Heidi skrifaði:
Jeg har også lagt opp 171masker, beregner 19 masker i hver rapport, totalt 9 rapporter. Når jeg strikker mønstret minker det 4 masker pr. rapport de første rundene. Jeg sitter med igjen med 135 masker og skulle ha hatt 117 iflg. oppskrifta. Jeg skjønner ikke hvor jeg skal minke maskeantallet?
14.11.2009 - 17:02
Christin skrifaði:
Helt superläckra. Ska sticka dessa på momangen till min dotter.
05.11.2009 - 22:55
DROPS Design skrifaði:
Kanten opp er 58 cm mens under kneet måler strømpen 40 cm.
26.10.2009 - 15:22
Tove skrifaði:
Strømpene blir veldig vide øverst, stemmer maskeantallet i oppskriften? (Har sjekket strikkefastheten, og bruker pinnenr. 2,5)
25.10.2009 - 12:49
Emelie skrifaði:
Jag är ju inte alls väl bevandrad i stickningens paradis men såna här vackra strumpor får mig genast att ändra på den saken... :)
07.10.2009 - 19:35
Zaza skrifaði:
Vraiment superbe, j'adore!
21.09.2009 - 13:48
DROPS Design skrifaði:
Diagrammet leses nedenfra og opp.
15.09.2009 - 08:47
Marit skrifaði:
Du skal hele tiden strikke mønster 1 over m1, og mønster 2 over m2. Lykke til videre Marit
14.09.2009 - 18:15
Maja skrifaði:
Da er i så fall diagramet M1A og M2a Oppned. For jeg oppfattet diagramet som at det er de 9 øverste i m1a som skal være på 1. pinne.
14.09.2009 - 14:26
DROPS Design skrifaði:
Første pinne på m1a har 13 maker, første pinne på m2a har 6 masker = 19 masker. 171 / 19 = 9.
14.09.2009 - 11:00
Elegant Socks#elegantsocks |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaðir háir sokkar með köðlum, gatamynstri og silkiborða úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 117-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-7-7 l eru eftir, 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-7-7 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-6-6 l eru eftir, 2 l snúnar slétt saman, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-6-6 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við. Haldið úrtöku áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l í hvert skipti áður en prjónaðar eru 2 l saman, þar til 13-15-15 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 152-171-190 l á hringprjóna nr 2,5 með Fabel Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað M.1a og M.2a til skiptis allan hringinn. Þegar M.1a og M.2 a hefur verið prjónað eru 104-117-130 l á prjóni og stykkið mælist ca 9 cm. Haldið áfram með M.1b yfir M.1a og M.2b yfir M.2a Þegar stykkið mælist 20 cm fækkar önnur hver brugðna eining úr 3 lykkjur brugðið í 2 lykkjur brugðið = 96-108-120 l. Þegar stykkið mælist 25 cm fækkar brugðnu einingunum sem eftir eru frá 3 lykkjur brugðið í 2 lykkjur brugðið = 88-99-110 l. Þegar stykkið mælist 30 cm fækkar önnur hver brugðna eining frá 2 lykkjur brugðið í 1 lykkja brugðið = 80-90-100 l og þegar stykkið mælist 35 cm fækka brugðnu einingunum sem eftir eru úr 2 lykkjur brugðið í 1 lykkju brugðið = 72-81-90 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 54-56-58 cm. Setjið fyrstu 39-39-48 l á þráð (= ofan á fæti) og þær 33-42-42 l sem eftir eru er haldið eftir fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur JAFNFRAMT í umf 1 frá réttu, prjónið lykkjur yfir kaðla slétt saman 2 og 2 = 21-27-27 l. Þegar hællinn mælist 5-5½-6 cm setjið 1 prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 l hvoru megin við hæl og þær 39-39-48 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 78-82-95 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir 39-39-48 l á fæti og sléttprjón yfir næstu l – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur Á UNDAN 39-39-48 l á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið fyrstu 2 lykkjur Á EFTIR 39-39-48 l á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 6-6-9 sinnum = 66-70-77 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5 cm að loka máli). Prjónið 1 umf sléttprjón yfir allar l – JAFNFRAMT eru lykkjur yfir köðlum prjónaðar saman 2 og 2 = 54-58-62 l. Setjið prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 27-29-31 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á UNDAN prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman. Á EFTIR prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-4-4 sinnum og síðan í hverri umf 7-8-9 sinnum = 10 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þræðið 1 silkiborða í gataröð á sokknum, ca 9 cm frá efri brún. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elegantsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.