Valerie Sauvage skrifaði:
Bonjour, Il est écrit de mettre un marqueur (pour le pouce) dans la troisième maille à partir de la fin du tour, est ce que cela veut dire : 3 mailles avant la fin du tour ou la 3ieme après la fin du tour( qui serait le début de l'autre tour) pourriez vous svp l'expliquer . Je suis perplexe. Merci de prendre le temps de me répondre, j'apprécie beaucoup Valérie
04.12.2024 - 03:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Sauvage, mettez le marqueur dans la 3ème maille à partir de la fin du tour, autrement dit, après cette maille avec un marqueur, il reste 2 mailles avant le début du tour. Bon tricot!
04.12.2024 - 08:03
Freja Padkær skrifaði:
Hej! Jeg er lidt i tvivl om hvad det betyder når i skriver: “Maskeantallet i A.1 vil variere, men tælles altid som 6 masker.” Når jeg strikker det, så er det som om at det blive ulige. Der er altid to vrangmasker på højre side af A1, men på venstre side svinger det, og her er det bredere og ofte 3 vrangmasker. Er dette bare en del af opskriften? Eller gør jeg noget forkert?:) På forhånd tak! Venlig hilsen Freja
02.11.2024 - 02:28DROPS Design svaraði:
Hei Freja. A.1 skal alltid telles som 6 masker. Om du f.eks strikker str. S/M starter du med 45 masker, strikk de 7 første maskene i vrangbord (rett-vrang-rett-vrang-rett-vrang-rett), sett en maskemarkør (da har du en bedre oversikt) deretter A.1 (som starter og slutter med 2 vrang), sett en maskemarkør, så strikkes det vrangbord over 32 masker (start med rett og avslutt med vrang). Du vil da ha 2 vrangmasker før (de 2 første maskene i A.1) og etter (de 2 siste maskene i A.1) selve fletten i A.1. Når vrangborden er ferdig strikkes det glattstrikk + A.1, bruk maskemarkørene og du har en bedre oversikt. mvh DROPS Design
04.11.2024 - 08:33
Rising Tide Mittens#risingtidemittens |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með köðlum úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 253-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Lykkjufjöldinn í A.1 kemur til með að breytast, en er alltaf talinn sem 6 lykkjur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal): Prjónið fram að lykkju með merki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með merki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan svo ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er prjónað þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu þannig að alltaf er aukið út að utanverðu við útauknar lykkjur. Á UNDAN ÞUMALLYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR ÞUMALLYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er í hring á sokkaprjóna, prjónað er frá úlnlið og upp. Fyrir miðju ofan á vettlingi er prjónaður kaðall. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 45-47-49 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið í hring þannig: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 7-9-9 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir síðustu 32-32-34 lykkjur. Prjónið stroff svona hringinn í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður þannig: Prjónið 7-9-9 lykkjur sléttprjón jafnframt er fækkað um 0-1-1 lykkju yfir þessar (= 7-8-8 lykkjur), prjónið A.1, prjónið sléttprjón út umferðina JAFNFRAMT er fækkað um 5-2-4 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44 lykkjur. Setjið 1 merki í þriðju lykkju innan við lok umferðar (= þumallykkja – það á að nota merkið síðar þegar auka á út fyrir þumal). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist 1 cm frá stroffi. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú á að auka út fyrir opi fyrir þumal, prjónið sléttprjón og mynstur A.1 eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í 3. Hverri umferð 4-5-6 sinnum = 48-54-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5½-6½-7 cm frá stroffi, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður þar til 5-6-7 lykkjur eru eftir á undan þumallykkju, setjið næstu 11-13-15 lykkjur á þráð (þ.e.a.s. lykkja með merki og þær 5-6-7 lykkjur hvoru megin við þær), fitjið upp 3 nýjar lykkjur á bakhlið við þumallykkjur, prjónið afgang af umferðinni slétt = 40-44-44 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist 19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti, það eru eftir ca 3½-4-4 cm að loka máli. Stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 20-22-22 lykkjur, þannig að það séu jafn margar lykkjur hvoru megin við merkiþræðina. Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 merkiþræðina – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-6-6 sinnum = 20-20-20 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman = 10-10-10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALL: Setjið 11-13-15 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3, prjónið einnig upp 3 lykkjur á bakhlið á þumli = 14-16-18 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til þumallinn mælist ca 5-5½-6 cm. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 7-8-9 lykkjur. Prjónið 1-0-1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 4-4-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur fram að þumallykkju sem á að merkja. Þumallykkjan er staðsett í 10-11-11 lykkju eftir mynstur A.1, þ.e.a.s. það eru 17-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir þumallykkju. Prjónið síðan á sama hátt og hægri vettlingur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #risingtidemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.