DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 135-22
DROPS Design: Mynstur nr X-366
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
700-750-850-950-1000-1100 gr litur nr 03, ljós grár
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 53, dökk bleikur
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 57, gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með Alaska verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5 (80 cm) – fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – fyrir stroff á ermi.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 – fyrir ermi.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað er fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikninguM.1 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-172-184-200-216-236 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós grár DROPS Alaska. Í umf 1 (= rétta) er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl, 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm er fækkað um 12-12-12-16-16-16 l jafnt yfir í stroffi í næstu umf frá röngu = 148-160-172-184-200-220 l. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið M.1 þar til 3 l eru eftir, endið með fyrstu 2 l í M.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið M.1 1 sinni á hæðina, prjónið nú fyrstu 6 umf í M.1. Setjið nú tvö prjónamerki í stykkið 32-35-38-40-43-48 l (= framstykki) inn frá hvorri hlið (bakstykki = 84-90-96-104-114-124 l). Látið prjónamerki fylgja með uppúr. Í næstu umf (= 7. umf í M.1) er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – Lesið ÚRTAKA að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 12. hverri umf (þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis í 7. og 19 . umf í M.1 = sléttprjón með litnum ljós grár) alls 4 sinnum = 132-144-156-168-184-204 l.
Þegar stykkið mælist 55-56-57-58-59-60 cm skiptist stykkið við prjónamerki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 76-82-88-96-106-116 l. Haldið áfram með M.1 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Í næstu umf eru felldar af miðju 16-16-16-20-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 28-31-34-36-39-44 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 28-31-34-36-39-44 l. Haldið áfram með M.1 þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið laust af allar l.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 32-36-40-40-44-48 l með litnum ljós grár DROPS Alaska á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 6-6-6-7-7-7 cm, skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið áfram í M.1. Setjið prjónamerki í byrjun umf.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Stærð S, M, L:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan – í umf 5 í M.1 (= sléttprjón með litnum ljós grár) = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu í 12. hverri umf (þ.e.a.s. aukið út til skiptis í 5. og 17. umf í M.1 = sléttprjón með litnum ljós grár) alls 4 sinnum (= aukið út um 2 l alls 8 sinnum) = 48-52-56 l.
Stærð XL, XXL, XXXL:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan – í umf 5 í M.1 = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu í 12. hverri umf (þ.e.a.s. aukið út til skiptis í 5. og 17 umf í M.1 = sléttprjón með litnum ljós grár) alls 2 sinnum (= aukið út um 2 l alls 4 sinnum) = 48-52-56 l. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í 5., 11., 17. og 23 umf í M.1 (= aukið út um 2 l alls 4 sinnum) = 56-60-64 l.
Allar stærðir: Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-49-49-47-45-43 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið nú fram og til baka – jafnframt eru felldar af 5-5-6-6-6-7 l fyrir handveg í byrjun á næstu 4 umf. Í byrjun á næstu 2 umf fellið af 6-7-7-7-8-7 l = 16-18-18-18-20-22 l eftir. Nú mælist stykkið ca 53-52-52-50-48-46 cm. Fellið laust af allar l. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið ermar í, yst í lykkjubogann.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið við miðju að aftan við hnakka, prjónið upp frá réttu ca 140-180 l innan við 1 kantlykkju kringum hálsmál og meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós grár. Í næstu umf (= ranga) er lykkjufjöldinn jafnaður út til 146-150-158-166-174-178 l (deilanlegt með 4 + 2) jafnframt sem prjónað er brugðið. Prjónið stroff í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm. Setjið prjónamerki frá réttu eftir fyrstu 34-34-38-38-42-42 l á prjóna. Aukið nú út um 1 l í hverja sléttu einingu (séð frá réttu) yfir þær 34-34-38-38-42-42 l = 8-8-9-9-10-10 nýjar l við hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn að framan mælist 10-10-10-11-11-11 cm = 162-166-176-184-194-198 l. Þegar kanturinn mælist 11-11-11-12-12-12 cm er fellt af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp meðfram hægra framstykki frá neðri kanti upp við miðju aftan við hnakka. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu og jafnið lykkjufjöldann út eins og á vinstri kanti. Umferð 1 í stroffi er prjónuð frá réttu þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 1 kantlykkju við miðju aftan við hnakka. Prjónið og aukið út við hnakka á sama hátt og á vinstri kanti.

FRÁGANGUR:
Saumið kanta að framan saman við miðju að aftan við hnakka innan við 1 kantlykkju.

BELTI:
Fitjið upp 15 l á prjóna nr 4,5 og prjónið stroff þannig: Prjónið 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 150-160-170-180-190-200 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = litur ljós grár
symbols = litur dökk bleikur
symbols = litur gallabuxnablár
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Catherine

Asta, Lithuania

Catherine

Jolanta, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Pia Bengtsson wrote:

Jeg skal strikke ærme og har taget ud og så passer mønsteret ikke mere altså der kommer fire grå masker ved siden af hinanden. Hvad gør jeg?

14.08.2016 - 21:16

DROPS Design answered:

Hej Pia. Ja, det kommer til at ske automatisk, men er ikke en fejl. Du strikker videre og tager ud som staar og strikker som mönstret er.

07.09.2016 - 14:36

country flag Soulhié Marie France wrote:

Merci pour vos réponses ultra-rapides, je vais essayer !

15.04.2015 - 13:38

country flag Soulhié Marie France wrote:

Excusez-moi encore mais comment sont réparties les 8 augmentations dont il est question pour l'encolure ? merci pour votre réponse

14.04.2015 - 19:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Soulhié, pour augmenter dans le col sur les bordures des devants, augmentez 1 m dans chacune des sections 2 m end des 34 m côté col, vous aurez ainsi des côtes 8 fois (3 m end/2 m env) vu sur l'endroit, en haut de la bordure (côté col) et toujours 2 m end/2 m env au-dessus des autres mailles. Bon tricot!

15.04.2015 - 08:45

country flag SOULHIE Michel wrote:

Bonjour, je souhaiterais avoir des explications en ce qui concerne la bordure. Je ne comprends pas la partie des augmentations. Par exemple qu'entendez-vous par " chaque section endroit " ? Je vous remercie d'avance pour votre réponse. Marie-France

01.04.2015 - 14:44

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-France, la bordure se tricote d'abord en côtes 2 m end/2 m env - vous augmentez ensuite 1 m end dans chaque section 2 m end (vu sur l'endroit) et continuez ainsi en côtes 3 m end/2 m env, puis 4 m end/2 m env (vu sur l'end) dans les sections concernées. Bon tricot!

01.04.2015 - 16:45

country flag Camilla Jonasson wrote:

Hej. När man börjar denna kofta ska man ju ha en rätstickad maska i varje sida. Ska man även ha det sen när man fortsätter med bakstycket för sig? Eller kör man med bara slätstickning då?

12.01.2015 - 10:33

DROPS Design answered:

Hej Camilla, nej på bakstycket behöver du inte ha en rätstickad maska, här fortsätter du mönstret. Lycka till!

02.02.2015 - 15:58

country flag Karin Overeem wrote:

Jag undrar om hela koftat ska rätstickas? Tycker det på bilden ser ut som slätstickning från resåren och uppåt. Tack på förhand!

28.10.2014 - 17:06

DROPS Design answered:

Hej Karin, Nej det skall slätstickas. Lycka till!

29.10.2014 - 15:20

country flag Tina wrote:

Vielen Dank :)

15.03.2014 - 08:55

country flag Tina wrote:

Ist es möglich, an diese Jacke eine Kapuze zu stricken?

12.03.2014 - 18:33

DROPS Design answered:

Liebe Tina, wegen des Schalkragens eigenet sich dieses Modell weniger für eine Kapuze. Unser Tipp: suchen Sie sich ein anderes Muster mit Kapuze und stricken Sie das sogenannen Pippi-Muster (von Pippi Langstrumpf), wenn Ihnen dies gefällt. Die evtl Anpassung an das Muster ist einfacher als den Schnitt zu ändern. Dort hilft Ihnen sicher der Laden weiter, bei dem Sie die Wolle kaufen.

14.03.2014 - 12:53

country flag Anneli wrote:

Gör inte samma misstag som jag. När du ska bestämma vilken storlek du ska sticka, så står bystvidden uppe vid axlarna! Gå inte efter måttet längst ner. Jag har nyss börjat om, för min blev för liten... Verkar annars vara en trevlig kofta! Jag stickar den i Nepal, och det verkar bli mysigt.

21.12.2012 - 14:25

country flag Ulrika wrote:

Alldeles underbar!!

28.06.2011 - 10:12