GABRIELLE skrifaði:
Bonjour, sur ce modèle, après les cotes il faut faire un tour end et EN MÊME TEMPS répartir des diminutions. Ma question : faut-il faire toutes les diminutions sur le tour end ou sur les 6 cm de cotes ? Autre question : quelle méthode est utilisée pour les diminutions ? Merci d'avance pour votre aide (c'est mon premier pull)
21.02.2020 - 09:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Gabrielle, quand votre ouvrage mesure 6 cm, vous tricotez 1 tour endroit en diminuant 28-44 mailles (cf taille) à intervalles réguliers sur ce tour = il vous reste 84-140 m. Vous tricotez ensuite 1 tour envers sur ces 84-140 m. Pour diminuer, tricotez 2 mailles ensemble à l'envers - cette leçon explique comment répartir des diminutions. Bon tricot!
21.02.2020 - 10:39
Manon skrifaði:
Hoi. ik zou hier graag een kleine rits in zetten van zo'n 10 cm. wat is de handigste manier om dat te doen? laatste stukje steken voor rits af kanten en na breien boord nog een keer een rij langs af gekante steken breien? hoor graag een tip!
17.02.2019 - 16:22DROPS Design svaraði:
Dag Manon,
Je zou inderdaad een bies kunnen maken midden voor, waar je de rits tegenaan kunt naaien.
17.02.2019 - 18:45
Erika Reinhold skrifaði:
In der Anleitung wird nach dem Bündchen eine Reihe rechts gestrickt. Auf dem Foto scheint mir aber eine Linksreihe gestrickt worden zu sein, da es ja auf der Rundnadel gestrickt wurde. Was ist jetzt richtig?
20.01.2016 - 14:20DROPS Design svaraði:
Sie stricken nach dem Bündchen 1 Rd rechts und nehmen dabei wie beschrieben M ab, dann stricken Sie 1 Rd links, so steht es in der Anleitung.
24.01.2016 - 20:30
Karin skrifaði:
Hallo, ich stricke diesen Pullover für einen schlanken, aber breiten 2-m-Mann. In der Weite stimmt die Größe XXL. Aber wie muss ich die Verhältnisse ändern bei den Armkugeln? Gibt es was zum Umrechnen?
06.01.2014 - 13:46
DROPS Extra 0-695 |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Snow. Stærð S-XXXL.
DROPS Extra 0-695 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-120-132-148-164-184 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Snow. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 28-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 84-92-100-112-124-140 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið tvö merki í stykkið, 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 42-46-50-56-62-70 lykkjur (merkir hliðar). Nú er haldið áfram í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út á UNDAN báðum merkjum (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Endurtakið útaukningu á EFTIR báðum merkjum þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm = 88-96-104-116-128-144 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af 4-6-6-6-6-6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (þ.e.a.s. fellið af 2-3-3-3-3-3 lykkjur hvoru megin við hvort merki). Nú er hvort stykkið prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 40-42-46-52-58-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT því sem fellt er af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið (það er ekki fellt af í 2 minnstu stærðunum): 2 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 0-0-0-2-3-4 sinnum = 40-42-42-44-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 18-18-20-20-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 10-11-10-11-11-12 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. FRAMSTYKKI: = 40-42-46-52-58-66 lykkjur. Fellið af fyrir handveg í 4 stærstu stærðum eins og á bakstykki = 40-42-42-44-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-65-67-69 cm fellið af miðju 16-16-18-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Nú er felld af 1 lykkja í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli 2 sinnum = 10-11-10-11-11-12 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 28-28-32-32-36-36 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Snow. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 26-26-28-28-30-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Setjið eitt merki í byrjun umferðar. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu með 10-8-6½-5½-4½-4 cm millibili alls 5-6-7-8-9-10 sinnum = 36-38-42-44-48-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 57-56-56-55-54-52 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 4-6-6-6-6-6 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 2-3-3-3-3-3 lykkjur hvoru megin við merki). Síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-2-3-3-6-7 sinnum. Haldið áfram að fella af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 64-64-65-65-66-66 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist nú 65-65-66-66-67-67 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. KRAGI: Kraginn er prjónaður í hring á hringprjóna. Prjónið upp 48-48-52-54-54-54 lykkjur í kringum kant í hálsmáli á hringprjóna 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Prjónið áfram í sléttprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum þegar kraginn mælist 20 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-695
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.