Karine skrifaði:
Jeg må få opplyse dere om at str 62/68 IKKE er 6-9mnd! det er faktisk 2-4mnd! det er veldig dumt at dere har feile størrelser i flere av oppskriftene deres!
05.09.2011 - 21:12
Mille skrifaði:
Fantastisk og nem. Jeg har dog kun brugt 100 g fabel i den mindste størrelse - ikke 150 som angivet.
30.05.2011 - 18:37
Ulrike skrifaði:
Wie zuckersüß! Ich habe das Jäckchen letztes Jahr (in Originalfarbe) für meinen Neffen gestrickt, als Geschenk zur Geburt. Jetzt bin ich selbst schwanger - ich glaub, ich möchte es nochmal stricken :-) Aber in welcher Farbe diesmal...?
13.05.2011 - 17:21
DROPS Deutsch skrifaði:
Grösse 62/64 ist die zweite Grössen, also die zweite Zahl in der Zahlenreihe.
26.01.2011 - 09:46
Daniela skrifaði:
Hallo, völlig verwirrt, wie viele Maschen brauche ich jetzt wenn ich die Jacke für die Größe 62/64 stricken will. Habe schon seit Jahren nicht mehr gestrickt, und bin mit der Anleitung etwas überfordert. Wäre schön, wenn mir jemand helfen könnte.
25.01.2011 - 11:01
DROPS Design skrifaði:
Hi Eva. Lots of questions. We kindly ask you to go to the shop where you bought the yarn. When you buy Garnstudio yarn, you can be sure that you have bought yarn from a shop that are specialized on DROPS patterns. Our shops are always there to give their customers help also by phone or email.
13.12.2010 - 20:26
Eva skrifaði:
I'm so confused! First, I don't understand the 'repeat inc on every other and 3rd row'. I did this and now the piece is starting to look triangular - shouldn't 1 side be straight and 1 side go on an angle? Then it says to 'work 10 rows'. But in the picture, the sweater seems to end in a point towards upper middle (where you tie it). Help!
11.12.2010 - 19:37
Yvonne skrifaði:
Many thanks
03.05.2010 - 19:45
DROPS Design skrifaði:
Yvonne, mid front is front edge which is at the beginning of the row.
03.05.2010 - 18:56
Yvonne skrifaði:
Cast on 1 st towards mid front ? Is that in the middle of the row or at the beginning of the row?
01.05.2010 - 15:16
Tender Dreams#tenderdreamsjacket |
|
|
|
Prjónuð vafningspeysa fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS Fabel og DROPS Alpaca.
DROPS Baby 18-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á öðru framstykkinu, fitjið upp l fyrir ermi og prjónið upp að öxl. Prjónið hitt framstykkið og tengið saman bæði framstykkin og prjónið niður bakstykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI. Fitjið laust upp 29-34-38 (41-44) l á hringprjóna nr 3 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - í hverri umf – JAFNFRAMT í umf 2 er fitjuð upp 1 ný l við miðju að framan. Endurtakið útaukningu til skiptis með 2 umf og 3 umf millibili, alls 18-20-24 (28-30) sinnum = 47-54-62 (69-74) l. Eftir síðustu útaukninguna eru prjónaðar 10 umf slétt. Stykkið mælist nú ca 11-12-15 (17-18) cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umf er fækkað um 1 l við miðju að framan með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman. Endurtakið úrtöku í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og röngu): Alls 0-0-7 (19-12) sinnum og síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. frá réttu): Alls 28-31-29 (21-32) sinnum (nú er felldar af 28-31-36 (40-44) l). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-20 (21-23) cm eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf frá hlið fyrir ermi: 6 l 2-2-3 (3-3) sinnum, 8 l 1-1-1 (2-3) sinnum og 21-22-20 (23-24) l 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 60-65-72 (86-96) l á prjóni fyrir öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm er sett 1 prjónamerki = miðja á öxl – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok umf við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umf við hálsmál = 64-69-76 (90-100) l. Setjið allar l á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vistra framstykki, nema spegilmynd. BAKSTYKKI: Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjóna, fitjið upp 12-12-16 (16-20) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóna = 140-150-168 (196-220) l. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXL. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6½-7½-8 (8½-9) cm er lykkjum fækkað fyrir erma-l. Úrtakan byrjar í hverri umf, í báðum hliðum þannig: 21-22-20 (23-24) l 1 sinni, 8 l 1-1-1 (2-3) sinnum ig 6 l 2-2-3 (3-3) sinnum = 58-66-76 (82-88) l á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með Alpaca og heklunál nr 2,5 í kringum allt opið á peysunni þannig: Heklið 1 fl * 2 ll, hoppið yfir 2 l /4 umf garðaprjón, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, þegar komið er að oddi á framstykki er heklað band til þess að hnýta peysuna saman þannig: Heklið 1 fl í oddinn, heklið síðan ll í ca 25 cm, snúið við og heklið 1 kl í ll til baka, heklið nú 1 fl í aftur í oddinn á framstykki, haldið áfram að hekla kantinn í kringum peysuna fram að oddi á hinu framstykkinu, heklið band eins og á fyrra framstykki, heklið síðan í kringum restina á peysunni. Heklið á sama hátt op í ermum. Heklið nú band, alveg eins og í hvoru horni, innan við sauminn í hægri hlið og annað band utan við sauminn í vinstri hlið – passið uppá að böndin verði í sömu hæð og hornin á framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tenderdreamsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.