. og 19 . umf í M.1 = sléttprjón með litnum ljós grár) alls 4 sinnum = 132-144-156-168-184-204 l. Þegar stykkið mælist 55-56-57-58-59-60 cm skiptist stykkið við prjónamerki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 76-82-88-96-106-116 l. Haldið áfram með M.1 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Í næstu umf eru felldar af miðju 16-16-16-20-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 28-31-34-36-39-44 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 28-31-34-36-39-44 l. Haldið áfram með M.1 þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-36-40-40-44-48 l með litnum ljós grár DROPS Alaska á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 6-6-6-7-7-7 cm, skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið áfram í M.1. Setjið prjónamerki í byrjun umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Stærð S, M, L: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan – í umf 5 í M.1 (= sléttprjón með litnum ljós grár) = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu í 12. hverri umf (þ.e.a.s. aukið út til skiptis í 5. og 17. umf í M.1 = sléttprjón með litnum ljós grár) alls 4 sinnum (= aukið út um 2 l alls 8 sinnum) = 48-52-56 l. Stærð XL, XXL, XXXL: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan – í umf 5 í M.1 = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu í 12. hverri umf (þ.e.a.s. aukið út til skiptis í 5. og 17 umf í M.1 = sléttprjón með litnum ljós grár) alls 2 sinnum (= aukið út um 2 l alls 4 sinnum) = 48-52-56 l. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í 5., 11., 17. og 23 umf í M.1 (= aukið út um 2 l alls 4 sinnum) = 56-60-64 l. Allar stærðir: Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-49-49-47-45-43 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið nú fram og til baka – jafnframt eru felldar af 5-5-6-6-6-7 l fyrir handveg í byrjun á næstu 4 umf. Í byrjun á næstu 2 umf fellið af 6-7-7-7-8-7 l = 16-18-18-18-20-22 l eftir. Nú mælist stykkið ca 53-52-52-50-48-46 cm. Fellið laust af allar l. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið ermar í, yst í lykkjubogann. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið við miðju að aftan við hnakka, prjónið upp frá réttu ca 140-180 l innan við 1 kantlykkju kringum hálsmál og meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós grár. Í næstu umf (= ranga) er lykkjufjöldinn jafnaður út til 146-150-158-166-174-178 l (deilanlegt með 4 + 2) jafnframt sem prjónað er brugðið. Prjónið stroff í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm. Setjið prjónamerki frá réttu eftir fyrstu 34-34-38-38-42-42 l á prjóna. Aukið nú út um 1 l í hverja sléttu einingu (séð frá réttu) yfir þær 34-34-38-38-42-42 l = 8-8-9-9-10-10 nýjar l við hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn að framan mælist 10-10-10-11-11-11 cm = 162-166-176-184-194-198 l. Þegar kanturinn mælist 11-11-11-12-12-12 cm er fellt af allar l með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp meðfram hægra framstykki frá neðri kanti upp við miðju aftan við hnakka. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu og jafnið lykkjufjöldann út eins og á vinstri kanti. Umferð 1 í stroffi er prjónuð frá réttu þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 1 kantlykkju við miðju aftan við hnakka. Prjónið og aukið út við hnakka á sama hátt og á vinstri kanti. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan saman við miðju að aftan við hnakka innan við 1 kantlykkju. BELTI: Fitjið upp 15 l á prjóna nr 4,5 og prjónið stroff þannig: Prjónið 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 150-160-170-180-190-200 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #catherinejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.