Annelies Rennert skrifaði:
Hallo, wieder mal eine Frage. Würde an diese Jacke gerne eine Kapuze anstricken wie verfahre ich hier. Bitte um eine Info. Mfg. A. Rennert
02.04.2017 - 10:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rennert, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Geschmack anpassen, aber gerne finden Sie Inspiration von ähnlichen Modellen mit Kapuzen. Ihr DROPS Laden kann auch Ihnen mal damit helfen. Viel Spaß beim stricken!
03.04.2017 - 10:47
Annelies Rennert skrifaði:
Hallo,, ich benötige wieder mal Hilfe.habe die Jacke angefangen. Wie verstehe ich nach 3 cm 1 Reihe rechts auf rechts stricken? Dann noch diese vielen Maschen abnehmen, wofür? Danke Annelies
30.03.2017 - 14:47DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rennert, Sie sollen jetzt 1 Hinreihe (= von der Vorderseite) mit rechten M. stricken, gleizeitig Maschen abnehmen, damit die Breite korrekt wird. Viel Spaß mit stricken!
30.03.2017 - 15:59
Giulia skrifaði:
Al termine dello sprone come fa il lavoro a misurare circa 27-29-33 (37-40) cm che dovrebbe essere la misura finale con il collo? E se così fosse non occorrerebbe un bottone in più? Forse un errore? Grazie.
11.11.2016 - 12:38DROPS Design svaraði:
Buongiorno Giulia, chiediamo una verifica delle misure alla sezione design. Grazie per la segnalazione, Buon lavoro!
11.11.2016 - 13:00
Sirkka Räsänen skrifaði:
Eikö ensimmäinen kerros nurjalla neulota oikein eikä nurin?
16.08.2016 - 10:32DROPS Design svaraði:
Hei! Tämän ohjeen ensimmäinen krs neulotaan nurin.
22.08.2016 - 16:15
Birgitta Paavilainen skrifaði:
Teen Baby drops 18-4 jakkua koko 1/3 neuletiheys pitäisi olla 20sx26krs mulla on 23sx32krs, pitääkö tehdä jotain muutoksia että tulee sopiva vai purkaa ja vaihtaa isommat puikot?
18.04.2016 - 09:29DROPS Design svaraði:
Hei! Ennen kuin aloitat uuden neuletyön sinun kannattaa aina neuloa mallitilkku ja tarkistaa neuletiheys! Vaihda paksumpiin puikkoihin, koska muuten neuleestasi voi tulla liian pieni.
19.04.2016 - 13:36Ulla skrifaði:
"Total wiederholen" ist falsch, es sollte sein ""total stricken"
20.12.2015 - 08:42
Annalisa skrifaði:
Hallo, in der Antleitung für die Hose (Größe 12/18 Monate) verstehe ich nicht, wie ich nachdem das Strickwerk 15 cm lang ist, zunehmen soll. Ich habe 2x52=104 M auf der Nadel. Dann nehme ich zweimal eine M zu und wiederhole dies 9 mal in jeder 2. Reihe. Also Insgesamt 20M Zunahme. Nach der Zunahme soll die Maschenzahl jedoch 122 M betragen, nicht 124. Wo ist der Denkfehler?
19.12.2015 - 23:18DROPS Design svaraði:
Sie arbeiten die Zunahmen nur 9 x ingesamt ("total"), nicht 10 x ingesamt. Sie nehmen also nur 18 M zu, nicht 20.
29.12.2015 - 19:35
Maria Kuusniemi skrifaði:
Jakkuosassa (Koko 86/92) sanotaan, että kavennukset tehdään tasavälein 41s. Tarkoittaako se että joka 41. silmukan kohdalla kavennetaan eli kavennuksia tulee yhdessä kerroksessa useampia?
14.11.2015 - 20:58
Maria Kuusniemi skrifaði:
Jakkuosassa (Koko 86/92) sanotaan, että kavennukset tehdään tasavälein 41s. Tarkoittaako se että joka 41. silmukan kohdalla kavennetaan eli kavennuksia tulee yhdessä kerroksessa useampia?
14.11.2015 - 20:58DROPS Design svaraði:
Ohjeessa lukee, että kavennetaan tasavälein 41 s, eli samalla kerroksella kavennetaan yht. 41 silmukkaa.
16.11.2015 - 13:04
Lena Skaarud skrifaði:
Bukse: skal ikke linning brettes, sette i strikk?
09.11.2015 - 17:57DROPS Design svaraði:
Hej. Nej det ska den inte. Vrangborden ska vara nok till att hålla byxan uppe. Lycka till!
11.11.2015 - 12:08
Vanilla Sprite#vanillaspritejacket |
||||||||||
|
||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með laskalínu og köðlum á ermum ásamt buxum úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 18-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan með því að prjóna aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og síðan er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 8, 13 og 18 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 2, 8, 13, 18 og 23 cm. STÆRÐ 2 ára: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 2, 9, 16, 23 og 29 cm. Fellið einnig af fyrir einu hnappagati í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 139-157-169 (187-199) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan. Haldið svona áfram JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram hægri kant að framan – sjá HNAPPAGAT að ofan. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 29-35-35 (41-41) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum í kanti að framan) = 110-122-134 (146-158) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 3 umferðir slétt, haldið síðan áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið næstu umferð þannig (frá réttu): 26-29-32 (35-38) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 42-48-54 (60-66) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 26-29-32 (35-38) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-42-42 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) lykkjur jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan þannig: 11-12-13 (14-15) lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, M.1 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið og 11-12-13 (14-15) lykkjur slétt. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-6. (6.-6.) hverri umferð alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 34-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt en prjónið mynstur M.2 í stað M.1. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 162-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli framstykkis, bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið áfram fram og til baka – JAFNFRAMT í umferð 3 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin fyrir laskalínu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 10-11-12 (13-15) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 10-11-13 (14-15) lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 58-64-72 (82-84) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setjið lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5 og takið að auki upp 12 til 18 lykkjur í hvorri hlið framan í hálsmáli = ca 82 til 120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT eru prjónaðar 4 lykkjur yfir M.1 og M.2 á ermum saman tvær og tvær. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 73-73-79 (79-85) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið með 5 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá röngu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin hnappagötin í kanti að framan. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm er fellt af. VASI: Fitjið upp 12-16-16 (20-20) lykkjur á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-5-5 (6-7) cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 16-20-20 (24-24) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til vasinn mælist 6-7-7 (8-9) cm og fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum, saumið tölur í og saumið vasann á peysuna – vasinn á að sitja 6-6-7 (7-8) cm frá neðri kanti og mitt á milli hliðarsauma og kanti að framan. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Buxurnar eru prjónaðar í hring á hringprjón ofan frá og niður. BUXUR: Fitjið upp 120-126-132 (138-144) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið í 8-9-9 (10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 24-26-28 (26-28) lykkjur jafnt yfir = 96-100-104 (112-116) lykkjur. Setjið prjónamerki við miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (= 48-52-52 (56-58) lykkjur á milli prjónamerkja. Prjónið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-14-15 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur við miðju að framan - aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónið hana slétt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru felldar af 4 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð og lykkjur fyrir hina skálmina á sokkaprjón 4,5. SKÁLM: = 53-55-57 (62-64) lykkjur. Prjónið sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innanverðu á skálm. Þegar skálmin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-3-4 (5-6) cm millibili alls 4 sinnum = 45-47-49 (54-56). Þegar skálmin mælist 10-13-16 (19-25) cm er skipt yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 9-7-11 (6-10) lykkjur jafnt yfir = 54-54-60 (60-66) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið þar til skálmin mælist 18-22-25 (29-35) cm. Fellið síðan laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið hina skálmina alveg eins og sú fyrri. Allar buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm. FRÁGANGUR: Saumið sama op á milli skálma. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vanillaspritejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.