Emma skrifaði:
Jag förstår inte beskrivningen. Är det en magisk ring med 11 halvstolpar i och sen fasta maskor i var och en av halvstolparna?
15.04.2026 - 11:03DROPS Design svaraði:
Hej Emma, ja det stemmer og på 3. varv starter udtagningen :)
16.04.2026 - 13:46
Gunn skrifaði:
Hvor mange halvstaver skal man ha i den første ringen (A1) ?
09.04.2026 - 20:57DROPS Design svaraði:
Hei Gunn. Du ska hekle A.3 totalt 11 ganger rundt omgangen, så det blir 11 halvstaver. Mvh DROPS Design
10.04.2026 - 07:07
Chemin skrifaði:
Bjr pourquoi doublez vous la laine ?merci
29.03.2026 - 16:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chemin, on crochète ici avec 2 fils pour obtenir la texture souhaitée, pensez à bien vérifier votre tension et adaptez la taille du crochet si besoin. Bon crochet!
07.04.2026 - 13:17
Is skrifaði:
Bonjour, ne manquerai t'il pas le diagramme A2, si non pouvez vous me l'expliquer je ne comprends pas merci
28.03.2026 - 18:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Is, le diagramme A.2 se trouve juste avant A.3, il montre seulement comment commencer et terminer les tours (cf 2ème et 3ème symbole de la légende). Vous le crochetez ainsi une fois au début du tour, puis vous répétez A.3 et terminez par 1 maille coulée dans la 3ème / la 1ère maille en l'air du début du tour. Bon crochet!
07.04.2026 - 09:59
Rustic Rhythm Hat#rusticrhythmhat |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklaður hattur úr 2 þráðum DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með fastalykkjum, stuðlum og krabbahekli.
DROPS 265-2 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með hálfum stuðlum byrjar með 2 loftlykkjum sem koma í stað fyrsta hálfa stuðuls. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun umferðar. Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju sem kemur í stað fyrstu fastalykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. TVEIR ÞRÆÐIR: Notið þráðinn innan í dokkunni og utan með dokkunni (= 2 þræðir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 22. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 hálfa stuðla í ca 22. hverja fastalykkju. LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar heklað er í hring, heklið keðjulykkjuna í lok umferðarinnar með nýja litnum sem á að skipta yfir í. KRABBAHEKL: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju að neðan, en lykkjurnar eru heklaðar aftur á bak í umferð, þ.e.a.s. heklið frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá toppi og niður. Heklað er til skiptis fastalykkjur og hálfir stuðlar. Í lokin er heklað barð með kanti í krabbahekli. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með 1 þræði DROPS Safran í litnum Ljós Beige og 1 þræði DROPS Safran með litnum Marsipan (= 2 þræðir). Tengið loftlykkjurnar saman í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju (= A.1). Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.2 og A.3 eða eins og útskýrt er að neðan, lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið þannig: Heklið A.2 (= byrun og lok umferðar), heklið A.3 alls 11 sinnum umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja heklfestunni. Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 87 fastalykkjur + 1 loftlykkja í byrjun umferðar. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 21-10 fastalykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá * til * alls 4-8 sinnum = 91-95 hálfir stuðlar + 2 loftlykkjur í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 3: Heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. Heklið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 15-17 cm frá byrjun á stykki - endið með einni umferð af fastalykkjum. Skiptið yfir í 2 þræði af litnum Kaffi, lesið TVEIR ÞRÆÐIR í útskýringunni að ofan og heklið UMFERÐ 3 og 4 1 sinni. Skiptið aftur yfir í 1 þráð af litnum Ljós Beige og 1 þráð af litnum Marsipan (= 2 þræðir). Heklið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 17-19 cm. Heklið nú barð, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: UMFERÐ 1: * Heklið 2 hálfa stuðla í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 4-4 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 3-3 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 4-5 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 3-3 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 4-4 fastalykkjum, * heklið frá * til * samtals 4-4 sinnum = 112-116 hálfir stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 3: * Heklið 2 hálfa stuðla í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 5-5 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 4-4 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 5-6 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 4-4 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 5-5 fastalykkjum, * heklið frá * til * alls 4-4 sinnum = 132-136 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 5: * Heklið 2 hálfa stuðla í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 8-8 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 7-7 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 7-8 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 7-7 fastalykkjum, * heklið frá * til * alls 4-4 sinnum = 148-152 hálfir stuðlar. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 7: * Heklið 2 hálfa stuðla í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 9-9 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 8-8 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 8-9 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 8-8 fastalykkjum, * heklið frá * til * alls 4-4 sinnum = 164-168 hálfir stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 9: * Heklið 2 hálfa stuðla í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 20-20 fastalykkjum, 2 hálfa stuðla í næstu fastalykkju, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 19-20 fastalykkjum, * heklið frá * til * alls 4-4 sinnum = 172-176 hálfir stuðlar. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 11: Heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum Kaffi, lesið KRABBAHEKL í útskýringunni að ofan og heklið kant í aðra hverja lykkju svona: * Heklið 1 krabbahekl í næstu lykkju, heklið 2 loftlykkjur og hoppið yfir 1 lykkju *, heklið frá * til * út umferðina. Endið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar. Klippið og festið þræðina. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rusticrhythmhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 265-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.