Cinder Glow Mittens#cinderglowmittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr DROPS Saga. Stykkið er prjónað í hring frá úlnlið að fingurgómum.
DROPS 270-33 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumalfingur): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Aukið síðan út að utanverðu við útauknu lykkjurnar. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðjulykkju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá úlnlið að fingurtoppum. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 54-60-60 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með DROPS Saga. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt og 3 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 2 cm. Nú er lykkjum fækkað jafnframt því sem prjónað er stroff þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 45-50-50 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 7-8-8 cm. Setjið 1 merki í síðustu lykkju í umferð (= þumallykkja) og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-3 lykkjur í umferð = 44-46-48 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, JAFNFRAMT sem fækkað er um 3-6-4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 42-44-46 lykkjur. Setjið merki í byrjun umferðar og setjið eitt merki í næst síðust lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út utanverðu við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum (= 13-15-17 þumalfingurslykkjur) = 54-58-62 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 16-18-19 cm, útaukning fyrir opi fyrir þumalfingur á nú að vera lokið. Í næstu umferð er prjónað þar til 15-17-19 lykkjur eru eftir í lok umferðar (= 13-15-17 þumalfingurslykkjur + 1 lykkja hvoru megin við þær), setjið síðustu 15-17-19 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær og fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 11-11-12 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Stykkið mælist ca 27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti (það eru eftir ca 5 cm að loka máli í öllum stærðum). Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi, setjið 1 merki í hvora hlið á stykki þannig: Setjið 1 merki í 1. lykkju í umferð (= lykkja á eftir 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur) og 1 merki í 22-23-24 lykkju í umferð, það eru 20-21-22 lykkjur á milli merkja. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-4-4 sinnum = 10-12-10 lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 5-6-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32-34-36 cm frá fingurtoppum og niður. ÞUMALFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður í hring í sléttprjóni. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna 4,5 - og prjónið einnig upp 3 lykkjur í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur = 18-20-22 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til þumalfingurinn mælist ca 6-6½-7 cm. Nú er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 16-18-20 lykkjur. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 12 lykkjur í öllum stærðum. Prjónið þar til þumalfingurinn mælist 7½-8-8½ cm. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 6 lykkjur í öllum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 54-60-60 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með DROPS Saga og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur þar til stykkið mælist 7-8-8 cm. Prjónið 1 umferð slétt, JAFNFRAMT sem fækkað er um 3-6-4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 42-44-46 lykkjur. Setjið merki í byrjun umferðar og setjið eitt merki í 24-25-26 lykkju frá byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út utanverðu við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum (= 13-15-17 þumalfingurslykkjur) = 54-58-62 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 16-18-19 cm, útaukning fyrir opi fyrir þumalfingur á nú að vera lokið. Í næstu umferð eru prjónaðar fyrstu 22-23-24 lykkjur eins og áður, setjið næstu 15-17-19 lykkjur (= 13-15-17 þumalfingurslykkjur + 1 lykkja hvoru megin við þær) á þráð án þess að prjóna þær og fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur aftan við þumalfingurslykkjurnar og prjónið síðustu 17-18-19 lykkjur eins og áður = 42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 11-11-12 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Stykkið mælist ca 27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti (það eru eftir ca 5 cm að loka máli í öllum stærðum). Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi, setjið 1 merki í hvora hlið á stykki þannig: Setjið 1 merki í 1. lykkju í umferð og 1 merki í 24-25-26 lykkju í umferð (= lykkja á undan 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur), það eru 20-21-22 lykkjur á milli merkja. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-4-4 sinnum = 10-12-10 lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 5-6-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32-34-36 cm frá fingurtoppum og niður. Prjónið hægri þumalfingur á sama hátt og vinstri þumalfingur. ÞÆFING Á VETTLINGI: Til að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman er vettlingnum snúið við og festur er lítill plastpoki / silkiborði efst í þumalinn með öryggisnælu – opið á öryggisnælunni á að snúa upp að þumalfingrinum svo auðveldara sé að fjarlægja næluna síðar. Snúið vettlingnum við þannig að hann þæfist með réttuna út og plastpokinn / silkiborðinn sé innan í þumalfingrinum. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cinderglowmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 270-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.