DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Coffee Ridge Vest

Prjónað vesti úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með perlustroffprjóni, garðaprjóni og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 257-4

#coffeeridgevest

DROPS Design: Mynstur me-289
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 gr litur 51, tvöfaldur latte

TÖLUR:
DROPS TALA NR 511: 3-3-4-4-4-4 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 42 umferðir á hæð með garðaprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með perlustroffprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantar að framan = 6 lykkjur):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3. og 4. lykkju frá kanti fyrir miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið síðan áfram með lykkjur frá framstykki eins og á´ður.
UMFERÐ 2: (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 10-10-9-10-10-10 cm, síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 19 og 28 cm
M: 19 og 28 cm
L: 16, 23 og 30 cm
XL: 17, 24 og 31 cm
XXL: 18, 26 og 34 cm
XXXL: 19, 28 og 37 cm
(= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu áður en lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið upp fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 175-192-210-228-256-278 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan (= 8 umferðir).
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt því sem aukið er út um 16-17-19-21-23-27 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 191-209-229-249-279-305 lykkjur.
Prjónið næstu umferð frá röngu og síðan er mynstrið prjónað þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið perlustroffprjón (= 1 lykkja brugðið/1 lykkja í garðaprjóni) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður.

Prjónið kanta að framan og perlustroffprjón (= 1 lykkja sléttprjón / 1 lykkja garðaprjón) eins og áður JAFNFRAMT sem aukið er út í hvorri hlið innan við 7 lykkjur, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið perlustroffprjón eins og áður (þ.e.a.s. allar lykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður (= 2 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í perlustroffprjón frá næstu umferð.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið perlustroffprjón (= 1 lykkja garðaprjón / 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 1.
UMFERÐ 4 (= rétta):
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið perlustroffprjón (= 1 lykkja garðaprjón / 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 6 lykkjur kant að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6 sinnum (= 24 lykkjur fleiri) = 215-233-253-273-303-329 lykkjur.

Prjónið fram og til baka með perlustroffprjón og kant að framan eins og áður í hvorri hlið – fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringar að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm á að prjóna þannig:
6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið perlustroffprjón eins og áður yfir næstu 45-47-51-55-61-67 lykkjur, prjónið 11-17-19-21-23-25 lykkjur garðaprjón, prjónið perlustroffprjón eins og áður yfir næstu 91-93-101-109-123-133 lykkjur, prjónið 11-17-19-21-23-25 lykkjur garðaprjón, prjónið perlustroffprjón eins og áður yfir næstu 45-47-51-55-61-67 lykkjur, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður.

Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki.

SKIPTING VIÐ HANDVEG:
Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig:
Prjónið 54-56-60-64-70-76 lykkjur eins og áður (= framstykkið ásamt kanti að framan), fellið af næstu 5-11-13-15-17-19 lykkjur fyrir handveg, prjónið 97-99-107-115-129-139 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 5-11-13-15-17-19 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 54-56-60-64-70-76 lykkjur eins og áður (= framstykki ásamt kanti að framan). Í hvorri hlið á hvorum handvegi er 3 lykkjur í garðaprjóni. Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 54-56-60-64-70-76 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónið frá röngu. Haldið áfram með perlustroffprjón og garðaprjón fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT sem í hverri umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg, prjónið þannig:
Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið perlustroffprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
Fækkið lykkjum svona alls 6-4-6-6-10-12 sinnum (12-8-12-12-20-24 umferðir prjónaðar) = 48-52-54-58-60-64 lykkjur eftir.

Þegar stykkið mælist 28-28-30-31-34-37 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona alls 18-20-20-22-24-26 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur eftir fyrir öxl.
Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Fellið síðan af fyrir skáhallandi öxl:

UMFERÐ 1 (= rétta): Fellið af fyrstu 8-8-8-9-9-10 lykkjur í umferð, prjónið út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið út umferðina eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 til 2 alls 3 sinnum = 6-8-10-9-9-8 lykkjur eftir fyrir öxl.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vestið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá efst á öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 54-56-60-64-70-76 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónið frá röngu. Haldið áfram með perlustroffprjón og garðaprjón fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT sem í hverri umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg, prjónið þannig:
Prjónið eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), endið með 3 lykkjur í garðaprjóni eins og áður.
Fækkið lykkjum svona alls 6-4-6-6-10-12 sinnum (12-8-12-12-20-24 umferðir prjónaðar) = 48-52-54-58-60-64 lykkjur eftir – munið eftir HNAPPAGAT.

Þegar stykkið mælist 28-28-30-31-34-37 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona alls 18-20-20-22-24-26 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur eftir fyrir öxl.
Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Fellið síðan af fyrir skáhallandi öxl þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Fellið af fyrstu 8-8-8-9-9-10 lykkjur í umferð, prjónið út umferðina eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 til 2 alls 3 sinnum = 6-8-10-9-9-8 lykkjur eftir fyrir öxl.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vestið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá efst á öxl.

BAKSTYKKI:
= 97-99-107-115-129-139 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Haldið áfram með perlustroffprjón með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður JAFNFRAMT sem í hverri umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg, prjónið þannig:
Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), endið með 3 lykkjur í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum svona alls 6-4-6-6-10-12 (12-8-12-12-20-24 umferðir prjónaðar) = 85-91-95-103-109-115 lykkjur eftir.
Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm prjónið mynstur fram og til baka eins og áður, en prjónað er garðaprjón yfir miðju 37-39-39-43-49-51 lykkjurnar.

Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 21-23-23-27-33-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

ÖXL:
= 32-34-36-38-38-40 lykkjur.
Nú eru felldar af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 30-32-34-36-36-38 lykkjur eftir á öxl.
Fellið síðan af fyrir skáhallandi öxl í byrjun hverrar umferðar frá öxl þannig:
Fellið af fyrstu 8-8-8-9-9-10 lykkjur í umferð, prjónið út umferðina eins og áður. Fellið svona af alls 3 sinnum = 6-8-10-9-9-8 lykkjur eftir fyrir öxl.
Fellið af. Vestið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá efst á öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma lykkju að lykkju meðfram skáhallandi öxlinni (þ.e.a.s. 30-32-34-36-36-38 lykkjur á hvorri öxl). Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.02.2025
Leiðrétting í nafni á lit og litanúmeri
Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2025
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting á fram- og bakstykki.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 257-4
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coffeeridgevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag YOUNESS HAMDANE skrifaði:

MERCI

05.06.2025 - 15:43

country flag Christine skrifaði:

For pattern Coffee Ridge Vest, how do I work the 24 increased stitches by increasing 7 on each side? 1st row is only total of 2 increases. 3rd is also 2 increases. Instructions say to only work Rows 1-4 three times, that would be a total of only 12 increases. Thanks.

26.05.2025 - 20:20

DROPS Design svaraði:

Hi Christine, You increase "inside" the 7 outermost stitches on each side (after the first 7 stitches and before the last 7 stitches on the row). You increase 1 stitch each side on rows 1 and 3 (2 stitches increased each row) and work rows 1-4 x 6 = 24 increased stitches in total. Regards, Drops Team.

27.05.2025 - 06:44

country flag Stephanie Grace skrifaði:

For the pattern Coffee Ridge Vest, beginning from the wrong side, do you mean Row 1: Purl One, Knit One Row 2: Knit

01.05.2025 - 21:07

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Grace, correct, that way the P stitch from wrong side will be the stitch in stocking stitch (the K1 in the rib) while the K stitch from wrong side will be the stitch in garter stitch. Happy knitting!

02.05.2025 - 08:47

country flag Anna skrifaði:

Hei, jeg prøver å strikke økningen på 1-4 pinne. Det står at det skal gjøres totalt 3 ganger, men da kommer jeg bare fram til 12 m økt. Er det 3 økninger eller 6?

01.03.2025 - 20:01

DROPS Design svaraði:

Hej Anna, du øker 1 maske i hver side (= 2 masker) på pind 1 og pind 3 (= 4 masker) det gør du 6 gange 4 x 6 = 24 masker økt :)

06.03.2025 - 14:32

country flag Eva skrifaði:

Är det verkligen färg 49 Choklad på bilden? Ser ut som färg 51 Dubbel latte?

28.02.2025 - 13:40

DROPS Design svaraði:

Hej Eva. Tack för info! Du har rätt, vi har nu ändrat detta. Mvh DROPS Design

28.02.2025 - 14:01