Marianne Fischer skrifaði:
Hej jeg er ved at strikke ponchoen, men kan ikke helt hitte rede i indtagningen på midten, det er hver anden pind så længe det ikke er samlet.. Så når det er samlet bliver det jo hver pind ?? eller ??
20.10.2010 - 17:57
Drops Design skrifaði:
Godt at du fandt ud af det. God fornøjelse!
11.10.2010 - 09:45
Kirsten Leth skrifaði:
Øv, har fundet min fejl. Bliver nødt til at pille op og starte forfra...
11.10.2010 - 09:17
Kirsten Leth skrifaði:
123-28. Man slår til str. L/XL 360 m op, tager 40 ud, totalt 400 m. Man tager ialt 268 m ind, rest 132 m. I opskrift står at rest skal være 172. Det må være en fejl. Kan i hjælpe ? mvh Kirsten
10.10.2010 - 17:47
Louise skrifaði:
Hello, Every day I check # ww-034 hoping that the pattern has been translated Looking forward to start.
26.07.2010 - 17:57
Lelarge skrifaði:
Très beau modèle vivement les explication
23.07.2010 - 08:41Gillet skrifaði:
Magnifique ;je serai très heureuse de recevoir les explications pour le réaliser
18.07.2010 - 20:09Marie skrifaði:
Tres beau poncho,j'attends les explications.
13.07.2010 - 11:53
Joyce skrifaði:
Can't wait til this is available. Love it! The perfect poncho for fall into winter.
11.07.2010 - 16:07Mimi skrifaði:
À réaliser certainement!
24.06.2010 - 19:24
Hometown |
|
![]() |
![]() |
Prjónað poncho með 1 þræði DROPS Symphony, 1 þræði DROPS Melody eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk + 1 þræði DROPS Alpaca og með stroffi úr DROPS Alpaca. Stærð S til XXXL.
DROPS 123-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA 1 (á við um miðju að framan og miðju að aftan): Fækkið lykkjum frá réttu hvoru megin við 2 lykkjur. Fækkið lykkjum 3 lykkjum Á UNDAN prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum Á EFTIR prjónamerki: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA 2 (á við um hliðar): Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l slétt saman á undan prjónamerki og 2 l snúnar slétt saman á eftir prjónamerki (þ.e.a.s. prjónið saman aftan í lykkjubogann í stað framan). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað í tveimur stykkjum sem síðan eru sett saman og prjónað er í hring yfir allar lykkjur. Örvar í mynstri sýna prjónastefnu. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 162-180-198 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Symphony, 1 þræði Melody eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Setjið prjónamerki í miðju á stykki eftir 81-90-99 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið útaukningu í lok hverrar umf alls 9-10-11 sinnum á hvorri hlið (= 18-20-22 l útauknar l fyrir kant á ermum í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA 1! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 46-52-58 sinnum en þegar öll útaukning fyrir kant á ermum er lokið (stykkið mælist ca 10-11-12 cm á hæðina) endið þá á 1 umf frá röngu. Geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. PONCHO: Setjið inn allar l á sama hringprjón. Héðan er nú prjónað í hring á hringprjóna. Setjið prjónamerki í byrjun á umf og eitt á eftir helminginn af öllum l (þetta merkir hliðar). Haldið áfram að fella af l við miðju að framan og við miðju að aftan eins og áður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-13 cm er felld af 1 l hvoru megin við prjónamerki á hliðum – LESIÐ ÚRTAKA 2! Endurtakið úrtöku á hliðum í 6. hverri umf (í 3. hverjum cm) alls 13-15-17 sinnum (= til loka). Þegar úrtöku er lokið eru 160-172-184 l eftir á prjóni. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist 51-57-63 cm. KRAGI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og tvo þræði af Alpaca. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar tvær og tvær slétt saman = 80-86-92. Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-24 l jafnt yfir = 100-108-116 l. Prjónið stroff (= 2 l sl/2 lbr) yfir allar l. Þegar stroffið mælist 28 cm fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. KANTUR ERMI: Saumið saman 4 umf með garðaprjóni neðst á bakstykki og framstykki með nokkrum sporum í hvorri hlið (kantur á ermum hefur nú ummál ca 24-26-30 cm). Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Takið upp 44-48-52 l í kringum kant á ermum á sokkaprjóna nr 4 með tveimur þráðum af Alpaca. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú stroff (= 2 l sl/2 l br) yfir allar l. Þegar stroffið mælist 12 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 123-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.