Karin Nordrik skrifaði:
Hei, jeg ble litt forskrekket da jeg så jeg skal ta tråden dobbelt. Er det ikke meningen at babytøy blir strikket ekstratynn? Er litt redd for at det blir for tykt....
22.09.2015 - 15:05DROPS Design svaraði:
Hej Karin, Den her model er strikket i dobbelt garn. Vi har mange sæt som er strikket i Baby Merino og da kan du jo evt vælge at bruge Delight, hvis det var garnet og farven du synes om.
22.09.2015 - 15:33
MARCELA skrifaði:
V návodu je nahodtě 138 očí a po upletení patentu přidejte na 128 očí?
17.12.2013 - 10:27DROPS Design svaraði:
Dobrý den, děkuji za dotaz - jedná se o nevhodný překlad, nikoli "přidáme", ale "upravíme počet ok na (např. 128)". Návod nyní zveřejňujeme v novém, zrevidovaném překladu. Hodně zdaru! Hana
30.12.2013 - 20:21
Charlotte skrifaði:
Hej på Garnstudiet Jeg kan ikke finde hvor mængden af garn jeg skal bruge står. Er det en fejl eller bare mig der ikke kikker rigtigt. Hej fra Charlotte og tusind tak for nogle pragtfulde opskrifter.
22.01.2011 - 21:00
DROPS Baby 20-21 |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa og buxur fyrir börn úr DROPS Delight
DROPS Baby 20-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 8, 14 og 20 cm Stærð 6/9 mán: 2, 8, 15 og 21 cm Stærð 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm Stærð 2 ára: 2, 9, 16, 23 og 30 cm Stærð 3/4 ára: 2, 10, 18, 26 og 34 cm Stærð 5/6 ára: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og búks (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um buxur): Aukið út með því að taka upp lykkjur frá fyrri umferð og prjónið lykkjuna slétt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um buxur) : Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp 132-138-150 (162-168-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm, munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í umferð 1 eftir stroff er lykkjufjöldinn jafnaður út til 118-128-140 (146-158-168) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42-44) lykkjur frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74-80) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin, endurtakið með 3-3-3 (4-5-6) cm millibili alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138-148) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-20-23 (27-30-32) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 38-42-46 (50-54-60) lykkjur eftir á bakstykki og 24-25-29 (30-32-34) lykkjur eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 30-30-36 (36-36-36) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30 (30-32-32) lykkjur í 1. umferð eftir stroff. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6-7) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 7-4-3 (3-3,5-3,5) cm millibili alls 2-4-5 (7-7-8) sinnum = 32-36-40 (44-46-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30-34) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur mitt undir ermi = 26-28-32 (36-36-38) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið inn ermar á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handveg = 138-148-168 (182-190-204) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalína byrjar. LASKALÍNA: Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerki (= 8 úrtökur) – lesið úrtaka að ofan! Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð: 7-8-8 (9-10-11) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 0-0-2 (2-2-2) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-31 (36-40-43) cm setjið síðustu 8-8-10 (10-10-12) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-56 (62-62-64) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 30-32-36 (41-45-48) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 80 til 105 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á hringprjón 4 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66-72) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (frá réttu verða þetta 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri hlið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá mitti og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna BUXUR: Fitjið upp 114-120-120 (126-132-138) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af Delight. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8-9-9 (10-10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umferð slétt - JAFNFRAMT er fækkað um 22-24-20 (22-24-26) lykkjur jafnt yfir = 92-96-100 (104-108-112) lykkjur. Setjið prjónamerki í miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (= 46-48-50 (52-54-56) lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-14-15 (15½-16-17) cm. Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur við miðju að framan (2 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 8-9-9 (10-11-11) sinnum = 108-114-118 (124-130-134) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24-25) cm. Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 48-51-53 (56-59-61) lykkjur á hvorri skálm. SKÁLM: Setjið lykkjur frá annarri skálminni á þráð og lykkjur frá hinni skálminni á sokkaprjóna nr 4 = 48-51-53 (56-59-61) lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni í hring á sokkaprjóna – setjið prjónamerki að innan verðu á skálm. JAFNFRAMT þegar skálmin mælist 4-4-4 (5-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-3-4 (5-6-8) cm millibili alls 4 sinnum = 40-43-45 (48-51-53) lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-15-18 (23-28-33) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8-5-9 (6-9-7) lykkjur jafnt yfir = 48-48-54 (54-60-60) lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið síðan laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Allar buxurnar mælast nú alls 40-46-50 (56-62-68) cm. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið síðan seinni skálmina á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið saman opið á milli skálma. Brjótið upp á skálmina eftir þörf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.