Gerda Van Den Hof skrifaði:
Ik had het zelfde probleem als Jose. Ook ik kwam 1 lichtgrijs tekort maar heb wel deze kleur bijbesteld. Verder van de beige mix ook 4 bij moeten bestellen:( voor de gehele rand en voor nog enkele vierkantjes. Ik vind het jammer dat daardoor de kosten extra hoog zijn geworden. In totaal 15,00 etra verzendkosten...
03.02.2012 - 08:58
DROPS Design NL skrifaði:
Hoi Jose. Ik heb uw opmerking doorgestuurd naar ons Design Team. Zij bekijken het patroon en beslissen of er aanpassingen nodig zijn. Bedankt.
30.01.2012 - 13:40
Jose Scheffer skrifaði:
Had 4 bollen beige mix extra nodig om de deken afte krijgen.Had 1 bol licht grijs te kort ,maar opgelost met donker grijs waar ik een bol van over had.Heb ook 1 bol donkerbruin over.
29.01.2012 - 10:06
Helena skrifaði:
Die Stäbchen werden nicht in die einzelnen Maschen, sondern direkt IN den Ring gehäkelt. Weiterhin viel Erfolg! :)
28.01.2012 - 16:12
Bettina Golfels skrifaði:
Auch ich würde gern wissen, wie man aus dem 7 LM 16 Stächen häkelt? Über Hilfe würde ich mich sehr freuen, wo jetzt die schöne Wolle vor mir liegt!
28.01.2012 - 12:52
Alexandra Müssig skrifaði:
Sehr geehrte Damen und Herren, eine Frage habe ich ich zu dieser Anleitung: eigentlich dachte ich, ich kann häkeln, aber ich habe noch nicht herausgefunden, wie ich aus 7 LM insgesamt 16 Stb in der 2. Rd mache?? Vielleicht können Sie mir helfen! Danke, und viele Grüße, Alexandra Müssig betrifft die Decke DROPS design: Modell Nr. LI-001.
08.11.2011 - 12:10
Wiebke skrifaði:
Was für eine schöne Decke!!! Ich werde sie gleich doppelt häkeln als Bettüberwurf :-)
02.07.2011 - 07:31
Mervi skrifaði:
Aivan ihana. Haluaa samanlaisen.
01.07.2011 - 06:27
Paula skrifaði:
Tosi upea tilkkumalli. Tämä täytyy aloittaa!
30.06.2011 - 18:23
Verleysen skrifaði:
Heel mooie combinatie van kleuren.
24.06.2011 - 15:08
Latte Macchiato#lattemacchiatoblanket |
|
![]() |
![]() |
Heklað teppi úr DROPS Lima
DROPS 131-52 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITASKIPTING: FERNINGUR 1: UMFERÐ 1: nr 5610, brúnn UMFERÐ 2-3: nr 0619, beige UMFERÐ 4-5: nr 0206, ljós beige FERNINGUR 2: UMFERÐ 1: nr 5610, brúnn. UMFERÐ 2: nr 5310, ljós brúnn UMFERÐ 3: nr 0206, ljós beige UMFERÐ 4-5: nr 0619, beige FERNINGUR 3: UMFERÐ 1: nr 0100, natur UMFERÐ 2-3: nr 9015, grár UMFERÐ 4-5: nr 0519, dökk grár FERNINGUR 4: UMFERÐ 1-2: nr 0519, dökk grár UMFERÐ 3-4: nr 9015, grár UMFERÐ 5: nr 0100, natur FERNINGUR 5: UMFERÐ 1: nr 0519, dökk grár UMFERÐ 2: nr 9015, grár UMFERÐ 3: nr 0100, natur UMFERÐ 4-5: nr 9015, grár FERNINGUR 6: UMFERÐ 1-2: nr 0206, ljós beige UMFERÐ 3: nr 0619, beige UMFERÐ 4: nr 5310, ljós brúnn UMFERÐ 5: nr 5610, brúnn FRÁGANGUR: Sjá mynsturteikningu 1 varðandi staðsetningu á ferningum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af 66 ferningum. Það eru 6 mismunandi ferningar. Heklið 13 stk af FERNINGUR 1 og 4, 12 stk af FERNINGUR 5 og 6 og 8 stk af FERNINGUR 2 og 3. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið 7 ll með heklunál nr 5 með Lima og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll – notið lit frá fyrstu umf í ferningi – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: 3 ll (koma í stað 1 st), heklið 15 st um hringinn og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 16 st. UMFERÐ 2: Snúið stykkinu við, 5 ll (= 1 st + 2 ll), * 1 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 16 st með 2 ll á milli hverra. UMFERÐ 3: 1 ll, snúið stykkinu við, 2 ll (= 1 st), 1 st um fyrsta ll-boga, * 2 ll, 2 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 4: 1 ll, snúið stykkinu við, 1 fl um fyrsta ll-boga (frá fyrri umf), * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið á 1 kl í fl frá byrjun umf (í stað 1 fl um næstu ll). UMFERÐ 5: Snúið við, 3 ll (= 1 st), 2 st um fyrsta ll-bogann, 3 st um næsta boga, heklið síðan 5 st + 2 ll + 5 st um hverja 6-ll-boga (= horn) og 3 st um hverja 3-ll-boga umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferningana með 6 ferninga á breidd og 11 ferninga á hæð – sjá mynsturteikningu 1. Heklið ferningana saman með beige mix – ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á lengd og síðan á breidd þannig: Leggið 2 ferninga með röngu á móti röngu og heklið saman frá réttu þannig: 1 fl um hornið á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl um hornið á næsta ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l frá fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á öðrum ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á öðrum ferningi o.s.frv., endið þegar hekluð hefur verið 1 fl í næsta horn á báðum ferningunum, klippið frá og festið enda. ATH: Passið uppá að hafa fallegar skiptingar á milli ferninga þegar ferningarnir eru heklaðir saman á lengdina. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant meðfram öllu teppinu með beige mix þannig: Byrjið í einu horni og heklið frá réttu: UMFERÐ 1: 1 kl í hornið, 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hverja l umf hringinn (þ.e.a.s. 1 fl í hvern st, 1 fl í hvert horn á ferningunum, 2 fl í hverja skiptingu á milli ferninga og 2 fl í hvert horn á teppinu), endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: 3 ll, (= 1 st), heklið síðan 1 st í hverja fl umf hringinn en heklið 2 st í hverja og eina af 2 fl í hverju horni á teppi = 4 st í hornin, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern st en heklið 2 st í hvern og einn af 4 st í hvert horn á teppi = 8 st í hvert horn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 4: 3 ll, * hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 3 st, 10 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn – passið uppá að það komi bogi í hvert horn og endið á 1 kl í 1. fl í umf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lattemacchiatoblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 131-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.