Guðrún María Guðmundsdóttir skrifaði:
Það vantar úrtökuleiðbeiningar efst í uppskriftina eins og kemur fram t.d. í dönsku uppskriftinni
13.11.2020 - 12:37DROPS Design svaraði:
Blessuð Guðrún María. Takk fyrir það er búið að laga þetta.
26.11.2020 - 13:43
Birgit Hoffmann skrifaði:
Synes der mangler opskrift på selve vanten med tommeltotten??? Findes den ikke????
21.10.2014 - 16:11DROPS Design svaraði:
Hej Birgit. Se lige det link jeg tilföjede i mit svar lige för ;-)
21.10.2014 - 16:14
Merike skrifaði:
Kuidas täpselt käib: "Tõsta mõlemad randmeosad koos 7-8 mm varrastele"? kas on mõeldud ikka sukavardaid? mitu silmust peab olema igal vardal ja kuidas 2 randmeosa omavahel kokku sobitada?
08.12.2013 - 21:57DROPS Design svaraði:
Sellest hetkest kootakse mõlemad kindad ühe suure ringina. Kuna neil pole pöidlaid, siis pange lihtsalt ringialgused kokku ja hakkake ringselt kuduma vastavalt juhendile.
14.01.2014 - 17:13
Ewa skrifaði:
Natürlich! Weiter unten!
12.01.2013 - 19:24
Birgit Ax skrifaði:
Hallo, habe den Muff fertig, gibt es für die Handschuhe (Daumen usw.) auch eine Anleitung? LG Birgit Ax
11.01.2013 - 10:17DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit - da hat damals unsere Übersetzerin wohl etwas vergessen. Wir kümmern uns darum, sobald die Sommerkollektion übersetzt ist. Entschuldigen Sie das Versehen!
14.01.2013 - 12:09
Love Glove#loveglovemittens |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir vettlingar eða ástarvettlingur úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað með mynstri með hjörtum. Stærð S - L. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-610 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið á úrtöku með 1 l á undan merki í hvorri hlið þannig: Setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, setjið l af hjálparprjóni fyrir aftan stykkið, prjónið 2 l slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir = 2 l færri. Fækkið lykkjum 1 sinni í hvorri hlið = 4 l færri í hverri umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 (= 6 l). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ÁSTARVETTLINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stroff á vettlingunum er prjónað hvort fyrir sig. Síðan er ástarvettlingurinn settur saman og prjónaður áfram sem eitt stykki. Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. ÁSTARVETTLINGUR: Fitjið upp 21 l á sokkaprjóna nr 6-7 með litnum crimson rauður. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff 1 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 9 l jafnt yfir (aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca aðra og 3. hverja l) = 30 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann til þess að koma í veg fyrir göt). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 7-8. Prjónið M.1 yfir allar l – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú 1 umf með rauður JAFNFRAMT er síðasta l felld af = 29 l. Setjið allar l á þráð. Prjónið 1 stroff fyrir vettling á sama hátt. Setjið stroffin saman á sokkaprjóna nr 7-8. Prjónið 1 umf sl yfir allar l = 58 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið eitt merki í 29. l og síðustu l í umf (= miðja að framan og miðja að aftan). Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í síðustu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5 sinnum = 38 l. Prjónið 1 umf án þess að fækka lykkjum. Setjið 2 ný merki í stykkið, í 10. l og í 29. l talið frá miðju að framan (= í hvora hlið). Í næstu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við nýju merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 8 sinnum = 6 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Festið vel. FRÁGANGUR: Saumið saman affellingar l kant í kant efst á stroffi. HEKLUÐ SNÚRA (einungis fyrir ástarvettling): Heklið 120 cm langa snúru með ll með 2 þráðum af litnum crimson rauður á heklunál nr 10. Snúran er saumuð föst að innanverðu á hvorn ástarvettling við hlið á þumalfingri. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VETTLINGUR: Fitjið upp 21 l á sokkaprjóna nr 6-7 með litnum crimson rauður. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff 1 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 3 l jafnt yfir (aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 7. hverja l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann til þess að koma í veg fyrir göt) = 24 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 7-8. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið M.1 yfir allar l – sjá útskýringu að ofan! Setjið eitt merki í 9. lykkju. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með litnum crimson rauður. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með merki fyrir þumalfingur. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Endurtakið útaukningu í næstu umf = 5 l fyrir þumal. Prjónið 2-3 umf án útaukninga. Setjið síðan 5 þumallykkjur á þráð. Fitjið upp 1 nýja l fyrir aftan l á þræði = 24 l. Setjið tvö merki í stykkið, í 1. l og í 13. l (= hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 24-26 cm er fækkið lykkjum hvoru megin við l með merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 5 sinnum = 4 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Festið vel. ÞUMALFINGUR: Setjið 5 þumallykkjur aftur til baka á sokkaprjóna nr 7-8. Prjónið upp 5 l aftan við þumalfingur = 10 l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til þumalfingurinn mælist 5-6 cm. Setjið tvö merki í þumalfingurinn, í 1. l og í 6. l (= hliðar). Í næstu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við l með merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í næstu umf = 2 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema spegilmynd. Setjið merki í 4. l fyrir útaukningu fyrir þumalfingur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #loveglovemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-610
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.