Hdz skrifaði:
Bonjour, Pourquoi reste t il 9 mailles à la fin au moment de l'ourlet ? J'ai fini en i cord mais je n'ai que 3 mailles finales. Me suis trompée quelque part ?
29.01.2026 - 08:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Hdz, l'ourlet doit faire 9 mailles de large tout du long, vous allez tricoter ces 9 mailles en rabattant celles de l'ouverture de la cagoule ainsi, tous les rangs: tricotez les 8 premières mailles, puis tricotez la 9ème maille avec la maille suivante de celles relevée autour de l'ouverture de la cagoule, remettez ces 9 m sur l'aiguille gauche et répétez ce rang jusqu'à ce que toutes les mailles de la cagoule aient été tricotées ensemble avec les 9 m de l'ourlet. Retrouvez ici, en vidéo comment rabattre les mailles (avec 3 mailles pour la vidéo, 9 pour ce modèle). Bon tricot!
29.01.2026 - 10:27
LARA skrifaði:
Bonjour, Est il possible de m'indiquer le métrage nécessaire pour une taille 3 ans et une taille 6 ans ? Merci
23.01.2026 - 15:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Lara, vous pouvez calculer le métrage nécessaire pour chaque taille à la base de la quantité nécessaire pour ces tailles, retrouvez toutes les infos sur chaque laine sur leur nuancier. Bon tricot!
26.01.2026 - 07:47
Snow Bear Balaclava#snowbearbalaclava |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð húfa / balaklava / lambhúshetta fyrir börn úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og i-cord. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-12 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. I-CORD AFFELLING: Fitjið upp 9 nýjar lykkjur á hægri prjón (frá réttu á stykki). Lyftið þessum 9 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 9 lykkjum inn á vinstri prjóni og prjónið frá réttu án þess að snúa stykkinu þannig: Prjónið 8 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman, lyftið 9 lykkjum af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón og herðið á þræði *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir. I-CORD SNÚRA: Prjónið snúru með 2 lykkjur á sokkaprjóna þannig: Fitjið upp 2 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: * Færið allar lykkjurnar yfir í hægri hlið á prjóninum án þess að snúa stykkinu, herðið á þræðinum og prjónið slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* að óskaðri lengd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BALAKLAVA / LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hettan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og yfir enni og aftur á bak. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í hvorri hlið og prjónað er fram og til baka ofan frá og niður. Þegar hettan hefur verið prjónuð til loka, eru lykkjur fitjaðar upp undir opnun hettunnar og síðan er hálsmálið prjónað í hring á prjóninum. Að lokum er prjónaður kantur í kringum opnun andlitsins. Hægt er að nota kantinn sem fald til að draga snúru í gegn. Í lokin eru gerðir 2 dúskar sem eru saumaðir niður í hvora hlið á efra stykkinu / toppstykkinu. BALAKLAVA / LAMBHÚSHETTA: Fitjið upp 17-17-17-19-19-19-19 Lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Baby Merino (= 2 þræðir). Uppfitjunarkantur = miðja að framan á enni. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-15-16 cm. Klippið þráðinn, þetta stykki myndar toppinn fyrir miðju ofan á hettu. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú á að prjóna upp lykkjur frá réttu meðfram báðum hliðum innan við ystu lykkju þannig: Byrjið frá horni við uppfitjunarkantinn og prjónið upp 18-20-21-21-22-23-24 lykkjur meðfram annarri hliðinni frá réttu (= hægri hlið frá réttu þegar uppfitjunarkanturinn snýr að þér), prjónið slétt yfir 17-17-17-19-19-19-19 lykkjur frá efra stykki / toppstykki, prjónið síðan upp 18-20-21-21-22-23-24 lykkjur meðfram hinni hliðinni (= vinstri hlið frá réttu þegar uppfitjunarkanturinn snýr að þér) = 53-57-59-61-63-65-67 lykkjur. Síðar er stykkið mælt frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-3-3-3-3-3 sinnum (= 4-6-6-6-6-6-6 umferðir prjónaðar) = 49-51-53-55-57-59-61 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-17-17 cm meðfram hliðinni, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Setjið 1 merki í miðjulykkju í umferð, þannig að það eru 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki. Nú á að auka út í hvorri hlið jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir miðju að aftan hvoru megin við merki, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, endið með 2 lykkjur slétt (= 2 lykkjur fleiri og 2 lykkjur færri) = 49-51-53-55-57-59-61 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 49-51-53-55-57-59-61 lykkjur. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið slétt yfir allar lykkjur, í lok umferðar eru fitjaðar upp 6-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð = 55-57-61-65-67-71-73 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21-21 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Setjið 1 merki í stykkið, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 1 cm frá merki. Í næstu umferð er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir = 61-63-67-71-73-77-79 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 3 cm frá merki. Í næstu umferð er aukið út um 9 lykkjur jafnt yfir = 70-72-76-80-82-86-88 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 6 cm frá merki. Í næstu umferð er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 82-84-88-92-94-98-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 9 cm frá merki. Í næstu umferð er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir = 98-100-104-108-110-114-116 lykkjur. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 11-11-12-12-12-12-13 cm frá merki. Fellið af aðeins laust. FALDUR: Notið hringprjón 5,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu fyrir miðju í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan og prjónið upp ca 84-88-92-96-100-104-104 lykkjur jafnt yfir í kringum opið á hettunni. Haldið áfram hringinn frá réttu með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. Ef ekki er óskað eftir að hafa snúru í faldinum, saumið 9 lykkjurnar í umferð við 9 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í byrjun á faldinum – saumið með lykkjuspori. Ef óskað er eftir að hafa snúru í faldinum, fellið lykkjurnar af þannig að það myndast op í hvorum enda. Hér er hægt að þræða snúruna í gegn í öðrum endanum, í gegnum i-cord (= faldinn) og út í gegnum hitt opið. SNÚRA: Ef óskað er eftir að þræða snúru í faldinn þá er snúran prjónuð þannig: Notið sokkaprjóna 5,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið I-CORD SNÚRA – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar snúran er ca 120 til 150 cm eru þræðirnir dregnir í gegnum 2 lykkjurnar í umferðinni. Festið þræðina og þræðið snúruna í gegnum faldinn eins og útskýrt er að ofan. DÚSKAR: Notið 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Gerið 2 dúska ca 5 cm að þvermáli. Dúskarnir eru festir í hvora hlið á efra stykki / toppstykki á hettunni – sjá mynd. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowbearbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.