Soft Horizon Sweater#softhorizonsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, v-hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. I-CORD (á við um hálsmál): Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. I-CORD AFFELLING: Þegar síðasta umferð hefur verið prjónuð byrjar affelling þannig: BYRJUN (= rétta): Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið þessum 2 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítill snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 2 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 2 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að framan. 4. ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁL, FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, er fyrst aukið út fyrir hálsmáli og ermar. Samtímis eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli eru framstykkin sett saman fyrir miðju að framan, síðan er stykkið prjónað í hring. Fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að óskuðu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 26-28-28-30-30-32-32 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Alpaca (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-10-11-11-11 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru = 66-68-70-72-74-76-78 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 20-20-21-21-22-22-23 lykkjur) = 21-21-22-22-23-23-24 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað sléttprjón með 2 lykkjur inn við hálsmál í I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 lykkjur i-cord, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5-6 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál innan við 3 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja slétt, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 lykkjur i-cord, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-9-9-10-10-11-11 sinnum (= 16-18-18-20-20-22-22 umferðir prjónaðar) = 29-30-31-32-33-34-35 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 20-20-21-21-22-22-23 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxlinni (= kantlykkja) = 21-21-22-22-23-23-24 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað sléttprjón með 2 lykkjur inn við hálsmál í I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 lykkjur i-cord, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5-6 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál innan við 3 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-9-9-10-10-11-11 sinnum (= 16-18-18-20-20-22-22 umferðir prjónaðar) = 29-30-31-32-33-34-35 lykkjur. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar jafnframt því sem útaukning fyrir hálsmáli heldur áfram, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 20-22-22-24-24-26-27 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá bakstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-22-22-24-24-26-27 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 kantlykkja færri) prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja slétt, endið með 2 lykkjur i-cord = 162-170-174-182-186-194-200 lykkjur. Það eru 29-30-31-32-33-34-35 lykkjur á hvoru framstykki, 20-22-22-24-24-26-27 lykkjur á hvorri ermi og 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur á bakstykki. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord (= 4 lykkjur fleiri) = 166-174-178-186-190-198-204 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt frama að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 2 lykkjur i-cord (= 6 lykkjur fleiri) = 172-180-184-192-196-204-210 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 4. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 4. UMFERÐ 9 (= rétta): Nú eru framstykkin sett saman til að mynda eitt berustykki, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt frama að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (= bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, setjið síðustu 2 lykkjur á kaðlaprjón, prjónið 2 fyrstu lykkjur í umferð slétt saman (þ.e.a.s. 2 lykkjur með i-cord), prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt saman = 188-196-200-208-212-220-226 lykkjur. Það eru 30-32-32-34-34-36-37 lykkjur á hvorri ermi og 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur á framstykki/bakstykki. Stykkið mælist ca 14-15-15-16-16-17-18 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 12-13-13-14-14-14-15 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-2-2-3-3 cm. Síðan á að prjóna stykkið í hring og byrjun umferðar er við miðju að framan. BERUSTYKKI: Prjónið hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvora hlið á hvorri ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri), lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-6-5-5-3-1-1 sinnum (= 14-12-10-10-6-2-2 umferðir prjónaðar, þar til aukið hefur verið út alls 12-11-10-10-8-6-6 sinnum á ermum = 44-44-42-44-40-38-39 lykkjur á hvorri ermi og 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 216-220-220-228-224-224-230 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki – lykkjur eru auknar út á fram- og bakstykki innan við 2 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið á framstykki/bakstykki – prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt án þess að auka út. UMFERÐ 2: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-9-11-12-15-18-19 sinnum (= 14-18-22-24-30-36-38 umferðir prjónaðar). Nú hefur verið aukið út alls 19-20-21-22-23-24-25 sinnum á ermum og 7-9-11-12-15-18-19 sinnum á fram- og bakstykki = 58-62-64-68-70-74-77 lykkjur á hvorri ermi og 78-84-90-94-102-110-114 lykkjur á framstykki/bakstykki = 272-292-308-324-344-368-382 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Ermin mælist ca 16-17-18-19-19-20-21 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 22-23-24-26-26-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið þá að réttu máli án útaukningar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram að fyrsta merki, setjið næstu 58-62-64-68-70-74-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-12-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 78-84-90-94-102-110-114 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 58-62-64-68-70-74-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-12-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 78-84-90-94-102-110-114 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-196-208-228-244-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-20-21-21-22-23-24 cm frá skiptingunni. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. Peysan mælist ca 45-47-49-51-53-55-57 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-62-64-68-70-74-77 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-12-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-68-72-78-82-86-93 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-8-10-12-12-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 9-5-4-3-3-3-2½ cm alls 3-5-6-8-9-10-12 sinnum = 52-54-56-58-60-62-63 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-40-39-40-39-39 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-7-8-8-9-9-9 lykkjur jafnt yfir = 45-47-48-50-51-53-54 lykkjur. Fellið af með i-cord affellingu – munið eftir útskýringu að ofan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softhorizonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.