Petra skrifaði:
Super!
20.06.2008 - 12:21
Inger skrifaði:
Roliga. Har korgen full av restgarner.
13.06.2008 - 21:38
Yvonne skrifaði:
These will be so fun to make
12.06.2008 - 21:28
Karin skrifaði:
Gammelt velkjent mønster fram til heder og ære igjen! HAr mistet mitt gamle mønster på slike tøfler, håper dere kan glede mange med å legge ut dette mønsteret!
09.06.2008 - 22:10
Dodo skrifaði:
Diese "Socken" sind wirklich sehr originell auch oder gerade wegen der tollen Farbzusammenstellung. Super!!
07.06.2008 - 13:12
DROPS Design NL skrifaði:
Deze patronen maken deel uit van de verkiezing van de nieuwe collectie. Patronen zijn pas beschikbaar vanaf juli.
06.06.2008 - 11:45
Evers skrifaði:
Waarom kan ik deze niet printen
06.06.2008 - 11:31
Shirley skrifaði:
The elfin slippers are charming.
06.06.2008 - 04:53
Iviva skrifaði:
Je les ferai ! Il me les faut !
02.06.2008 - 22:01
Susanne skrifaði:
Rigtig smarte hjemmefutter.
02.06.2008 - 19:12
Court Jester |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðar tátiljur í garðaprjóni úr 2 eða 8 litum DROPS Snow. Stærð 35 - 44.
DROPS 109-57 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SKIPT UM ÞRÁÐ: Byrjið ca 25 cm inn í hverri dokku sem er notuð. Þráðar endinn er notaður síðar fyrir frágang. MÆLING: Mikilvægt er að halda prjónfestunni og hafa mælinguna nákvæma svo að ferningarnir verði ferkantaðir. Hornréttu hliðarnar á 1 ferningi x 2 jafngildir lengd á tátiljunni í lokin. LITUR: Tátilja með 8 litum er prjónuð eftir litakorti (M.1A og B) sem sýnir ferningana í mismunandi litum. M1.A = Tátilja 1 M.1B = Tátilja 2 GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. FERNINGAR: Sjá M.2 fyrir númer á ferningum. FRÁGANGUR: Sjá M.2 fyrir frágang. M.3 sýnir staðsetningu á ferningum eftir frágang. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í ferningum og saumað saman í lokin. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ! TÁTILJA: Fitjið upp 10-11-12 lykkjur á prjón 7 með litnum fjólublár (fyrir tátilju með 8 litum – sjá útskýringu að ofan). Lesið MÆLING! Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 8½-9-10 cm (= ferningur 1), skiptið yfir í litinn plóma og prjónið garðaprjón í 8½-9-10 cm (= ferningur 2). Haldið áfram að prjóna ferninga til skiptis með litnum fjólublár þar til prjónaðir hafa verið 6 ferningar á eftir hverjum öðrum (= 3 fjólubláir og 3 plóma). Stykkið mælist nú 51-54-60 cm, fellið af. Takið síðan upp 10-11-12 lykkjur í hægri hlið á ferningi 2 með fjólublár (= ferningur 7). Prjónið garðaprjón í 8½ -9-10 cm, fellið af. Takið upp 10-11-12 lykkjur í vinstri hlið á ferningi 6 með plóma (= ferningur 8) og prjónið alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið tátiljuna saman og saumið saman kant í kant eftir M.2 – sjá útskýringu að ofan. Sólinn á tátiljunni verður 24-26-28 cm langur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum opið á tátiljunni með lit að eigin ósk og með heklunál nr 8. Byrjið mitt að aftan og heklið hringinn þannig: * 1 fastalykkja, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 109-57
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.