Fuhrer skrifaði:
Bonjour,pour ce modéle j'aurais voulusavoir on augmente des mailles ou on diminue???je pense qu'une erreur à été faite dans le texteon dit de rajouter des mailles et au total ces des diminutions qui doivent se faire merci pour le renseignement bonne journée
29.11.2009 - 15:36
DROPS Design NL skrifaði:
Hoi Carla. Ja, dat klopt. Gr. Tine
11.11.2009 - 08:52
Carla Koetsier skrifaði:
Hallo, een vraagje over het telpatroon. Klopt het dat je M2a maar 1 keer breit en M2b steeds herhaalt? Groet Carla
10.11.2009 - 16:08
Purple Mountain#purplemountainjacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með kaðlamynstri úr DROPS Snow. Stærð S-XXXXL.
DROPS Extra 0-554 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Í mynstri M.2 er lykkjufjöldi breytilegur frá 17 lykkjum til 27 lykkjur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. kantlykkju að framan, í næstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir lykkjuna sem var felld af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 35, 43, 51, 59 og 67 cm. STÆRÐ M: 37, 45, 53, 61 og 69 cm. STÆRÐ L: 36, 43, 50, 57, 64 og 71 cm. STÆRÐ XL: 38, 45, 52, 59, 66 og 73 cm. STÆRÐ XXL: 35, 43, 51, 59, 67 og 75 cm. STÆRÐ XXXL: 37, 45, 53, 61, 69 og 77 cm. STÆRÐ XXXXL: 37, 44, 51, 58, 65, 72 og 79 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. BAKSTYKKI: Fitjið upp 77-83-89-95-101-113-119 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með Snow. Prjónið 1. umferð þannig frá réttu: 1 kantlykkja, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju. Þegar stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10-11 cm skiptið yfir á hringprjóna 8. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 11-13-13-15-17-21-21 lykkjur jafnt yfir = 66-70-76-80-84-92-98 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74-76 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið = 64-68-74-78-82-90-96 lykkjur. ATH! Hér byrjar handvegurinn. Prjónið nú áfram í sléttprjóni með 3-3-4-2-3-3-4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92-95 cm prjónið nú 2 umferð garðaprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur af fyrir hálsmáli = 30-32-35-37-38-42-45 lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið 6 umferðir í garðaprjóni. Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 35-37-40-42-42-47-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 7 með Snow. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Prjónið 1. umferð frá réttu þannig: STÆRÐ S + M + L: 1 kantlykkja, 3-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3-4-5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3-4-5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan. STÆRÐ XL + XXL + XXXL + XXXXL: 1 kantlykkja, 2-3-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1-1-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1-1-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan. Þegar stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10-11 cm skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S + M + L: 1 kantlykkja, 3-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt eru auknar út til 6 lykkjur slétt með því að prjóna 2 lykkjur í hverja lykkju, 3-4-5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3-4-5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt eru auknar út til 6 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan. STÆRÐ XL + XXL + XXXL + XXXXL: 1 kantlykkja, 2-3-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt eru auknar út til 6 lykkjur slétt með því að prjóna 2 lykkjur í hverja lykkju, 1-1-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt eru auknar út til 6 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt eru auknar út til 6 lykkjur slétt, 1-1-3-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt eru auknar út til 6 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan. Nú eru 41-43-46-54-55-59-62 lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: STÆRÐ S + M + L: 1 kantlykkja, 3-3-4 lykkjur brugðiðr, M.1 (= 6 lykkjur), 0-1-2 lykkjur brugðið, M.2a (= 21 lykkjur), 0-1-2 lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur) og 4 kantlykkjur að framan. STÆRÐ XL + XXL + XXXL + XXXXL: 1 kantlykkja, 2-3-3-4 lykkjur brugðið, M.1 (= 6 lykkjur), 1-1-3-4 lykkjur brugðið, M.1, M.2a (= 21 lykkjur), M.3 (= 6 lykkjur), 1-1-3-4 lykkjur brugðið, M.3 og 4 kantlykkjur að framan. Þegar mynsturteikning M.2a hefur verið prjónuð til loka á hæðina er haldið áfram með M.2b. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74-76 cm fellið af 1 lykkju í hlið = 40-42-45-53-54-58-61 lykkjur. ATH! Hér byrjar handvegurinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður en 3-3-4-2-3-3-4 lykkjur í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78-80 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 4 kantlykkjur að framan í annarri hverri umferð alls 4-5-5-6-6-7-7 sinnum = 44-47-50-59-60-65-68 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 78-81-84-87-90-93-95 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkið 6-6-6-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan og útauknum lykkjum) = 38-41-44-47-48-53-56 lykkjur. Prjónið 3 umferðir í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Fellið nú af síðustu 30-32-35-37-38-42-45 lykkjur fyrir öxl = 8-9-9-10-10-11-11 lykkjur eftir á prjóni fyrir kraga. Prjónið út umferðina. Prjónið nú kragann þannig (umferð 1 = frá röngu): * Prjónið fram og til baka yfir 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur, prjónið fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið fram og til baka yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 3-3-3-3-4-4-4 cm frá öxl, mælt þar sem stykkið er minnst. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ATH! Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 28-30-32-32-34-34-36 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 7 með Snow. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, endurtakið með 28-13-13-8-8-5-5 cm millibili alls 2-3-3-4-4-5-5 sinnum = 32-36-38-40-42-44-46 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-41-40-39-38-35-34 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af 4-5-5-5-5-6-6 lykkjur í hvorri hlið, endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 2 sinnum = 16-16-18-20-22-20-22 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #purplemountainjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-554
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.