Marita Müller skrifaði:
Hallo, ich habe ein Problem. Ich stricke dieses Babykleid. Habe für die zweite Größe 420 Maschen aufgenommen und habe das Bündchen gestrickt. nach 5 cm habe ich auf beiden Seiten der re.-Partien je 1 Masche abgenommen und dass 4x, dann die restlichen 2 Maschen zusammen gestrickt. Habe jetzt noch 150 Maschen auf der Nadel und nicht wie in der Anleitung 180 Maschen. Was habe ich falsch gemacht? Ich würde mich über eine schnelle Antwort freuen. Gruss Marita
07.09.2014 - 09:46DROPS Design svaraði:
Sie müssten in jeder Abnahme-Rd 60 M abnehmen, da Sie ja 30 Rechtspartien haben und in jeder dieser Partien je 2 M abnehmen (am rechten + am linken Rand der Partie: die ersten 2 M der Partie durch Abheben und Überziehen zusammenstricken und die letzten 2 M der Partie re zusammenstr.). Wenn Sie auf diese Weise in insgesamt 4 Rd jeweils 60 M abnehmen, haben Sie insgesamt 240 M abgenommen und müssten auf 180 restliche M kommen.
10.09.2014 - 10:18
Julia skrifaði:
Hallo, ich habe gleich mal eine Basisfrage. Was bedeuten die Sternchen in der Anleitung? :) Vielen Dank
26.10.2013 - 19:31Malin svaraði:
Sternchen bedeutet: von Sternchen bis Sternchen wiederholen!
26.10.2013 - 21:18
Anna Kumpulainen skrifaði:
I knitted size 1/3 and needed almost 150 g of yarn. 100 g as advised in the instructions was indeed not enough!
24.07.2013 - 14:25
Hnixon skrifaði:
Just completed this dress 2nd size. And teamed it with 20-14 jacket , it looks fantastic!
18.04.2013 - 18:30Nashwaahmed skrifaði:
Well hello there, i have a question considering this dress its my first time to work something in the round and till now it's going pretty well but when i reached the casting off for arm holes one stitch remained at the end of the round so how should i do this part ? thank you :)
09.04.2013 - 14:36DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Nashwaahmed, after casting off your 6 sts for armholes, you should have 50-56-64 (72-76)sts (see size) for front + for back piece.
09.04.2013 - 15:28
Cristina skrifaði:
En tegelijkertijd 36 st minderen.waar en hoe moet ik minderen?de techniek weet ik wel maar hoe moet ik die 36 st mind?
09.03.2013 - 12:24DROPS Design svaraði:
U mindert ze verdeeld over de naald. Hier mindert u 36 st van de 168 st, dus minder zo dat u 132 st overhoudt.
15.03.2013 - 08:37
Cristina skrifaði:
Wat recht boven recht en av boven av betekend?
09.03.2013 - 12:19DROPS Design svaraði:
Je breit recht boven een recht st en av boven een av steken.
12.03.2013 - 21:33
Suzanne skrifaði:
I'm having trouble picking up enough stitches around the front neckline. I'm knitting the 1-3 mos size. I can only get 24, which is nowhere near the minimum 48 I'm supposed to get! Has anyone else had this problem? My gauge is otherwise fine.
05.03.2013 - 14:59DROPS Design svaraði:
Dear Suzanne, To get more sts, you can pick stitch from front and back loop of stitch, meaning you pick up 2 sts from one st. Happy knitting!
05.03.2013 - 19:27
Carla skrifaði:
Is het garen Drops Safran geschikt voor dit model. Ik ben hier mee aan het werk geweest, maar liep direct vast doordat de laatste 12 steken gebreid moeten worden als volgt: 10 recht 2 averecht. Ik kom niet uit op 10 recht, 2 averecht. Hoe kan dit? Dan loopt volgens mij het patroon niet door. Kunt u mij helpen Bedankt
28.12.2012 - 22:21DROPS Design svaraði:
Je kan Drops Safran gebruiken voor dit model, maar let op de stekenverhouding en dat Safran is een katoenen garen en het model is gemaakt in wol. Het zal dan minder elastisch zijn. Je begint met 2 av en eindigt met 2 averecht, dan loopt het motief door.
29.12.2012 - 14:41
DROPS Deutsch skrifaði:
Die Anleitung stimmt so. 392 M. - 224 (4 x 56 M. (28 rapporte re.-Partien) = 168 Maschen.
31.12.2011 - 19:14
Sweet Sorbet#sweetsorbetdress |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn með pífu og áferðamynstri og tátiljur með pífu úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki. Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. KJÓLL: Fitjið upp 392-420-448 (476-504) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur brugðið, * 10 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 12 lykkjur og endið með 10 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram í 5-5-6 (6-7) cm frá uppfitjunarkanti. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við einingu með sléttum lykkjum með því að prjóna allar 10 lykkjur slétt þannig (þær 4 lykkjur brugðið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt saman þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 168-180-192 (204-216) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 36-36-32 (28-32) lykkjur jafnt yfir = 132-144-160 (176-184) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki á eftir 66-72-80 (88-92) lykkjum (merkja miðju í hliðum). Stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 2-2-3 (3-3) cm fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – með 2-2-2(3-3½) cm millibili alls 5 sinnum = 112-124-140 (156-164) lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 11-12-13 (16-18) cm. Prjónið nú M.1 yfir allar lykkjur. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (23-27) cm felið af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 32-38-46 (54-58) lykkjur. Þegar felldar hafa verið af allar lykkjur fyrir handveg er M.2 prjónað yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 24-26-29 (34-39) cm. Fellið nú af miðju 18-22-24 (26-30) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við hálsmál = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á hvorri öxl. Stykkið mælist nú ca 25-27-30 (35-40) cm. Setjið lykkjur á þráð. FRAMSTYKKI: = 50-56-64 (72-76) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki = 32-38-46 (54-58) lykkjur. Þegar búið er að fella af allar lykkjur er prjónað M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðinni er prjónað áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist ca 21-22-25 (29-34) cm. Fellið nú af miðju 10-14-16 (18-22) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: = 11-12-15 (18-18) lykkjur. Prjónið áfram með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 6-7-10 (13-13) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-27-30 (35-40) cm. Setjið lykkjur á þráð. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 48 til 64 lykkjur (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum hálsmál á framstykki á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan , * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka þar til kantur í hálsmáli mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið upp 32 til 48 lykkjur (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum hálsmál á bakstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum fyrir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið efst á öxl. Prjónið upp 52 til 84 (deilanlegt með 4), frá réttu, í kringum handveg á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR MEÐ HNAPPAGÖTUM Á FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Prjónið upp 6-6-6 (8-8) lykkjur með hringprjón 2,5 yfir kant á hálsmáli innan við 1 lykkju garðaprjón, prjónið síðan 6-7-10 (13-13) lykkjur, af þræði á öxl, prjónið til baka lykkjur og að lokum eru prjónaðar upp 6-6-6 (8-8) lykkjur yfir kant fyrir handveg innan við 1 lykkju garðaprjón = 18-19-22 (29-29) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-2 (3-3) lykkjur jafnt yfir = 20-20-24 (32-32) lykkjur. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram, þar til kanturinn mælist ca 1 cm. Fellið nú af fyrir hnappagötum með því að prjóna þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón. Vinstri öxl: Prjónið á sama hátt og hægri öxl. KANTUR FYRIR TÖLUR Á BAKSTYKKI: Prjónið kant ca 2 til 3 cm á hvorri öxl á sama hátt og á framstykki en ÁN þess að fella af fyrir hnappagötum. FRÁGANGUR: Saumið tölur í axlir. ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan. TÁTILJA: Fitjið upp 122-122-134 (134-146) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Haldið síðan áfram með 2 umferðir stroff 3 lykkjur brugðið /9 lykkjur slétt með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 9 lykkjur slétt til 7 lykkjur slétt með því að prjóna þannig (3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til eftir eru 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman = 102-102-112 (112-122) lykkjur. Prjónið 1 umferð með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er fækkað í öllum einingum með 7 lykkjur slétt til 5 lykkjur slétt alveg eins og áður = 82-82-90 (90-98) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 5 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt alveg eins og áður = 62-62-68 (68-74) lykkjur. Prjónið 1 umferð með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð er lykkjum fækkað í öllum einingum með 3 lykkjur slétt til 1 lykkja slétt með því að allar einingarnar með 3 lykkjum slétt eru prjónaðar þannig (3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir = 42-42-46 (46-50) lykkjur. Haldið síðan áfram með stroff 3 lykkjur brugðiðr/1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5-6-6 (7-7) cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-3-7 (3-7) lykkjur jafnt yfir = 35-39-39 (43-43) lykkjur. Prjónið 6 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Setjið síðan ystu 12-12-12 (16-16) lykkjurnar í hvorri hlið á þráð = 11-15-15 (11-11) lykkjur eftir á prjóni (= efra stykki). Prjónið 4-4½-5 (6-8) cm stroff yfir þessar lykkjur þannig (séð frá réttu): * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur brugðið. Takið síðan upp 10-11-13 (16-21) lykkjur hvoru megin við efra stykki og setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 55-61-65 (75-85) lykkjur alls. Prjónið slétt fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 1½-2½-3 (3-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 2 lykkjur saman í byrjun og lokin á umferð hvoru megin við miðju lykkjur á tá. Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af og saumið saman saum undir fæti í ysta lykkjuboga á ystu lykkju. Saumið upp meðfram stroffi að aftan innan við 1 kantlykkju. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetsorbetdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.