Alex skrifaði:
Hallo, ich bin gerade dabei dieses wunderschöne Kleidchen zu häkeln und frage mich, was es bedeutet:" es wird in die Stäbchen und nicht dazwischen gehäkelt"? Vielen Dank für eine rasche Antwort. Und weiter so mit den tollen Modellen! LG Alex
19.09.2016 - 10:10DROPS Design svaraði:
Liebe Alex, Sie müssen jedes Stäbchen in das Stäbchen von der vorrigen Reihe häkeln (dh wie üblich, durch die ganze Maschenglied).
19.09.2016 - 10:20
Vigdis Oven Sørensen skrifaði:
Hei. Jeg har heklet ferdig både kjole og hatt. Og er oppskriften feil? Det står at man skal hoppe over 2-2.5 cm på borden mellom dobbeltstavene. Er det riktig? Og er det riktig å bare hekle en rad? Hvordan får man da bremmen til å stå ut? Det blir jo mer en lue enn hatt !!!
28.06.2016 - 20:33DROPS Design svaraði:
Hej Vigdis. Du hekler to omg af blondekanten og 2-2.5 passer.
29.06.2016 - 12:45
Bernadette Fleischmann skrifaði:
Gerade rechtzeitig zum Osterfest das Kleid und Schuhe fertig bekommen. Super Anleitung, tolle Hilfsvideos
26.03.2016 - 14:40
Rosanna skrifaði:
Alpaca è lana 100%. E' proprio estivo? Il colore 3720 è rosa chiaro e non rosa antico. Mi suggerite un filato estivo per questo modello? Grazie, ciao
09.02.2016 - 18:47DROPS Design svaraði:
Buonasera Rosanna, abbiamo corretto il nome del colore, il 3720 è rosa medio. Per quanto riguarda il filato Alpaca è un filato leggero, che viene spesso usato anche per capi estivi, in ogni caso qui può trovare i filati alternativi che può utilizzare per questo vestitino, in particolare i cotoni Safran, DROPS Loves you 6 e il nuovo DROPS Loves you 7. Buon lavoro!
09.02.2016 - 20:56
Rosenbusch Franziska skrifaði:
Hallo, ich habe gerade mit dem Kleidchen begonnen. Leider scheitere ich bereits an der 1. Reihe. Ich komme bei 135 Lm immer auf 114 Stb. Ich habe 135 Lm, dann das 1Stb in die 4.Lm, 1Lm leer, dann 6Stb jeweils in eine Lm wieder eine leer und dann wieder 6 immer so weiter bis ans Ende. Die letzten Stb sind dann nur noch 4. Können Sie mir veraten wo ich den Fehler gemacht habe? Vielen Dank im Voraus. Gruß
02.02.2016 - 13:10DROPS Design svaraði:
Die 6 Stb gelten für Gr. 2 Jahre nur am Ende der R. Ansonsten überspringen Sie 1 Lm und häkeln 3 Stb im Wechsel. Auf diese Weise überspringen Sie 32 Lm, bleiben also 103 Lm, in die Sie Stb häkeln, dabei zählen die ersten 3 Lm als 1 Stb, somit sind es 101 Stb.
06.02.2016 - 14:05
De Bruyne Bernadette skrifaði:
Nergens zie ik de beschrijving van het jasje staan in de Nederlandse beschrijving, misschien kijk ik erover. kunnen jullie mij zeggen waar ik deze kan vinden. vriendelijk bedankt voor Uw antwoord
28.10.2015 - 14:53
Manuela skrifaði:
Ich gestehe, dass ich auf das Kleid nur wegen des entzückenden Kindes aufmerksam wurde! Zu guterletzt habe ich das gesamte Ensemble aus Kleid, Jacke, Schuhe (mit Riemchen! DER Bringer) und Hut gearbeitet und viele bewundernde Kommentare bekommen.
15.06.2015 - 11:20
Diana skrifaði:
Hallo, Ich habe das süsse Kleid fast fertig, verstehe aber bei der Anleitung für die Spitzenkante die letzte Reihe 5 nicht ganz. Wie ist es gemeint, eine feste Masche in die Gruppe der Doppelstäbchen zu häkeln? Macht man die fM so locker,dass sie über die ersten vier Doppelstäbchen geht oder häkelt man die Doppelstäbchen zusammen? So ganz klar geworden ist mir das nicht. Vielen Dank!
09.04.2015 - 09:44DROPS Design svaraði:
Sie häkeln die Doppelstäbchen zusammen, maschen also 4 D-Stb gemeinsam ab. Die 4. Rd haben Sie mit 1 Kett-M in die 4. Lm des Rd-Beginns beendet. Dann folgt direkt eine "Büschel-Masche", d.h. die 4 zusammengehäkelten D-Stb. In diese M können Sie nun die erste fM häkeln. Dann kommen 6 Lm, womit Sie den Abstand zur nächsten "Büschel-M" überbrücken.
11.04.2015 - 08:45
Diana skrifaði:
Hallo, Ich habe das süsse Kleid fast fertig, verstehe aber bei der Anleitung für die Spitzenkante die letzte Reihe 5 nicht ganz. Wie ist es gemeint, eine feste Masche in die Gruppe der Doppelstäbchen zu häkeln? Macht man die fM so locker,dass sie über die ersten vier Doppelstäbchen geht oder häkelt man die Doppelstäbchen zusammen? So ganz klar geworden ist mir das nicht. Vielen Dank!
08.04.2015 - 22:13DROPS Design svaraði:
Antwort siehe oben! :-)
11.04.2015 - 08:50
Tanja skrifaði:
Bonjour, comment faites vous pour faire tenir le chapeau debout comme dans la photo? Le mien ne garde pas sa jolie forme de cloche et les rebords de "rebiquent" pas, tout est mou et flasque. Dois-je amidonner l'ouvrage et si oui, comment ?
06.04.2015 - 23:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Tanja, vérifiez bien votre tension - vous pouvez amidonner légèrement la bordure si vous souhaitez. Votre magasin DROPS pourra vous donner des conseils si nécessaire. Bon crochet!
07.04.2015 - 10:29
Little Miss Berry#littlemissberrydress |
|
![]() |
![]() |
Heklaður kjóll fyrir börn og sumarhattur úr DROPS Alpaca. Prjónuð og þæfð taska úr DROPS Alaska. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla saman 2 stuðla, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um kjól): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Heklað er í hvern stuðul (ekki á milli). HEKLLEIÐBEININGAR (á við um hatt): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er framstykkið heklað og síðan bakstykkið. Stykkið er saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 106-116-126 (135-145) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og litnum millibleikur. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán + 12/18 mán er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 5 loftlykkjum (í stað síðustu3 loftlykkjum) og í stærð 2 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 6 loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum), í stærð 3/4 ára er endað með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum = 79-86-94 (101-108) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem felldur er af 1 stuðull í hvorri hlið alls 12 sinnum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Í stærð 1/3 mán: til skiptis í hverri og annarri hverri umferð, í stærð 6/9 + 12/18 mán: í annarri hverri umferð, stærð 2 + 3/4 ára: í 3. hverri umferð = 55-62-70 (77-84) st. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: 5 stuðlar 1 sinni, 2 stuðlar 1 sinni og 1 stuðull 3 sinnum = 35-42-50 (57-64) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 23-29-35 (40-44) cm setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 2-3-5 (5-6) stuðlar á undan prjónamerki (í stærð 1/3 mán og 2 ára á þetta við á undan stuðli með prjónamerki í), snúið stykkinu. Fækkið lykkjum við hálsmál í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: 2 stuðlar 2 sinnum og 1 stuðull 3 sinnum = 8-11-13 (16-19) stuðlar eftir á öxl. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm. Endurtakið í hinni hlið á hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp og heklið á sama hátt og framstykki – setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 1/3 mán og 2 ára er prjónamerkið sett í miðju stuðul). Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki, en þegar stykkið mælist 19-25-31 (37-41) cm skiptist stykkið við miðju að aftan fyrir op og hvor hluti er heklaður áfram hvor fyrir sig (í stærð 1/3 mán og 2 ára er ekki heklað áfram yfir miðju lykkju með prjónamerki í). Þegar stykkið mælist ca 25-31-37 (43-47) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að aftan þannig: Heklið 9-12-14 (17-20) stuðla frá öxl og inn að hálsmáli, snúið stykkinu og fækkið um 1 stuðul í næstu umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Heklið út umferðina, klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 27-33-39 (45-49) cm. Endurtakið í hinni hlið á hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu spori. KANTUR: Heklið kant meðfram öllu hálsmálinu (og opi að aftan) og í kringum báða handvegi með heklunál 3 með litnum millibleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca ½ - 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 6 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Saumið 2 tölur meðfram hægra opi að aftan (ca ½ cm inn á stykki) – efsta talan er staðsett ca ½ - 1 cm ofan frá, notið loftlykkjubogana í gagnstæðri hlið fyrir hnappagöt. BLÚNDA: Heklið kant neðst á kjól með heklunál 3 og litnum millibleikur þannig: HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar hekla á saman nokkra tvíbrugðna stuðla þá er það gert þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta tvíbrugðna stuðulinn en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), haldið svona áfram þar til heklaður hefur verið sá fjöldi tvíbrugðna stuðla sem hekla á saman og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. UMFERÐ 1: Byrjið í hlið. Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), heklið saman 2 tvíbrugðna stuðla í sama stuðul, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman áfram í sama stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 3 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar saman um sama loftlykkjuboga, * í næsta loftlykkjuboga eru heklaðir 4 tvíbrugðnir stuðlar saman, 4 loftlykkjur og 4 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð. UMFERÐ 3: Heklið eins og umferð 2. UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2, nema 5 loftlykkjur í hvern loftlykkjuboga (í stað 4 loftlykkjur). UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta stuðlahóp, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið mitt framan á kjólinn. ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar. UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 stuðlar. UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 6 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar. UMFERÐ 9: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 7 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 10: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 8 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 1/3 mán. UMFERÐ 11: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 9 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 88 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 6/18 mán. UMFERÐ 12: * 1 stuðull í hvern af fyrstu 10 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 2/4 ára. Allar stærðir. Haldið áfram hringinn með stuðlum án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 13-14 (16) cm ofan frá. Heklið nú 1 umferð með stuðlum með 2 stuðla í 8. hvern stuðul = 90-99 (108) stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð með stuðlum án þess að auka út, heklið síðan 1 umferð með stuðlum og með 2 stuðla í 6. hvern stuðul (í stærð 6/18 mán verða 3 stuðlar eftir í umferð á eftir síðustu útaukningu í stað 6) = 105-115 (126) stuðlar í umferð. KANTUR MEÐ BLÚNDU: UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 2 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR undir kjóll, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman í fyrsta stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta tvíbrugðna stuðlahópinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda, hatturinn mælist ca 18-19 (21) cm ofan frá. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og llitinn lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið blómið í litnum ljós bleikur ofan á blómið úr litnum lime og saumið blómið niður á hattinn. ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. TASKA: Fitjið laust upp 27 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 5,5 með litnum natur Vienna. Prjónið 2 umferðir slétt, skiptið yfir í Alaska og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 47 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Skiptið til baka yfir í litinn natur Vienna, prjónið 2 umferðir slétt og fellið laust af. HANDFANG: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með Alaska og prjónið sléttprjón þar til handfangið mælist ca 25 cm, fellið af. Leggið handfangið saman tvöfalt á lengdina með röngu að röngu og saumið saman í ystu lykkjubogana. FRÁGANGUR: Brjótið uppá töskuna tvöfalt og saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið handfangið í hvora hlið á töskunni. Þæfið töskuna í þvottavél – sjá ÞÆFING! ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. HEKLAÐ HJARTA: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 6 og litnum bleikur Vienna og heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 2 loftlykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 3 fastalykkjur í fastalykkju frá fyrri umferð, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkjur = 8 fastalykkjur, snúið stykkinu. * Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð, klippið frá og festið enda *. Endurtakið frá *-* í hinni hliðinni á hjartanu og saumið síðan hjartað á töskuna. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum ljós bleikur Alpaca og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Saumið blómið mitt á hjartað. ------------------------------------------------------- Peysa sjá DROPS Baby 14-5 Skór sjá DROPS Baby 14-5 ------------------------------------------------------- |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlemissberrydress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.