Amanda Ferreira skrifaði:
This piece has the knitting needles symbol but is a crochet piece
21.09.2026 - 12:10
Dora skrifaði:
Ez a minta horgolt és mégis a kötöttek közt van, legalabbis a magyar fordítasban.
20.09.2026 - 08:43
Mònica skrifaði:
En la foto, este cardigan viene identificado con el símbolo de "punto".
19.09.2026 - 19:27
Oat Milk Cardigan#oatmilkcardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið heklað ofan frá og niður í stuðlum með laskalínu. Stærð XS – XXXL.
DROPS 271-21 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Munið að mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. 2 STUÐLAR SAMAN: Um hvern loftlykkjuboga er heklað þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um næsta loftlykkjuboga, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 loftlykkjubogi verður að 1 stuðli). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru heklaðar upp fyrir miðju undir ermi, getur myndast lítið gat í skiptingunni á mill fram- og bakstykkis og erma. Hægt er að loka þessu gati með því að hekla 2 stuðla saman í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis, heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju á undan ermalykkjum – bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um lykkjuna frá hlið á fram- og bakstykki og dragið síðan þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni, heklið á sama hátt í hinni skiptingunni með því að hekla 1 stuðul um lykkjuna frá hlið á fram- og bakstykki – bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í fyrstu loftlykkju og dragið síðan þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Á meðan ermin er hekluð fram og til baka er fækkað um 1 stuðul eftir fyrsta stuðli í byrjun umferðar og fækkað er um 1 stuðul á undan síðustu lykkju í lok umferðar. 2 stuðlar heklaðir saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum (= 3 lykkjur á hekunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka að loka málil, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar heklaðar fram og til baka, en í lok umferðar er umferðin hekluð saman til að hafa ekki saum fyrir miðju undir ermi og ermin fái sömu áferð og afgangur af peysunni. Í lokin er heklaður kantur að framan og kantur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LOFTLYKKJUR í útskýringu að ofan. Notið DROPS Nord og DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) og heklunál 4,5. Heklið 80-84-88-88-92-100-104 loftlykkjur. Snúið stykkinu. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1, heklið A.2 yfir næstu 10-11-11-11-12-14-15 loftlykkjur (= framstykki), heklið A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 16-16-18-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.4 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 22-24-24-24-26-30-32 loftlykkjur (= bakstykki), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 16-16-18-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.4 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 10-11-11-11-12-14-15 loftlykkjur og heklið A.5 í síðustu loftlykkju (= framstykki). Eftir fyrstu umferð eru 84-88-92-92-96-104-108 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferðinni. Setjið merki í uppfitjunarkantinn mitt á bakstykkinu – mælið síðan stykkið héðan. Haldið áfram fram og til baka þar til A.3 og A.4 hafa verið heklaðir til loka. Það eru 140-144-148-148-152-160-164 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferðinni, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboganna þannig: 32-32-34-34-34-34-34 stuðlar fyrir hvora ermi, 19-20-20-20-21-23-24 stuðlar fyrir hvort framstykki og 38-40-40-40-42-46-48 stuðlar fyrir bakstykkið. Munið að fylgja heklfestunni. Heklið nú og aukið út eins og útskýrt er í A.6 yfir A.3 og A.7 yfir A.4, heklið svona alls 9-10-11-13-13-14-15 sinnum á hæðina, alls 14-15-16-18-18-19-20 umferðir hafa verið heklaðar frá byrjun stykkisins. Það eru 248-264-280-304-308-328-344 stuðlar og 4 loftlykkjur í umferðinni, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboganna þannig: 50-52-56-60-60-62-64 stuðlar fyrir hvora ermi, 37-40-42-46-47-51-54 stuðlar fyrir hvort framstykki og 74-80-84-92-94-102-108 stuðlar fyrir bakstykki. Heklið nú 1 stuðul í hverjn stuðul, jafnframt eru heklaðir 2 STUÐLAR SAMAN yfir hvern loftlykkjuboga – sjá útskýringu að ofan = 252-268-284-308-312-332-348 stuðular. Haldið áfram með 1 stuðul í hverjn stuðul þar til berustykkið mælist 18-19-20-21-22-24-25 cm frá merki við miðju að aftan. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 38-41-43-47-48-52-55 stuðla (= framstykki), hoppið yfir næstu 50-52-56-60-60-62-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-6-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 76-82-86-94-96-104-110 stuðla (= bakstykki), hoppið yfir næstu 50-52-56-60-60-62-64 lykkjur (= ermi), heklið 4-4-6-6-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 38-41-43-47-48-52-55 stuðla (= framstykki). Nú er fram- og bakstykki heklað til loka á meða ermar eru látnar bíða. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-216-232-248 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju undir ermum = 160-172-184-200-216-232-248 stuðlar. Heklið fram og til baka í stuðlum þar til peysan mælist ca 49-51-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMAR: Ermarnar eru heklaðar til skiptis frá réttu og frá röngu til að áferðin verði alveg eins og afgangur af peysunni. Stillið af að byrjað sé frá röngu ef síðasta umferð á berustykki var frá réttu eða byrjið frá réttu ef síðasta umferð á berustykki var frá röngu. Lesið LEIÐBEININGAR ERMI í útskýringu að ofan. Byrjið á að hekla fyrir miðju í loftlykkjur undir ermi og heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju og 1 stuðul í hvern stuðul = 54-56-62-66-72-74-78 lykkjur. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir ermi). Snúið stykkinu. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar áður en stykkinu er snúið. Þegar ermin mælist ca 3 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 4. hverjum cm alls 2-2-2-1-1-1-1 sinnum = 50-52-58-64-70-72-76 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 47-46-46-45-45-43-43 cm frá skiptingunni – stillið af að síðasta umferðin sé frá réttu. Heklið 1 umferð með stuðlum frá röngu og aukið út 4 stuðla jafnt yfir = 54-56-62-68-74-76-80 stuðlar. Heklið 1 umferð þannig: Heklið A.8, heklið A.9 umferðina hringinn. Klippið og festið þræðina. Ermin mælist ca 48-47-47-47-46-44-44 cm frá skiptingunni. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN. Notið heklunál 4,5. Heklið um ystu lykkju meðfram framstykki. Byrjið frá röngu efst á hægra framstykki og heklið þannig: Festið umferðina með 1 keðjulykkju og heklið A.1, heklið síðan A.2 (heklið þannig að það séu 2 stuðlar um hverja umferð) og endið með A.2 og A.5 í síðustu umferð = ca 88-92-94-96-100-104-108 stuðlar. Heklið 1 umferð til viðbótar eftir A.1, A.2 og A.5 JAFNFRAMT sem fækkað er um 10 stuðla jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 78-82-84-86-90-94-98 stuðlar. Klippið og festið þræðina. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið heklunál 4,5. Heklið um ystu lykkju meðfram framstykki. Byrjið frá röngu neðst á vinstra framstykki og heklið á sama hátt og hægri kantur að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 4,5. Byrjið frá réttu í hægri kanti að framan. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið A.1, heklið A.2 (heklið ca 3-4 stuðla yfir lykkjur frá kanti að framan), heklið síðan A.2 á milli hverra stuðla frá fyrstu umferð á berustykki – JAFNFRAMT sem heklaðir eru 2 stuðlar saman við hverja laskalínu – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 stuðlar færri), heklið A.2 (heklið ca 3-4 stuðla yfir lykkjur frá kanti að framan) og endið með A.5. Klippið og festið þræðina. KANTUR Í KRINGUM PEYSU: Notið heklunál 4,5. Byrjið frá réttu neðst í hægri kanti að framan. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið A.8, heklið A.9 meðfram öllum kantinum að framan – stillið af að hekluð sé 1 keðjulykkja yst við hálsmál, heklið síðan í kringum hálsmál – stillið af að hekluð sé 1 keðjulykkja yst við hálsmál og heklið síðan meðfram vinstri kanti að framan og stillið af að endað sé með 1 keðjulykkju neðst í kanti að framan. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan, tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan. Fyrsta tala er staðsett ca 1 til 2 cm frá kanti í hálsmáli, síðasta talan er staðsett ca 8 cm upp frá neðri kanti á peysu. Þær tölur sem eru eftir er deilt jafnt niður á milli fyrstu tölu og síðustu tölu. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oatmilkcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.