Iris skrifaði:
Es gibt zwei fast identische Anleitungen. Einmal 260-33 und 261-63. Ich hatte die 260-33 ausgedruckt und einen halben Handschuh gestrickt. Da die Anleitung zu klein war wollte ich sie erneut, aber vergrößert ausdrucken. Dabei hab ich leider die 261-63 genommen. Die Anleitungen haben denselben Namen und auch die Bilder sind kaum zu unterscheiden. Trotzdem gibt es Abweichungen. Das Muster der Handinnenseite ist z.B. um eine Reihe versetzt (L/XL) usw.
22.01.2026 - 10:50DROPS Design svaraði:
Liebe Iris, das Modell ist das gleiche, aber die Anleitungen unterscheiden sich deshalb leicht, weil sie einmal für Herrengrößen und einmal für Damengrößen ausgelegt sind. Viel Spaß beim Stricken!
29.01.2026 - 11:38
May-Britt skrifaði:
Wird in jeder Runde der Zunahmen,Umschläge gearbeitet und Umschläge abgestrickt? Viele Grüße May-Britt
27.11.2025 - 15:02DROPS Design svaraði:
Liebe May-Britt, ja genau, die Diagramme zeigen alle Reihen, so die Umschläge am Anfang werden in jeder Runde gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
27.11.2025 - 17:07
Forest Frost Mittens#forestfrostmittens |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar fyrir herra úr DROPS Karisma eða DROPS Saga. Stykkið er prjónað frá fingurtoppi að úlnlið með norrænu mynstri.
DROPS 260-33 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. aukið er út hvoru megin við 5 lykkjur í hvorri hlið á vettlingi. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á EFTIR 5 LYKKJUM Í HLIÐ: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið inn nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Á UNDAN 5 LYKKJUM Í HLIÐ: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið inn nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá fingurtoppi að úlnlið. Lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á vettlingi að tilgreindum lykkjufjölda. Við gráu rúðurnar í mynsturteikningu eru lykkjur settar á þráð fyrir opi fyrir þumalfingur, jafnframt eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir opi fyrir þumalfingur og mynstur prjónað eftir mynsturteikningu samtímis sem lykkjum er fækkað hvoru megin við op fyrir þumalfingur. Þegar vettlingurinn hefur verið prjónaður að réttu máli, prjónið stroff hringinn. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum op fyrir þumalfingur og þumalfingurinn er prjónaður í hring. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum Mosagrænn í DROPS Karisma eða DROPS Saga (skiptið lykkjunum á 4 stykki sokkaprjóna og prjónið með fimmta prjóninum). Prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið mynsturteikningu A.1 hringinn – aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING þar sem útskýrt er hvernig uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina = 48-52 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni! Þegar prjónað hefur verið til og með umferð merktri með ör í A.1, mælist stykkið ca 13-14 frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð á að gera op fyrir þumalfingur, þ.e.a.s. prjónið eins og áður fram að gráu rúðunum í mynsturteikningu, setjið lykkjurnar yfir 3 gráu rúðurnar á þráð fyrir opi fyrir þumalfingur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 13-15 nýjar lykkjur í umferð fyrir opi fyrir þumalfingur (lykkjurnar eru fitjaðar upp í sömu röð og fyrsta umferð í A.2) = 58-64 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður og prjónið A.2 yfir nýju lykkjurnar/lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað í A.2 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar úrtaka í A.2 hefur verið gerð til loka, eru 48-52 lykkjur í umferð. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 20-22 cm frá uppfitjunarkanti, það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Afgangur af vettlingi er prjónaður í litnum Mosagrænn. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). JAFNFRAMT sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1- passið uppá að útaukningin sé gerð í brugðinni einingu = 56-60 lykkjur. Prjónið svona þar til stroffið mælist 5 cm í báðum stærðum. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vettlingurinn mælist ca 26-28 cm frá uppfitjunarkanti. Þræðið uppfitjunarþráðinn upp og niður í gegnum lykkjurnar í kringum opið á toppnum á vettlingnum, herðið á þræði þannig að gatið lokist og festið þráðinn vel. ÞUMALFINGUR: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 13-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir opi fyrir þumalfingur – ATH: Lykkjurnar eru prjónaður upp með 2 litum í sömu röð og fyrsta umferð í A.3, prjónið einnig upp 9 lykkjur í kringum opið fyrir þumalfingur (þær 3 lykkjur af þræði eru miðjulykkjur af þessum 9 lykkjum – umferð 1 í A.3 hefur nú verið prjónuð til loka – takið vel eftir að í stærð L/XL koma lykkjurnar að innanverðu á þumalfingri ekki til með að passa við lykkjur frá þræði, en prjónuð lykkjurnar eins og útskýrt er í A.3) = 22-24 lykkjur. Skiptið lykkjunum yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.3 – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað efst á þumalfingri eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 4 lykkjur í umferð. Klippið þræðina, þræðið þræðina í gegnum þær lykkjur sem eru eftir, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 7-8 cm. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, þ.e.a.s. prjónið A.1 upp til og með umferð merktri með ör í mynsturteikningu, síðan er opið fyrir þumalfingur gert í gagnstæðri hlið – sjá mynsturteikningu A.4. Opið fyrir þumalfingur og þumalfingurinn er prjónað á sama hátt og á vinstri vettlingi. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestfrostmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.