Elfrid skrifaði:
Har heklet selve teppet, men sliter med oppskriften på kanten som skal hekles rundt teppet. Er det mulig å få et nærbilde av selve kantborden?
24.10.2012 - 06:19DROPS Design svaraði:
Heisann. Det er nå lagt ut et nærbilde av heklekanten på teppet. mvh Drops design
24.10.2012 - 10:47
LillySmuul skrifaði:
There is mistake on 10th round. ROUND 10: 3 ch, * skip 2 dc (skip 1 dc instead at regular intervals a total of 2-4-6 (8) times)... It should be (...total of 6-12-18 ( 24), otherwise it doesn't work out.
21.07.2010 - 13:48
Sweet Buttercup Blanket#sweetbuttercupblanket |
|
![]() |
![]() |
Sett með hekluðu teppi fyrir börn með breiðum kanti í sólfjaðramynstri og heklaðri húfu með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino. Þema: Barnateppi.
DROPS Baby 19-6 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið er heklað fyrst í stuðlahópum. Að lokum er heklaður breiður kantur með sólfjaðramynstri í kringum allt teppið. TEPPI: Heklið 119 LAUSAR loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1: Heklið 4 stuðla í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 4 loftlykkjur, 4 stuðlar í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* alls 22 sinnum, hoppið yfir 2 loftlykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu loftlykkju = 23 stuðlahópar í umferð, snúið við. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, heklið síðan 4 stuðla á milli 2 miðju stuðlum í hverjum stuðlahóp út umferðina, endið með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 2 upp úr þar til teppið mælist ca 56 cm á lengd. KANTUR MEÐ SÓLFJÖÐRUM: UMFERÐ 1: Heklið 1 umferð með loftlykkjubogum í kringum allt teppið þannig – byrjið í einu horninu: 1 keðjulykkja í horni, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju (nú eru 3 loftlykkjubogar í horni), * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1-1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að næsta horni, í hornið er heklað: 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, haldið áfram meðfram næstu hlið – ATH: Það eiga að vera ca 29 loftlykkjubogar meðfram báðum skammhliðum, ca 37 loftlykkjubogar meðfram báðum langhliðum og 3 loftlykkjubogar í hverja horni, þ.e.a.s. fjöldi loftlykkjuboga á milli hverra horna verður að vera deilanlegur með 2 + 1 (= ójafn fjöldi loftlykkjuboga). Endið umferð með 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur, 1 stuðull um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga í horni *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar (= 3 sólfjaðrir í horni), * 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 1 loftlykkjubogi er eftir innan við 3 boga í horni, 1 stuðull um þennan boga, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga í horni, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga í horni, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar í síðasta loftlykkjuboga í horni (nú eru 3 sólfjaðrir í horni), 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, haldið áfram alveg eins þar til heklað hefur verið hringinn utan um allt teppið og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 3-4: Heklið keðjulykkjur að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 4 stuðla), 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið emð 1 stuðul í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 5-6: Heklið keðjulykkju að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 6 stuðla), 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 4 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð, 4 stuðlar + 1 loftlykkja + 4 stuðlar í næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 stuðli í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 7: Heklið eins og umferð 6 nema heklið 2 loftlykkjur í stað 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa. UMFERÐ 8-10: Heklið keðjulykkju að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 8 stuðla), 4 loftlykkjur, 3 tvíbrugðnir stuðlar í sama loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul/tvíbrugðinn stuðull frá fyrri umferð, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðasta stuðul/tvíbrugðinn stuðul og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda eftir 10. umferð, kantur mælist ca 12 cm. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er hekluð ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn - SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2-4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 10: 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 2 fastalykkjur (með jöfnu millibili er hoppað yfir 1 fastalykkju alls 6-12-18 (24) sinnum), 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn þannig að það verða 22-24-26 (28) loftlykkjubogar, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykku í byrjun á umferð. UMFERÐ 11: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 stuðlum + 1 loftlykkju + 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 11-12-13 (14) sólfjaðrir. UMFERÐ 12-15: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjur efst í sólfjaðrakanti), 1 stuðull í fastalykkju/stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 1 loftlykkju + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 16: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 17: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Endurtakið umferð 17 þar til húfan mælist ca 10-11-12 (13) cm frá miðju á höfði. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 tvíbrugðnum stuðlum + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnum stuðlum mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Endurtakið þessa umferð þar til húfan mælist ca 14-15-16 (18) cm frá miðju á höfði og niður. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbuttercupblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.