Sunflower Slip Top#sunflowersliptop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-14 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. 2 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD: Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LOK UMFERÐAR: Prjónið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI, prjónið 4 lykkjur (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum lykkjum), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI. Endurtakið við hvorn merkiþráð (= 4 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, ofan frá og niður að handvegi. Byrjað er á að fitja upp lykkjur fyrir vinstra framstykki, prjónað er fram og til baka og aukið út fyrir hálsmáli og handvegi. Lykkjurnar eru látnar bíða á meðan hægra framstykkið er prjónað. Síðan eru stykkin sett saman og framstykkið er prjónað fram og til baka niður að handvegi. Síðan er bakstykkið prjónað. Við handveg er framstykkið og bakstykkið sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við á hringprjóna. Í lokin eru axlasaumar saumaðir. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 14-17-17-18-19-20-21 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 2 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD - sjá útskýringu að ofan, 10-13-13-13-15-16-17 lykkjur sléttprjón og 2 kantlykkjur með i-cord. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist 8-8-8-7-9-7-8 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú á að auka út fyrir hálsmáli og handveg, lestu því næstu 2 kafla að neðan áður en þú prjónar áfram (í stærð XXXL byrjar útaukningin fyrir handveg á sama tíma og útaukningin fyrir hálsmáli). ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁLI: Prjónið eins og áður (= frá réttu) jafnframt sem aukið er út um 1 lykkju til vinstri innan við fyrstu 3 lykkjurnar – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-8-7-9-8 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli, leggið stykkið til hliðar og prjónið hægra framstykki. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-9-8-12-11-9½-8 cm, aukið út fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður jafnframt sem aukið er út um 1 lykkju til hægri innan við síðustu 3 lykkjurnar – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-15-17-13-16-20-24 sinnum. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 14-17-17-18-19-20-21 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 2 kantlykkjur með i-cord, 10-13-13-13-15-16-17 lykkjur sléttprjón og 2 kantlykkjur með i-cord. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist 8-8-8-7-9-7-8 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú á að auka út fyrir hálsmáli og handveg, lestu því næstu 2 kafla að neðan áður en þú prjónar áfram (í stærð XXXL byrjar útaukningin fyrir handveg á sama tíma og útaukningin fyrir hálsmáli). ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁLI: Prjónið eins og áður jafnframt sem aukið er út um 1 lykkju til hægri innan við síðustu 3 lykkjurnar – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-8-7-9-8 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli á að setja hægra og vinstra framstykkið saman – lesið FRAMSTYKKI og prjónið eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-9-8-12-11-9½-8 cm, aukið út fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður jafnframt sem aukið er út um 1 lykkju til vinstri innan við fyrstu 3 lykkjurnar – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-15-17-13-16-20-24 sinnum. FRAMSTYKKI: Þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið er hægra og vinstra framstykkið sett saman – munið eftir útaukningu fyrir handveg og prjónið þannig: Byrjið frá réttu, prjónið yfir hægra framstykki eins og áður (2 kantlykkjur inn að hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni), fitjið upp 32-32-36-36-38-38-42 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið yfir lykkjurnar frá vinstra framstykki eins og áður (2 kantlykkjur að hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður, en yfir þær 32-32-36-36-38-38-42 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli, prjónið slétt frá röngu í fyrstu umferð (síðan eru þessar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 2 kantlykkjur með i-cord í hvorri hlið. Þegar útaukningu fyrir handveg er lokið eru 98-106-114-114-122-136-148 lykkjur í umferð – endið eftir síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 18-18-19-20-21-22-23 cm. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar, prjónið nú vinstra og hægra bakstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 14-17-17-18-19-20-21 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 2 kantlykkjur með i-cord, 10-13-13-14-15-16-17 lykkjur í sléttprjóni og 2 kantlykkjur með i-cord. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist 3-3-3-2-4-2-2 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú er aukið út fyrir hálsmáli þannig: Prjónið eins og áður en jafnframt er aukið út um 1 lykkju til vinstri innan við fyrstu 3 lykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið út svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-8-7-9-8 sinnum = 19-22-22-26-26-29-29 lykkjur og stykkið mælist ca 6-6-6-7-8-8-8 cm. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstra bakstykki. VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 14-17-17-18-19-20-21 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 2 kantlykkjur með i-cord, 10-13-13-14-15-16-17 lykkjur í sléttprjóni og 2 kantlykkjur með i-cord. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist 3-3-3-2-4-2-3 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú er aukið út fyrir hálsmáli þannig: Prjónið eins og áður en jafnframt er aukið út um 1 lykkju til hægri innan við síðustu 3 lykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið út svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-8-7-9-8 sinnum = 19-22-22-26-26-29-29 lykkjur og stykkið mælist ca 6-6-6-7-8-8-8 cm. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli eru vinstri og hægri bakstykkin sett saman. BAKSTYKKI: Í stærð XXXL byrjar útaukningin fyrir handveg á sama tíma og stykkið er sett saman, svo lesið allan kaflann áður en haldið er áfram. Byrjið frá réttu yfir vinstra bakstykkið eins og áður (2 kantlykkjur inn að hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni), fitjið upp 32-32-36-36-38-38-42 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir hægra bakstykkið eins og áður (2 kantlykkjur inn að hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður, en yfir 32-32-36-36-38-38-42 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli, prjónið slétt frá röngu í fyrstu umferð (prjónið síðan þessar lykkjur í sléttprjóni). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 2 kantlykkjur með i-cord í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-9-8-12-11-9½-8 cm, aukið út fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju til vinstri innan við fyrstu 3 lykkjurnar og 1 lykkju til hægri innan við síðustu 3 lykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-15-17-13-16-20-24 sinnum. Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 98-106-114-114-122-136-148 lykkjur í umferð – endið eftir síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 18-18-19-20-21-22-23 cm. Klippið ekki þráðinn, nú eru bakstykkið og framstykkið sett saman og fram- og bakstykkið eru síðan prjónað héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið yfir 98-106-114-114-122-136-148 lykkjur af bakstykki, fitjið upp 6-8-10-16-20-22-26 nýjar lykkjur í lok umferðar frá réttu (= í hlið undir ermi), prjónið slétt yfir 98-106-114-114-122-136-148 lykkjur af framstykki, fitjið upp 6-8-10-16-20-22-26 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi) = 208-228-248-260-284-316-348 lykkjur. Setjið eitt merki fyrir miðju í 6-8-10-16-20-22-26 lykkjur í hvorri hlið, merkin eru notuð þegar aukið er út í hliðum. Prjónið sléttprjón, en yfir nýjar lykkjur í hvorri hlið er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til 4 umferðir í garðaprjóni hafa verið prjónaðar á hæðina. Prjónið síðan allar lykkjur í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 24-26-28-29-30-31-32 cm frá öxl (= ca 6-8-9-9-9-9-9 cm frá handvegi), aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvort merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu með ca á 2-1½-1-2-2-2½-2½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 4-5-6-5-5-5-5 sinnum í hvorri hlið = 224-248-272-280-304-336-368 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 30-33-35-37-39-41-43 cm frá öxl (= ca 12-15-16-17-18-19-20 cm frá handvegi), prjónið síðan gatamynstur þannig: Prjónið sléttprjón fram að merkiþræði í hlið og byrjið umferðina hér, prjónið mynsturteikningu A.1 umferðina hringinn (= 28-31-34-35-38-42-46 sinnum á breidd). Prjónið í hring eftir mynstri svona þar til stykkið mælist ca 45-48-50-52-54-56-58 cm frá öxl (= ca 27-30-31-32-33-34-35 cm frá handvegi), endið eftir 1 heila eða 1 hálfa mynstureiningu af mynstri á hæðina. Fellið laust af með sléttum lykkjum svo að affellingin verði ekki stíf. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma fallega saman, notið e.t.v. lykkjuspor. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunflowersliptop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.