Laurie skrifaði:
Love the classy and cute design.
28.06.2011 - 18:42
Mna skrifaði:
Enkel og veldig søt. Denne vil jeg strikke. Dere burde hatt flere slike!
22.06.2011 - 11:53
Nanou skrifaði:
Je crois que je vais beaucoup tricoter pour l'hiver , ils sont tous magnifique, je surveille pour les explications!!!!!!
22.06.2011 - 08:07
Elena skrifaði:
Lovely and cozy.
20.06.2011 - 00:28
Miriam De Aguiar skrifaði:
Maravilhoso, acho lindo estes trabalhos e gosto muito de faze-los tambem!! Parabens!!
15.06.2011 - 22:31
Maud skrifaði:
Je ne peux plus attendre pour avoir les explications, ce modèle est parfait !
15.06.2011 - 15:54
Hanne M. Thomassen skrifaði:
Enkel deilig høstgenser :-) Deilig med rundstrikking og ikke`no montering :-)
05.06.2011 - 12:04Ines skrifaði:
Wunderschön :-) liebe Grüße aus Südtirol
29.05.2011 - 19:58Mastoureh skrifaði:
Beautiful pattern
29.05.2011 - 07:05
Mette skrifaði:
Fantastisk farve-og mønsterkombination. Godt gået Drops
26.05.2011 - 02:40
White Chocolate#whitechocolatesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Andes með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 131-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. M.1 til M.4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-128-140-152-164-176 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós beige. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 20 l jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu l í umf og 1 prjónamerki í 49.-55.-61.-67.-73.-79. l (þau merkja hliðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið M.2 – passið uppá að l merktri með ör verði fyrir miðju að framan. Þegar M.2 er lokið er prjónuð 1 umf með litnum natur jafnframt eru felldar af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við hana) = 82-94-106-118-130-142 l eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 42-43-44-45-46-47 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 28-28-32-32-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós beige. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið 3 umf með stroffi 2 l sl, 2 l br. Prjónið síðan M.4, þetta mynstur er prjónað með stroffi, gagnstætt fyrri, þ.e.a.s. br l eru yfir sl og sl eru yfir br. Eftir M.4 er haldið áfram með litinn natur og stroffi eins og áður. Þegar stykkið mælist 7 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8. Prjónið M.1, haldið síðan áfram með litinn natur og sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu l í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki, endurtakið útaukningu með 8-8-6-6-5-5 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 36-36-42-42-48-48 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23 cm, prjónið M.2 – passið uppá mynstur þannig að l með ör verði fyrir miðju framan á ermi – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Eftir M.2 er prjónuð 1 umf með litinn natur jafnframt eru felldar af 7 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við hana) = 29-29-35-35-41-41 l eftir á prjóni. Stykkið mælist ca 43 cm í öllum stærðum. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 8 eins og fram- og bakstykki = 140-152-176-188-212-224 l. Setjið eitt prjónamerki í l við miðju að aftan – HÉÐAN BYRJAR UMF! Prjónið 1 umf sléttprjón með litnum ljós beige þannig: STÆRÐ S- M: Aukið út um 4 l jafnt yfir = 144-156 m. STÆRÐ L-XL-XXL- XXXL: Fækkið um 8 l jafnt yfir = 168-180-204-216 l. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan og fækkið l eftir M.3 – prjónið upp að ör í réttri stærð = 72-78-84-75-85-90 l. Haldið áfram með litinn natur, prjónið fyrst 1 umf þar sem fækkað er um 12-18-20-11-17-22 l jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 l. Prjónið síðan upphækkun að aftan þannig: Prjónið 8 l sl framhjá l með prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið 17 l br, snúið við og prjónið 25 l sl, snúið við og prjónið 33 l br, snúið við og prjónið 41 l sl, snúið við og prjónið 49 l br. Snúið við og prjónið 1 umf aftur fram og til baka. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 7 og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br – JAFNFRAMT eftir 4 cm er prjónað M.4 (eins og neðst á ermum). Eftir M.4 er haldið áfram með litinn natur og stroffprjóni eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 12 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitechocolatesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 131-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.