Irene skrifaði:
Hei. Jeg vil gjerne strikke den som kjole. Hvor i oppskriften forlenger jeg da?
01.08.2014 - 17:38
Slávka skrifaði:
Dobrý večer, bohužel nemohu najít k těmto šatům český návod,ani rozkres, mohu o něj poprosit?Děkuji Búdová
22.11.2013 - 17:22DROPS Design svaraði:
Dobrý den, český návod si můžete přepnout zvolením jazyka v menu pod hlavní fotkou - je u něj i schéma rozkres vzorku s českými vysvětlivkami. Hodně zdaru!
22.01.2014 - 16:05BELINDA L GAFF skrifaði:
Can I knit this in 4ply cotton? How do I adjust the pattern?
15.10.2012 - 04:04DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Gaff, this pattern request a tension of 20 sts = 10 cm. Happy knitting!
30.11.2012 - 13:43
Pernille skrifaði:
Der står: Samtidig med den 4.-4.-3.-3.-2.-2. indtagning starter også indtagningen til indsnit ved de andre mærketrådene. Dvs jeg skal tage ind i str L for og bag samtidig med den 3., 4., 5., 6. og 7. indtagning af siden. Det er da 4 masker 5 gange.
08.05.2012 - 07:50DROPS Design svaraði:
Det står "totalt 4 ggr" i slutet på avsnittet! Så siste gang du feller i siderne felles det ikke ved de andre merkene.
08.05.2012 - 23:28
Pernille skrifaði:
Efter alle indtagningerne har jeg i str L kun 176 masker på pinden og ikke 180 masker som der står. Jeg har 224 masker og tager 14 masker ind i hver side, 10 masker ind foran og 10 masker ind bagpå. Det er 48 masker der tages ind og det giver 224-48=176masker tilbage. Hvor skal jeg tage de 4 masker ud så mønsteret kommer til at passe?
07.05.2012 - 09:26DROPS Design svaraði:
Vid de 2 merkene i hver side felles 2 m i hver side 7 gange, så det er 28 m som felles. Men ved de 4 merkene foran og bag så felles 1 m vid hvert merke totalt 4 ggr. Så det er 4 m 4 gange, alltså 16 m. 224-28-16 = 180 m.
07.05.2012 - 22:16
Alice skrifaði:
I am making the XXL, and I am at the point where you insert the marking threads (MT). There are currently 256 stitches on the needles. The MTs are inserted after 41+45+41+41+45+41 stitches, which adds up to 254, so I have two extra stitches on the last section.
30.04.2012 - 06:00DROPS Design svaraði:
The markers each side is put into a stitch. There was a mistake in the translation, we have now edited. Thank you.
30.04.2012 - 23:54
Drops Design skrifaði:
Jo i M.3 tager du 2 masker ind for hver gang du strikker diagrammet. God fornøjelse!
21.04.2010 - 08:40
Irene Banach skrifaði:
Jeg forstår ikke hvordan der kan være 208 masker på pinden når længden er 15 cm. jeg har jo ikke taget ind. Hjælp
20.04.2010 - 15:59
Zahide skrifaði:
Deze jurk kan men ook als tuniek dragen met een leuk t-shirt en een legging/jeans er onder. Mijn complimenten voor de duidelijke patroon schema's. Ik vind het zeer handig dat zowel de heengaande en teruggaande naalden getekend wordt! Ga zo door!
08.03.2009 - 01:29
Drops Deutsch skrifaði:
Das Diagramm zeigt alle R. von der Vorderseite.
15.12.2008 - 09:35
Dancing Jewels |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með áferðamynstri úr DROPS Muskat. Stærð XS-XXL
DROPS 106-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur með garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. MÆLING: Vegna þyngdar á stykkinu verður að gera alla lengdarmælingu þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður kjóllinn allt of langur / síður við mátun. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. Lesið MÆLING! KJÓLL: Fitjið laust upp 198-216-234-252-270-288 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Haldið áfram með M.1 fjórum sinnum á hæðina, prjónið síðan M.2 og síðan M.3. Nú mælist stykkið ca 15 cm og það eru 176-192-208-224-240-256 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur, setjið prjónamerki-1, prjónið 33-35-37-39-43-45 lykkjur, setjið prjónamerki-2, prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur, setjið prjónamerki-3 mitt í næstu lykkju (= í hlið), prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur, setjið prjónamerki-4, prjónið 33-35-37-39-43-45 lykkjur, setjið prjónamerki-5, prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur og setjið prjónamerki-6 mitt í síðustu lykkju (= í hlið). Í hæstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki-3 og 6 (þ.e.a.s. þau prjónamerki sem eru í hliðum) – sjá ÚRTAKA-1 að ofan. Haldið áfram með þessa úrtöku í 6.-6.-7.-7.-9.-9. hverri umferð alls 8-8-7-7-6-6 sinnum. JAFNFRAMT með 4.-4.-3.-3.-2.-2. úrtöku byrjar einnig úrtaka við hin prjónamerkin þannig: Fækkið lykkjum á eftir 1. og 4. prjónamerki og á undan 2. og 5. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 að ofan. Endurtakið þessa úrtöku í 6.-6.-7.-7.-9.-9. hverri umferð (sömu umferðir og fækkað var í hliðum) alls 4 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 128-144-164-180-200-216 lykkjur og stykkið mælist ca 40-40-41-41-42-42 cm. Haldið áfram í sléttprjóni, takið frá 1.,2.,4. og 5. prjónamerki – JAFNFRAMT í umferð 1 í stærð XS og XL: fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir á framstykki. Stærð M: Fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir á bakstykki (þetta er gert til að það komi 1 lykkja við miðju að framan og að aftan á stykki og að lykkjufjöldinn gangi upp í M.2) = 126-144-162-180-198-216 lykkjur (ekki er lykkjum fækkað í stærð S, L og XXL). Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm prjónið M.1 3 sinnum á hæðina – ATH: Passið uppá að örin í mynsturteikningu verði við miðju að framan. Prjónið M.2 og síðan M.4 þannig að mynstrið komi beint ofan við M.1 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. (Eftir M.4 eru aftur jafn margar lykkjur að framan og að aftan þar sem útaukning í M.4 kemur 1 sinni oftar á bakstykki og á framstykki í stærð XS og XL og 1 sinni oftar á framstykki en á bakstykki í stærð M). Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-57-58-60-61-62 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 3 minnstu stærðum 3-2-1 sinni með 2-2-3 cm millibili = 156-172-188-204-224-244 lykkjur (= 77-85-93-101-111-121 lykkjur á framstykki og bakstykki + 1 lykkja í hvorri hlið). HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm eru prjónaðar 4 umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 7 lykkjur við miðju að framan, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fellið síðan af miðju lykkjuna og stykkið er prjónað áfram fram og til baka frá miðju að framan. Haldið áfram með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við háls og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við þær – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 11-11-12-12-13-13 sinnum og síðan 1 lykkja í 4. hverri umferð 6 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 64-65-66-67-68-69 cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir 13-13-15-17-19-21 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki + 6-6-7-8-9-10 lykkjur hvoru megin við þær), aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af miðju 7-7-9-11-13-15 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2: Í annarri hverri umferð 5-7-8-9-11-13 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 13-15-16-18-19-21 lykkja eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: = 71-79-85-91-99-107 lykkjur. Fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 61-65-69-73-77-81 lykkjur. Haldið áfram með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur, síðan eru felldar af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur. Haldið áfram með 3 lykkjur garðaprjón við hálsmál – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 5 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 13-15-16-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 4 í kringum handveg og hálsmál þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm og festið með 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-*. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 106-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.