Rachel skrifaði:
Bonjour, je fais ce pull en L. Sur l'info crochet, il est bien marqué d'effectuer trois mailles en l'air au début de chaque rang de bride, qu'elles ne comptent pas comme des brides, mais se font en plus. J'ai donc 80 brides + trois mailles en l'air ? Est-ce normal que cela fasse des bords ondulés ? Il y a la vidéo explicative "comment avoir des bords droits" mais ils ne font pas du tout cette technique de trois mailles en l'air en plus ? Merci d'avance !
16.04.2025 - 20:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Rachel, effectivement, les 3 mailles en l'air du début des rangs ne comptent pas comme une bride; vous pouvez utiliser l'astuce de la vidéo pour avoir des bords droits, au choix. Bon crochet!
22.04.2025 - 10:36
Sussie Kårlin skrifaði:
Jag når full ökning till V-ringning, 11 ggr, innan arbetet blivit 22 cm (L) och där kan påbörja ökning till ärmhål. Det betyder att det blir ett ”jack” mellan de båda framstyckena innan ihopvirkning. Är det ok? Eller vad gör jag fel?
31.01.2025 - 22:41DROPS Design svaraði:
Hej Sussie, hækler du i DROPS Air og har du 8,5 varv i højden? Hvis du virkar för tight og bliver færdig for tidlig, så kan du hækle en ekstra varv ind imellem ökningerne :)
12.02.2025 - 07:45
Silvia skrifaði:
Grazie per la risposta ma probabilmente te mi sono spiegata male. Io conto le 26 maglie della spalla destra (24 iniziali + 1 aumento + 3 cat iniziali) più le 26 della sinistra (idem come spalla destra) più le 16 cat del collo = 68 maglie totali e non 66. Corretto? Grazie mille!
19.01.2025 - 21:00
Silvia skrifaði:
Buongiorno. Non capisco una parte delle istruzioni. Le due spalle hanno entrambe 3 catenelle all’inizio di ogni riga (che non sostituiscono la MA), quindi un totale di 26 maglie ciascuna. Come possono esserci 66 maglie dopo l’unione delle due spalle? Inoltre se devo iniziare ogni riga di MA con 3 cat, perché viene specificato il riferimento alle “informazioni per il lavoro” solo in alcune righe? Grazie per le spiegazioni
18.01.2025 - 09:41DROPS Design svaraði:
Buonasera Silvia, nella lavorazione delle spalle si aumenta una maglia e quando si uniscono, dopo aver lavorato la spalla sinistra si avviano a nuovo le maglie del collo prima di lavorare la spalla destra. Buon lavoro!
19.01.2025 - 15:23
Eva Arnström Sundman skrifaði:
Det står i mönstret för bakstycket att jag ska virka tills arbetet mäter 22 cm i min storlek (L). Men det står inte om jag ska mäta från axeln eller från halsringningen?
03.12.2024 - 19:38DROPS Design svaraði:
Hej Eva, det er fra starten du mäter. Du ser også målene i måleskitsen nederst i mønsteret :)
06.12.2024 - 14:26
Veronique Boyer skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas comment réunir les 2 epaules PUIS faire le dos. Est-il possible d avoir un schéma détaillé svp ? Je vous en remercie par avance.
10.11.2024 - 11:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Boyer, quand vous avez crocheté les 2 premiers rangs de l'épaule droite du dos, coupez le fil et mettez en attente. Crochetez les 2 premiers rangs de l'épaule gauche du dos, puis au début du rang suivant crochetez: les mailles de l'épaule gauche du dos comme avant, crochetez les mailles en l'air nécessaire pour l'encolure dans votre taille et crochetez les mailles de l'épaule droite. Vous avez réuni les 2 épaules et pouvez continuer à crocheter le dos. Bon crochet!
11.11.2024 - 09:20
Marijke Noorman skrifaði:
Ik breien graag zijn daar ook patronen Van dankjewel
26.10.2024 - 18:51DROPS Design svaraði:
Dag Marijke,
Jazeker, we hebben veel breipatronen op onze site staan. Met onze zoekfunctie kun je op stekenverhouding, soort patroon, kleur ect. patronen vinden.
27.10.2024 - 14:20
Elisabeth skrifaði:
Dank voor het duidelijke patroon.
26.10.2024 - 14:49
Silver Moon#silvermoonsweater |
|
![]() |
![]() |
Hekluð stór / oversize peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlum og v-hálsmáli. Stærð XS-XXL.
DROPS 252-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR HEKL: Í hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. Þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru sem viðbót. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 lykkjur saman í 1 lykkju þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. Framstykkið og bakstykkið er heklað hvert fyrir sig. Heklað er ofan frá og niður og stykkin eru saumuð saman. Lykkjur eru heklaðar upp meðfram handvegi og ermar eru heklaðar fram og til baka ofan frá og niður. Heklaður er kantur meðfram hálsmáli. Í lokin er saumað saman mitt undir ermum og niður meðfram fram- og bakstykki. HÆGRI ÖXL: Heklið 24-26-28-29-31-32 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air. UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið UPPLÝSINGAR HEKL og heklið 3 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta stuðul), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 24-26-28-29-31-32 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 23-25-27-28-30-31 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðla = 25-27-29-30-32-33 stuðlar. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Heklið 24-26-28-29-31-32 loftlykkjur. UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið UPPLÝSINGAR HEKL, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 24-26-28-29-31-32 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 23-25-27-28-30-31 stuðlum = 25-27-29-30-32-33 stuðlar. Í næstu umferð eru báðar axlirnar heklaðar saman fyrir bakstykki. BAKSTYKKI: Haldið áfram með þráðinn frá vinstri öxl og heklið yfir vinstri öxl frá réttu með 1 stuðul í hvern stuðul (= 25-27-29-30-32-33 stuðlar), heklið 16-18-18-20-20-22 loftlykkjur, heklið yfir hægri öxl frá réttu með 1 stuðul í hvern stuðul (= 25-27-29-30-32-33 stuðlar). Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul / loftlykkju = 66-72-76-80-84-88 stuðlar. Heklið fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Klippið þráðinn. Nú á að fitja upp lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið, þetta er gert þannig: Heklið 2-2-3-4-5-7 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern af 66-72-76-80-84-88 stuðlafrá bakstykki (passið uppá að bakstykkið sé heklað í aðra hverja umferð frá réttu og röngu), endið á að hekla 2-2-3-4-5-7 loftlykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju / stuðul = 70-76-82-88-94-102 stuðlar. Heklið fram og til baka þar til stykkið mælist 55-58-60-62-64-66 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 24-26-28-29-31-32 loftlykkjur. UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 24-26-28-29-31-32 stuðlar. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 10-10-11-11-12-12 cm. Nú er aukið út fyrir v-hálsmáli, aukið út 1 stuðul í hverri umferð með því að hekla 2 stuðla í 2. stuðul við hálsmál – þ.e.a.s. frá réttu eru heklaðir 2 stuðlar í 2. stuðul, frá röngu eru heklaðir 2 stuðlar í næst síðasta stuðul. Aukið svona út fyrir v-hálsmáli í hverri umferð alls 9-10-10-11-11-12 sinnum, jafnframt þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm, aukið út fyrir handveg þannig: Heklið frá réttu eins og áður út umferðina, endið umferðina með því að hekla 2-2-3-4-5-7 loftlykkjur. Heklið síðan 1 stuðul í hverja af nýjum loftlykkjum. Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, mælist stykkið ca 21-22-23-24-25-26 cm og það eru 35-38-41-44-47-51 stuðlar á framstykki. Geymið stykkið og heklið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 24-26-28-29-31-32 loftlykkjur. UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 24-26-28-29-31-32 stuðlar. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 10-10-11-11-12-12 cm. Nú er aukið út fyrir v-hálsmáli – stillið af að byrjað er í sömu umferð eins og á vinstra framstykki, þannig að síðasta umferð sé alveg eins og á vinstra framstykki. Aukið út um 1 stuðul fyrir v-hálsmáli í hverri umferð með því að hekla 2 stuðla í 2. stuðul við hálsmál – þ.e.a.s. frá réttu eru heklaðir 2 stuðlar í næst síðasta stuðul, frá röngu eru heklaðir 2 stuðlar í 2. stuðul. Aukið svona út fyrir v-hálsmáli í hverri umferð alls 9-10-10-11-11-12 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm, aukið út fyrir handveg þannig: Næsta umferð er hekluð frá réttu. Klippið þráðinn og heklið 2-2-3-4-5-7 loftlykkjur, heklið yfir framstykki eins og áður frá réttu út umferðina. Síðan er heklaður 1 stuðul í hverja af nýjum loftlykkjum. Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, mælist stykkið ca 21-22-23-24-25-26 cm og það eru 35-38-41-44-47-51 stuðlar á framstykki. Nú á að hekla framstykkin saman með útaukningu fyrir hálsmáli að hvoru öðru. FRAMSTYKKI: Athugið vel hvort síðasta umferð á framstykkjum sé heklað frá röngu eða frá réttu – framstykkin eru hekluð saman í næstu umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. Ef hekla á næstu umferð frá réttu, heklið yfir hægra framstykki fyrst, síðan er heklað yfir vinstra framstykki = 70-76-82-88-94-102 stuðlar. Ef hekla á næstu umferð frá röngu, heklið vinstra framstykki fyrst, síðan er heklað yfir hægra framstykki = 70-76-82-88-94-102 stuðlar. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 55-58-60-62-64-66 cm – passið uppá að framstykkið sé jafn langt og bakstykkið. FRÁGANGUR-1: Saumið axlir saman. ERMAR: Nú eru heklaðir upp loftlykkjubogar fyrir ermi. Byrjið á að hekla 1 fastalykkju um ysta stuðul innan við þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir handveg, heklið meðfram handveg þannig: * Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um ysta stuðul ca 1½ cm frá fyrri fastalykkju *, heklið frá *-* 27-28-29-31-32-34 sinnum jafnt yfir = 27-28-29-31-32-34 loftlykkjubogar. Snúið og heklið 2 stuðla í hvern loftlykkjuboga = 54-56-58-62-64-68 stuðlar. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið þannig: Heklið 1 stuðul, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, heklið þar til 3 stuðlar eru eftir, heklið 2 stuðla saman, endið með 1 stuðul. Fækkið lykkjum svona í hverjum 4-4-4-3-3-3 cm alls 9-9-9-11-11-13 sinnum = 36-38-40-40-42-42 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 49-49-48-48-47-47 cm frá öxl. FRÁGANGUR-2: Byrjið á að sauma botninn á handvegi við hvora hlið á fram-/bakstykki, síðan er ermin saumuð saman fyrir miðju að neðan / undir alveg niður í ysta stuðul. Saumið saman framstykkið og bakstykkið í hliðum í ysta stuðul. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið með 1 fastalykkju mitt í v-hálsmáli á framstykki og heklið í kringum kant í hálsmáli um ysta stuðul frá réttu þannig: * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, heklið frá *-* í kringum allan kant í hálsmáli, endið með 2 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silvermoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.