Tuula Moisio skrifaði:
Hei, Onko mahdollista saada ohje (paperiversio) Vauvan virkatusta peitosta Baby 16-18, joka on valmistettu Drops muskat soft langasta ? Ystävällisin terveisin Tuula Moisio
10.11.2020 - 15:24DROPS Design svaraði:
Hei, valitettavasti emme lähetä ohjeita paperiversiona. Voit kuitenkin tulostaa kaikki ohjeet ilmaiseksi.
17.11.2020 - 14:17
Gretchen Gundlach skrifaði:
Please check ROW 8: Baby Bloom 16-18, - Baby Bloom 16-28, and Baby Bloom printed with corrections note 12.10.2009. All three separate patterns seem to have mistakes in ROW 8. Each error is slightly different. The instructions are impossible. I finally made it up and did what seemed logical.
15.11.2015 - 21:10
Renske Sijtsma skrifaði:
Ik zou graag willen weten waar ik Drops Muskat Soft blauw mix en roze mixc kan krijgen, mijn online zoektocht heeft niets opgeleverd.
26.01.2015 - 09:22DROPS Design svaraði:
Hoi Renske. DROPS Muskat Soft is helaas uit onze assortiment genomen en is niet meer verkrijgbaar.
26.01.2015 - 14:47
Aina Berntsen skrifaði:
Hvet du om der fins noen erstatning for dette garnet i rosatoner det går ann å hekle dette av ? er jo bare sååå nydelig :)
22.06.2013 - 08:16DROPS Design svaraði:
Hei Aina. Vi har desvaerre ikke et alternativ i denne categori med de samme "overgange" i farve tonerne. Men du kan jo pröve med to farver af Muskat eller Merino? Eller pröv med Delight og hekl en pröve og se om det bliver fint. God fornöjelse.
24.06.2013 - 12:25
Blue Dreams#bluedreamsblanket |
|
![]() |
![]() |
Heklað barnateppi með blómum úr DROPS Muskat Soft.
DROPS Baby 16-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR – 1 TBST-HÓPUR: Heklið 1 tbst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 2 lykkjur á heklunálinni. Heklið 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 3 lykkjur á heklunálinni. Heklið að auki 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 4 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið 5 ll með Muskat Soft og heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll, * 1 fl í næstu fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið á 1 kl í aðra ll frá byrjun umf (= 8 ll-bogar). UMFERÐ 3: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 fl, 4 st, 1 fl, endið á 1 kl í fyrstu fl (= 8 blöð). UMFERÐ 4: Brjóttu blaðið að þér og heklaður frá bakhlið þannig: Heklaður 1 fl í kringum fyrstu fl frá umf 2, 8 ll (= 1 st + 5 ll), * 1 st í kringum fyrstu fl frá umf 2, 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (= 8 ll-bogar). UMFERÐ 5: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 fl, 6 st, 1 fl, endið á 1 kl í fyrstu fl (= 8 blöð). UMFERÐ 6: Brjóttu blaðið að þér og heklaðu frá bakhlið þannig: Heklaðu 1 fl í kringum fyrsta st frá umf 4, 10 ll (= 1 st + 7 ll), * 1 st í kringum næsta st frá umf 4, 7 ll *, endurtakið frá *-* umf hrigninn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (= 8 ll-bogar). UMFERÐ 7: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 fl, 8 st, 1 fl, endið á 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, 1 fl í 4. st í fyrsta blaðinu, 3 ll, 1 tbst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, 5 ll, 1 TBST-HÓPUR- sjá útskýringu að ofan – í næsta st á sama blaði, * 3 ll, 1 st í síðasta st á sama blaði, 3 ll, 1 fl í 3. st á næsta blaði, 3 ll, 1 fl í 6. St á sama blaði, 3 ll, 1 st í fyrsta st á næsta blaði, 3 ll, 1 tbst-hópur í 4. st á sama blaði, 5 ll, 1 tbst-hópur í 5. st á sama blaði *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 ll, 1 st í síðasta st á sama blaði, 3 ll, 1 fl í 3. st á næsta blaði, 3 ll, 1 fl í 6. st á sama blaði, 3 ll, 1 st í fyrsta st á næsta blaði – þessi er einnig heklaður í hring á ll-röð sem hekluð var í byrjun umf, 3 ll, 1 kl í toppinn á fyrsta tbst-hópnum. UMFERÐ 9: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu 5 ll-boga, 3 ll, 1 tbst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, 5 ll, 1 tbst-hópur í sama ll-boga, ** 3 ll [3 st í næsta ll-boga, 1 ll], endurtakið frá [-] alls 4 sinnum, 3 st í næsta ll-boga, 3 ll. Í 5 ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 tbst-hóp, 5 ll, 1 tbst-hóp **, endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, 3 ll, [3 st í næsta ll-boga, 1 ll], endurtakið frá [-] alls 4 sinnum, 3 st í síðasta ll-boga, 3 ll, 1 kl í toppinn á fyrsta tbst-hópnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í ferningum og heklað saman í lokin. TEPPI: Heklið 20 ferninga - HEKLAÐUR FERNINGUR samkvæmt útskýringu að ofan. Leggið ferningana niður í ferhyrning með 4 x 5 ferninga. Heklið ferningana saman fyrst á breiddina þannig: Heklið 1 fl í fyrsta ll-boga (= horn) á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl í horninu á öðrum ferningi, * 2 ll, 1 fl í næsta ll-boga á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga á öðrum ferningi *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 2 ll, 1 fl í síðasta ll-boga (= horn) á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl í síðasta ll-boga (= horn) á öðrum ferningi, 2 ll, 1 fl í hornið á þriðja ferningi, 1 ll, 1 fl í hornið á fjórða ferningi o.s.frv. þar til allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman 4 og 4 á breiddina. Haldið áfram með umf 2 o.s.frv. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á breiddina eru þeir heklaðir saman á lengdina. FRÁGANGUR: Heklið 1 umf í kringum allt teppið þannig: Í hvert horn er heklað þannig: Heklið 1 fl, 6 st, 1 fl, í 1. og 3. hvern ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 2 st, 1 fl, endið á 1 kl í fyrstu l frá byrjun umf. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluedreamsblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.