Lucy Hemminger skrifaði:
Hallo, die Anleitung funktioniert mega. Haben sie auch Farbvorschläge zu dieser Anleitung?
03.10.2026 - 17:47DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hemminger, schauen Sie mal bei der Farbkarte Alpaca z.B. unter Garnkombinationen ganz unten der Seite einige Farbvorschläge für Alpaca und Kid-Silk - Ihr DROPS Händler kann Ihnen mehr - auch per Mail oder Teleofn - vorschlagen. Viel Spaß beim Häkeln!
05.10.2026 - 07:50
Josien skrifaði:
In A6 haak je in de lossenlus 1 stokje, 2 lossen, 2 stokjes. In A7 haak je in de lossenlus eerst 2 stokjes en dan 1 stokjes. Je meerdere zo op het lijf meer dan op de mouwen. Maar hierdoor trekt het wel scheef. Kan ik dit voorkomen, want hierdoor gaat het ook n beetje bobbelen.
28.09.2026 - 19:34
Josien skrifaði:
Doordat je bij de pas bij de mouwen minder meerdert als bij voor en achterpand, trekt hij bij mij scheef. Ik krijg geen identieke schuine lijnen en bij voor- en achterpand gaat hij rechts babbelen. Hoe kan ik dit voorkomen?
28.09.2026 - 15:16DROPS Design svaraði:
Dag Josien,
Helaas begrijp ik je vraag niet helemaal. Als je de telpatronen volgt, meerder je automatisch op de panden en het lijf evenveel.
28.09.2026 - 19:06
Mossy Ridge Sweater#mossyridgesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið heklað ofan frá og niður með laskalínu í stuðlum og skrautkanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-27 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR (stuðlar heklaðir í spíral): Eftir að berustykki hefur verið skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar á að hekla í hring í spíral án þess að enda umferðina. Fyrsta umferðin byrjar með 1 fastalykkju sem kemur í stað fyrsta stuðuls síðan eru stuðlar heklaðir út umferðina – endið ekki umferðina með 1 keðjulykkju, heldur heklið 1. stuðul í byrjun á næstu umferð í 1. fastalykkju frá fyrri umferð. Heklið síðan stuðla í hring án þess að enda umferðina. Endið síðustu umferðina í hlið eða við miðju að aftan, til að koma í veg fyrir að það myndist hak í skiptingunni er heklað þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðulinn og endið með 1 keðjulykkju í næsta stuðul. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Þegar heklað er í hring þá kemur umferðin til með að færast til. Setjið merkiþráð fyrir miðju undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þennan merkiþráð fylgja áfram með lóðrétt fyrir miðju undir ermi – það á að færa merkiþráðinn til þannig að hann verði allan tímann lóðréttur neðan / undir ermi. Leggið stykkið flatt og athugið að merkiþráðurinn sé fyrir miðju undir ermi þegar lykkjum er fækkað. Lykkjum er fækkað hvoru megin við 2 stuðla við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2, heklið 2 stuðla, heklið 2 stuðla saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Heklið 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* í næstu lykkju, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll peysan er hekluð í hring. Berustykkið er heklað í hring frá hægri öxl að aftan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er heklað til loka niður á við, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar heklaðar. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð DROPS Alpaca og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Heklið 80-84-88-92-96-100-104 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Allt stykkið er heklað í stuðlum – lesið MYNSTUR. Umferð 1 er hekluð þannig: Heklið A.1 í fyrstu loftlykkju (= hálft laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18-18 loftlykkjum (= ermi), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 22-24-24-26-28-30-32 loftlykkjum (= framstykki), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18-18 loftlykkjum (= ermi), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 22-24-24-26-28-30-32 loftlykkjum (= bakstykki) og heklið A.4 í fyrstu loftlykkju (sömu lykkju og A.1 var heklað í). Eftir fyrstu umferð eru 84-88-92-96-100-104-108 stuðlar og 4 loftlykkjur í umferð. Í lok umferðar er hekluð 1 loftlykkja (teiknuð inn í mynsturteikningu A.4) og 1 hálfur stuðull í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar (þetta er útskýrt í mynsturteikningu A.1), í UMFERÐ 3-4 í mynsturteikningu A.1 er fyrsti stuðullinn heklaður um þennan hálfa stuðul. Haldið áfram hringinn þar til A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina. Það eru 140-144-148-152-156-160-164 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 32-32-34-34-34-34-34 stuðlar fyrir hvora ermi og 38-40-40-42-44-46-48 stuðlar bæði fyrir framstykki og bakstykki. Munið að fylgja heklfestunni. Heklið núna með A.5 yfir A.1, A.6 yfir A.2, A.7 yfir A.3 og A.8 yfir A.4 alls 9-10-11-12-13-15-16 sinnum á hæðina og heklaðar hafa verið alls 14-15-16-17-18-20-21 umferðir frá byrjun á stykki. Það eru 248-264-280-296-312-340-356 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-56-58-60-64-66 stuðlar fyrir hvora ermi og 74-80-84-90-96-106-112 stuðlar bæði fyrir framstykki og bakstykki. Heklið 1 umferð með stuðlum í hvern stuðul, en heklið 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga = 256-272-288-304-320-348-364 stuðlar. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-23-24 cm fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Klippið þráðinn. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Heklið 2-2-3-4-6-6-7 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), byrjið í 2. Stuðli sem heklaður var um loftlykkjuboga á undan framstykki og heklið 1 stuðul í hvern af 78-84-88-94-100-110-116 stuðlum á framstykki, heklið 4-4-6-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64-66 stuðla (= ermi), heklið stuðla yfir 78-84-88-94-100-110-116 stuðla á bakstykki, hoppið yfir 50-52-56-58-60-64-66 stuðla (= ermi), heklið 2-2-3-4-6-6-7 loftlykkjur og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Nú á að hekla fram- og bakstykkið til loka á meðan ermarnar eru látnar bíða. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-24-25 cm frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú á að hekla fram- og bakstykki áfram í hring í spíral án þess að enda umferðina – lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju og 1 stuðull í hvern stuðul (munið eftir að fyrsti stuðullinn í fyrstu umferð er skipt út fyrir 1 fastalykkju og að umferðin endar ekki). Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul = 164-176-188-204-224-244-260 stuðlar. Heklið hringinn með stuðlum þar til peysan mælist ca 51-53-54-56-58-60-62 cm fyrir miðju að aftan og endið umferðina eins og útskýrt er í heklleiðbeiningum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá efst á öxl. ERMAR: Nú á að hekla ermarnar í hring í spíral án þess að enda umferðina – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Byrjið í 3-3-4-5-7-7-8 loftlykkju sem hekluð var í hlið undir ermi á fram- og bakstykki (= ca fyrir miðju undir ermi), heklið 1 stuðul í hverja af 0-0-1-2-4-4-5 næstu loftlykkjum (það er 1 loftlykkja eftir á undan ermalykkjum), heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (þetta er gert til að það verði eins lítið op og mögulegt er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 50-52-56-58-60-64-64 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi, heklið 2 stuðla saman í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi á sama hátt og áður og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 1-1-2-3-5-5-6 loftlykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-62-66-72-76-80 stuðlar – munið eftir að enda ekki umferðina, heklið í hring í stuðlum í spíral. Þegar ermin mælist ca 2 cm er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-6-6-6-6-4 cm millibili alls 3-3-2-2-2-2-3 sinnum = 48-50-58-62-68-72-74 lykkjur. Heklið þar til ermin mælist ca 44-43-42-42-42-41-40 cm. Í næstu umferð er aukið út um 4-4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 52-54-62-66-72-76-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-44-44-44-43-42 cm aukið út 0-2-2-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 52-56-64-68-76-80-84 lykkjur. Heklið þar til ermin mælist 47-46-46-46-45-44-43 cm frá skiptingunni – endið umferðina fyrir miðju undir ermi eins og útskýrt er í heklleiðbeiningum. Nú er heklaður kantur neðst á erminni þannig: Heklið A.9 yfir 4 lykkjur, heklið A.10 umferðina hringinn. Ermin mælist ca 48-47-47-47-46-45-44 cm. Klippið og festið þræðina. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið í skiptingunni á milli bakstykkis og ermi, festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 1 fastalykkju á milli hverra stuðla frá fyrstu umferð á berustykki = 80-84-88-92-96-100-104 fastalykkjur og endið umferðina með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Heklið A.11 yfir 4 lykkjur, heklið A.12 umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið og festið þráðinn. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mossyridgesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.