Jonna skrifaði:
Ohjeesta puuttuu ennen helmaresoria nurja ja oikea kerros.
19.11.2020 - 21:35
Ma skrifaði:
The pattern is Very difficult to understand for beginner.
13.10.2019 - 09:38
Mia skrifaði:
I love garn studio’s design however very difficult to understand with way of writing pattern.wish if pattern is written like US pattern which step by step all Row.
13.10.2019 - 09:37
Fabienne Borel skrifaði:
Bonjour, j'aimerais faire ce modèle pour un teckel, pouvez-vous m'indiquer la dimension de l'encolure car je pense que je dois adapter toutes les mesures pour que ce ne soit pas trop grand. Pour donner un ordre d'idée, le poitrail fait 38 cm et le cou 27 cm. Merci beaucoup de votre aide.
03.02.2019 - 17:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Borel, nous n'avons pas d'autres mesures que celles indiquées et ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chaque modèle à chaque demande. Pour toute assistance complémentaire, n'hésitez pas à contacter votre magasin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
04.02.2019 - 12:52
Jess skrifaði:
Rozmiar M- Jak długa od góry (nie wliczając sciagacza) ma być robótka żeby podzielić ja na brzuch i nogi? Czy to ma być 11cm?
24.11.2018 - 00:16DROPS Design svaraði:
Witaj Jess! W rozmiarze M musisz przerobić od ściągacza jeszcze 13 cm (31-18=13) i dopiero wtedy dzielisz robótkę. Pozdrawiamy (także pupila:) !
26.11.2018 - 14:27
Ina Torne skrifaði:
Ich verstehe gegen Ende vorletzter Absatznicht, was gemeint ist mit "und die Arbeit hin und zurück fertig stricken." Wie viele Runden? Weieter dann: Wo soll mit dem Bündchen weiter gestrickt werden??? Insgesamt etwas wirrer Aufbau der Anleitungen, sie könnten übersichtlicher aufgebaut sein mit Reihenangaben!!! Das war ein Kommentar... mfg Ina
10.11.2016 - 21:38DROPS Design svaraði:
Liebe Torne, nachdem Sie 5-6-7 cm Bündchen in der Runde gestrickt haben, dann müssen die mittlere 6-10-14 M (Bauch) abgekettet werden, dann weiter in Bündchen hin- und zurückstricken (= nicht mehr in der Runde), gleichzeitig werden 2 Maschen am Anfang jeder Reihe 3-4-5 x abgekettet (= 22-26-30 M übrig). Viel Spaß beim stricken!
11.11.2016 - 10:01
Margaretha Nilsson skrifaði:
Hej! Jag undrar om detta mönster skall stickas runt på rundstickan eller skall man sticka fram och tillbaka på rundstickan. Tacksam för snabbt svar så jag kan börja sticka :-) Mvh Margaretha
31.03.2015 - 20:13DROPS Design svaraði:
Hej Den stickas runt på rundsticka mesta delen, men under magen stickas det fram och tillbaka. Lycka till!
15.05.2015 - 09:52
Mindy skrifaði:
I am confused about this pattern. it is Mitt from the neck down but I do not see any place in the pattern where it makes the leg holes. can you please let me know how this is done?
15.06.2013 - 22:33DROPS Design svaraði:
Dear Mindy, you are correct, it starts from the neck down, then when piece measures 26-31-36 cm [10 ¼”-12 ¼”-14 1/4”], you will work a round at the same time putting sts for legs onto a st holder and caston new sts on same row to continue body. Happy knitting!
17.06.2013 - 10:20
Dee Dee Jones skrifaði:
This is my first time working your pattern. I need to know if you useonly circular needle or does cn mean long+double pointed needle. I think that I use only circular needle
27.12.2012 - 01:56DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Dee Dee Jones, for this pattern you will need a short circular needle (15 3/4" long) + double pointed needles for the legs. Happy Knitting!
29.12.2012 - 18:05
Valbjørg skrifaði:
Jeg har strikket denne, og den fungerer veldig bra til min Bichon Frise. Men jeg laget et knapphull over 4 m, 15 cm fra oppleggskanten, midt oppå genseren. Hun bruker sele og kan da ha genseren utenpå selen. Bruker man vanlig halsbånd, så tilpass plassering av knapphull etter det.
19.09.2012 - 12:50
Winter Woof |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað frá skotti að hálsi. Stærð XS-L.
DROPS 102-44 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið er út á hvorri öxl þannig: Aukið út á undan brugðnu lykkjunni (á undan 2 lykkjur slétt, mitt á öxl) og á eftir brugðnu lykkjunni (á eftir 2 lykkjur slétt, mitt á öxl). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið. Aukið er út um 2 lykkjur á hvorri öxl (= 4 lykkjur í hverri útauknings umferð), það verða fleiri og fleiri lykkjur brugðið á hvorri öxl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring ofan frá og niður, berustykkið skiptist fyrir opi fyrir framfætur og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, eftir það er stykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum yfir bakstykki. Síðan er prjónað stroffprjón í hring neðst á peysunni. Í lokin er prjónað í hringum framfætur í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 28-40-48-56 lykkjur á sokkaprjón / hringprjón 6 með DROPS Snow. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ XS - S - L: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. STÆRÐ M: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram í stroffprjóni í 6-6-8-8 cm, byrjun á umferð er mitt undir magastykki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir í sokkaprjóna / hringprjón 7, prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki til að mæla stykkið frá. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1-1-3-5 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= mitt á öxl), 2 lykkjur brugðið, 14-26-30-34 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= mitt á öxl), 2 lykkjur brugðið og 1-1-3-5 lykkjur slétt. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 6 lykkjur í stroffprjóni á hvorri öxl – lesið ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju í hverri umferð alls 7-7-8-7 sinnum, eftir það í 2. hverri umferð alls 0-1-2-4 sinnum = 56-72-88-100 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 5-6-8-10 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Prjónið 3-5-7-9 lykkjur slétt (hálft magastykki), prjónið næstu 16-18-24-26 lykkjur slétt og setjið þær síðan á þráð fyrir framfót, prjónið 18-26-26-30 lykkjur slétt (bakstykki), prjónið næstu 16-18-24-26 lykkjur slétt og setjið þær síðan á þráð fyrir framfót og prjónið síðan þær 3-5-7-9 lykkjur sem eftir eru í umferð (hálft magastykki). Setjið 1 nýtt prjónamerki til að mæla fram- og bakstykki frá, setjið það í mitt bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru prjónaðar 2 umferðir fram og til baka yfir lykkjur frá magastykki þannig: Prjónið fyrstu 3-5-7-9 lykkjur slétt, snúið stykkinu. Prjónið 6-10-14-18 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið næst 3-5-7-9 lykkjur slétt, setjið einn merkiþráð hér – byrjun á umferð (= mitt undir maga). Nú er prjónað í hring frá réttu þannig: Prjónið 3-5-7-9 lykkjur slétt, fitjið upp 2-4-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 18-26-26-30 lykkjur slétt, fitjið upp 2-4-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 3-5-7-9 lykkjur slétt = 28-44-52-64 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til fram- og bakstykki mælist 3-6-8-10 cm frá prjónamerki. Prjónið yfir fyrstu 3-6-8-10 lykkjur og setjið þær á þráð saman með síðustu 3-6-8-10 lykkjur í umferð (6-12-16-20 lykkjur mitt undir magastykki). Prjónið sléttprjón út umferðina, snúið stykkinu. Nú er prjónað fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu. Haldið áfram fram og til baka eins og útskýrt er að ofan og snúið við 1 lykkju fyrr í hverri umferð. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 7-7-8-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð sé prjónuð yfir 8-18-20-24 lykkjur (mitt á bakstykki). Fram- og bakstykki mælist ca 13-16-19-24 cm frá prjónamerki á bakstykki. Setjið allar lykkjur til baka á prjóninn = 28-44-52-64 lykkjur. Klippið þráðinn og byrjið frá byrjun á umferð (mitt undir magastykki) og prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur – til að koma í veg fyrir göt þar sem stykkinu var snúið við, er hægt að taka þráðinn upp á milli þessa lykkja og prjóna þráðinn saman með næstu lykkju. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-5-6-7 cm. Fellið aðeins laust af. Fram- og bakstykki mælist 16-21-25-31 cm frá prjónamerki á bakstykki. Peysan mælist alls 27-33-41-49 cm frá uppfitjunarkanti til affellingarkants (mælt meðfram bakstykki). FRAMFÓTUR: Notið sokkaprjóna 6, setjið 16-18-24-26 lykkjur frá öðrum þræðinum á prjóninn, prjónið til viðbótar upp 4-6-8-10 lykkjur í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eftir berustykki = 20-24-32-36 lykkjur. Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – passið uppá að 2 lykkjur slétt frá mitt á öxl sé prjónað slétt í stroffprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 3-6-8-10 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 102-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.