Bright Breeze Top#brightbreezetop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-22 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Ef ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna uppsláttinn og úrtöku í gatamynstri, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur þar til lykkjum hefur verið fækkað. 2 LYKKJUR MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Bönd á öxlum / hlýri á framstykki er saumað við affellingarkantinn á bakstykki. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 238-252-280-308-336-364-406 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Fram- og bakstykki er prjónað í hring í MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, prjónið A.1 (= 7 lykkjur) alls 34-36-40-44-48-52-58 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-29-30-31-32-33 cm – síðasta umferðin verður að vera 1. eða 3. umferð í A.1. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 0-7-7-7-21-21-28 lykkjur (= 0-1-1-1-3-3-4 mynstureiningar A.1 fellt er af fyrir miðju undir handveg), prjónið 119-119-133-147-147-161-175 lykkjur mynstur eins og áður (= 17-17-19-21-21-23-25 mynstureiningar A.1 á framstykki), fellið af 0-7-7-7-21-21-28 lykkjur (= 0-1-1-1-3-3-4 mynstureiningar A.1 fellt er af fyrir miðju undir handveg), prjónið 119-119-133-147-147-161-175 lykkjur mynstur eins og áður (= 17-17-19-21-21-23-25 mynstureiningar A.1 á bakstykki). Prjónið síðan framstykkið og bakstykkið fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 119-119-133-147-147-161-175 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir – munið eftir útskýringu í MYNSTUR þegar lykkjum er fækkað í hvorri hlið, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman og 2 LYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan (= 2 lykkjur færri) = 117-117-131-145-145-159-173 lykkjur. Síðan er prjónað áfram jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg frá réttu og frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 4 lykkjur, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-10-8-6-11-10 sinnum (= 10-10-20-16-12-22-20 umferðir) = 97-97-91-113-121-115-133 lykkjur. Síðan er lykkjum fækkað frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 14-14-11-15-19-16-18 sinnum (= 28-28-22-30-38-32-36 umferðir) = 69-69-69-83-83-83-97 lykkjur. Prjónið síðan mynstur og i-cord eins og áður án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48-50 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. FRAMSTYKKI: = 119-119-133-147-147-161-175 175 lykkjur. Lykkjan fyrir miðju á framstykki er fyrir miðju í mynstureiningu A.1. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 53-53-60-67-67-74-81 lykkjur, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið bæði í fremri og aftari lykkjubogann á lykkjunni = 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjurnar af kaðlaprjóni brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur i-cord = 118-118-132-146-146-160-174 lykkjur. Prjónið síðan vinstra og hægra framstykki hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Snúið og prjónið frá réttu yfir fyrstu 59-59-66-73-73-80-87 lykkjur (= vinstra framstykki) jafnframt sem fækka á lykkjum bæði fyrir v-hálsmáli og handvegi. Þær 59-59-66-73-73-80-87 lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð (= hægra framstykki). Fyrst er prjónuð UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-4-0-0-4-2 sinnum, fækkað er fyrir v-hálsmáli frá réttu og fyrir handvegi bæði frá réttu og röngu – þ.e.a.s. í stærð M, XXL og XXXL er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 1 lykkja færri). Þegar UMFERÐ 1 og 2 hafa verið prjónaðar 0-0-4-0-0-4-2 sinnum (= 0-0-8-0-0-8-4 umferðir), eru 59-59-54-73-73-68-81 lykkjur í umferð. Síðan er lykkjum fækkað einungis frá réttu, prjónið svona í öllum stærðum: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 22-22-18-29-29-25-34 sinnum (= 44-44-36-58-58-50-68 umferðir) = 15-15-18-15-15-18-13 lykkjur. Alls hefur verið fækkað um 22-22-22-29-29-29-36 lykkjur fyrir v-hálsmáli. Fækkið nú einungis lykkjum fyrir handvegi: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 1 lykkja færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-5-2-2-5-0 sinnum (= 4-4-10-4-4-10-0 umferðir) = 13 lykkjur í öllum stærðum. Prjónið fram og til baka eins og áður án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti eða að óskaðri lengd. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið 59-59-66-73-73-80-87 lykkjur af þræði til baka á hringprjóninn. Síðan er prjónað áfram jafnframt því sem lykkjum er fækkað bæði fyrir v-hálsmáli og handvegi þannig: Fyrst er prjónuð UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-4-0-0-4-2 sinnum, fækkað er fyrir v-hálsmáli frá réttu og fyrir handvegi bæði frá réttu og röngu – þ.e.a.s. í stærð M, XXL og XXXL er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 1 lykkja færri). Þegar UMFERÐ 1 og 2 hafa verið prjónaðar 0-0-4-0-0-4-2 sinnum (= 0-0-8-0-0-8-4 umferðir), eru 59-59-54-73-73-68-81 lykkjur í umferð. Síðan er lykkjum fækkað einungis frá réttu, prjónið svona í öllum stærðum: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 22-22-18-29-29-25-34 sinnum (= 44-44-36-58-58-50-68 umferðir) = 15-15-18-15-15-18-13 lykkjur. Alls hefur verið fækkað um 22-22-22-29-29-29-36 lykkjur fyrir v-hálsmáli. Fækkið nú einungis lykkjum fyrir handvegi: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 1 lykkja færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-5-2-2-5-0 sinnum (= 4-4-10-4-4-10-0 umferðir) = 13 lykkjur í öllum stærðum. Prjónið fram og til baka eins og áður án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti eða að óskaðri lengd. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxlum / hlýra niður yst í hvora hlið á bakstykki – saumið lykkju á móti lykkju. Ca 5 cm á bandi á öxl / hlýra kemur til með að leggjast yfir á bakhlið á stykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightbreezetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.