Marja-Liisa Tuomi skrifaði:
Hei! Kysyisin, mitä tarkoittaa seuraavan kohdan alku eli yksi silmukka? Mikä sen tarkoitus on ja mihin se on tarkoitus virkata? NAPINLÄPISILMU: Virkkaa n. 22-23-24-25-26-27 cm:n pituinen silmukka oikean etureunan alareunaan.
11.12.2012 - 13:28DROPS Design svaraði:
Tämä on napinläpisilmu, eli nappi kiinnitetään tähän virkattuun silmukkaan.
11.12.2012 - 14:14
Di skrifaði:
Salve, Sto lavorando questo maglione e avendo iniziato da poco le maniche, volevo chiedervi delucidazioni su questa parte della descrizione: "Allo stesso tempo intrecciare per il giro manica (...)". Non capisco cosa voglia dire "intrecciare per il giro manica". Sono una knitter alle prime armi e molte delle terminologie e delle tecniche sono ancora a me sconosciute. Vi ringrazio in anticipo, Di.
02.05.2012 - 16:17DROPS Design svaraði:
Scusa per la risposta in ritardo.. Il giro manica è l'arrotondamento della manica in alto, cioè, dove la manica viene attaccata alla giacca. Da una forma migliore alla manica.
18.05.2012 - 14:43
Cantin skrifaði:
J'ai une préférence pour la version homme
05.09.2011 - 11:31
Cedric#cedricjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með sjalkraga og röndum úr DROPS Alaska. Stærð S - XXXL.
DROPS 135-21 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað er fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-156-168-184-200-220 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós grár DROPS Alaska. Í umf 1 (= rétta) er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl, 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm er fækkað um 12-12-12-16-16-16 l jafnt yfir í stroffi í næstu umf frá röngu = 132-144-156-168-184-204 l. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5. Í næstu umf (= rétta) er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið M.1 þar til 3 l eru eftir, endið með fyrstu 2 l í M.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm, setjið nú tvö prjónamerki í stykkið 28-31-34-36-39-44 l (= framstykki) inn frá hvorri hlið (bakstykki = 76-82-88-96-106-116 l). Nú skiptist stykkið upp við prjónamerki og hvert stykki er prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 76-82-88-96-106-116 l. Haldið áfram með mynsturteikningu M.1 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Í næstu umf eru felldar af miðju 16-16-16-20-24-24 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 28-31-34-36-39-44 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 28-31-34-36-39-44 l. Haldið áfram með mynsturteikningu M.1 þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-40-40-44-48-52 l með litnum ljós grár DROPS Alaska á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 7 cm, skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið áfram í M.1. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan = 2 nýjar l í umf. Endurtakið útaukningu með 5-5-5-4½-4½-4 cm millibili alls 10 sinnum í öllum stærðum = 56-60-60-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 58-57-56-55-53-51 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið nú fram og til baka – jafnframt er fellt af fyrir handveg (með byrjun í næstu umf frá réttu) þannig: Fellið af 6-6-6-7-8-8 l í byrjun á næstu 6 umf. Fellið af þær sem eftir eru 20-24-24-22-20-24 l í næstu umf frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið ermar í, yst í lykkjubogann í síðustu l. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið við miðju að aftan við hnakka, prjónið upp frá réttu ca 140-180 l innan við 1 kantlykkju kringum hálsmál og meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós grár DROPS Alaska. Í næstu umf (= ranga) er lykkjufjöldinn jafnaður út til 146-150-158-166-174-178 l (deilanlegt með 4 + 2) jafnframt er prjónað brugðið. Prjónið stroff í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm. Setjið prjónamerki frá réttu eftir fyrstu 34-34-38-38-42-42 l á prjóna. Aukið nú út um 1 l í hverri sléttri einingu (séð frá réttu) yfir þær 34-34-38-38-42-42 l = 8-8-9-9-10-10 nýjar l við hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kantur að framan mælist 11-11-11-12-12-12 cm = 162-166-176-184-194-198 l. Þegar kanturinn mælist 12-12-12-13-13-13 cm er fellt af allar l með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp meðfram hægra framstykki frá neðri kanti upp við miðju aftan við hnakka. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu og jafnið lykkjufjöldann út eins og á vinstri kanti. Umferð 1 í stroffi er prjónuð frá réttu þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 1 kantlykkju við miðju aftan við hnakka. Prjónið og aukið út við hnakka á sama hátt og á vinstri kanti. FRÁGANGUR: Saumið kant að framan saman við miðju að aftan við hnakka innan við 1 kantlykkju. LYKKJA: Heklið nú eina lykkju ca 22-23-24-25-26-27 cm frá neðri brún í hægri kanti. Heklið með litnum ljós grár DROPS Alaska með heklunál nr 4,5 þannig: Stingið nálinni í gegnum kant að framan ca 1 cm frá kanti, dragið þráðinn í gegn. Heklið nú ll í ca 6 cm, dragið þráðinn í gegnum síðustu ll og festið þráðinn á bakhlið. Heklið aðra lykkju ca 12 cm yfir fyrri lykkjuna á sama hátt. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cedricjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.