Kimonin skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas la partie auriculaire sachant que moi j'ai mis de côté les 17 mailles mais en fait ça reviendrait à mettre l'auriculaire en fin de la main auriez-vous des conseils
15.11.2024 - 14:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kimonin, dans la 2ème taille, vous avez 42 mailles vous mettez en attente les 17 premières mailles du tour et vous gardez les 9 mailles suivantes (= côté opposé au pouce) et vous mettez en attente les mailles restantes - pour la main gauche, le pouce était fait en fin de tour; l'auriculaire se trouve au milieu du tour = 17 m pour le dos de la main et 16 m pour la paume = 9 m entre les 2 pour l'auriculaire. Bon tricot!
15.11.2024 - 17:11
Eli skrifaði:
In this pattern it says 2 strands, does that mean i need 2 different balls of yarn and knit from 2 balls?
02.11.2024 - 20:47DROPS Design svaraði:
Dear Eli, yes, 2 strands is 2 strands together when working. So you take 1 strand of DROPS Nord and 1 strand of DROPS Kid-Silk and work the piece with both of them together. Happy knitting!
03.11.2024 - 18:17
Lali skrifaði:
Buongiorno, ho appena finito i guanti, semplicemente perfetti! Grazie per le istruzioni facili da seguire!
28.09.2024 - 09:32
Angela skrifaði:
Hi team, please may you advise what is the circumference of the glove for the two sizes ? I'm not sure which size I should knit for my hands
27.09.2024 - 07:26DROPS Design svaraði:
Hi Angela, With a knitting tension of 20 stitches = 10 cm when working stocking stitch, the S/M size will have a cuff circumference of approx. 25 cm (as rib is tighter than stocking stitch) and a hand circumference of 17 cm. The M/L size will have approx. 28 cm cuff and 20 cm hand. Happy knitting!
27.09.2024 - 08:26
Germana Wiels skrifaði:
Als jullie schrijven elke 3 de naald meerderen ( duim handschoenen) Bedoelen jullie dan 1 naald meerderen , 1 naald breien of moeten er meerdere naalden tussen zijn ? Vrgr Germana
24.03.2024 - 11:13DROPS Design svaraði:
Dag Germana,
Met iedere derde naald wordt bedoeld: naald 1 niet meerderen, naald 2 niet meerderen, naald 3 wel meerderen.
24.03.2024 - 19:59
Van Kempen skrifaði:
Gefällt mir
08.08.2023 - 18:24
Renate skrifaði:
Warm-UP
05.08.2023 - 19:50
Sophie skrifaði:
Butterscotch Gloves
04.08.2023 - 20:10
Jeannine skrifaði:
Fits like a glove
04.08.2023 - 08:38
Małgorzata Podkońska skrifaði:
Niezbędne na zimę
03.08.2023 - 19:19
Soft Caramel Gloves#softcaramelgloves |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir fingravettlingar úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni.
DROPS 242-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá úlnlið að fingurtoppum. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 60-65 lykkjur á sokkaprjóna 3 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Síðan er prjónað stroffprjón (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 9-10 cm, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 24-23 lykkjur jafnt yfir = 36-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-13 cm, byrjar útaukning fyrir þumalfingur. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við næst síðustu lykkjuna í umferð – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í ytri hlið á útauknu lykkjunum í 3. hverri umferð alls 5-6 sinnum = 46-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18 cm, setjið 11-13 þumallykkjurnar á þráð. Fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumalfingur = 36-42 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-22 cm. Setjið fyrstu 15-17 lykkjur frá hönd á þráð, haldið eftir næstu 7-9 lykkjum á prjóni fyrir litlafingur og setjið síðustu 14-16 lykkjur innan í hönd á annan þráð. Síðan eru fingurnir og höndin prjónað til loka eins og útskýrt er að neðan. LITLIFINGUR: = 7-9 lykkjur. Fitjið upp 3 nýjar lykkju við lykkjur á þræði = 10-12 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÖND: Setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn, prjónið að auki upp 3 lykkjur við litla fingur = 32-36 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Haldið eftir 3 nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp við litla fingur og að auki 4-5 lykkjum hvoru megin við þessar lykkjur á prjóni. Setjið til baka þær lykkjur sem eftir eru á sitt hvorn þráðinn (11-12 lykkjur ofan á hönd og 10-11 lykkjur innan í hönd). BAUGFINGUR: = 11-13 lykkjur. Fitjið upp 1 nýja lykkju við lykkjur á þræði = 12-14 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7-8 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. LANGATÖNG: Setjið til baka 5-6 lykkjur af þræði ofan á hönd og 4-5 lykkjur af þræði innan í hönd á prjóninn, prjónið að auki upp 2 lykkjur við baugfingur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur við lykkjur á þráðum = 13-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7½-8½ cm. Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt = 7-8 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær 12-12 lykkjur sem eftir eru af þráðum á prjóninn, prjónið að auki upp 2-3 lykkjur við löngutöng = 14-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 6½-7½ cm. Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 þar til 0-1 lykkja er eftir, prjónið 0-1 lykkju slétt = 7-8 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka lykkjur frá opi fyrir þumalfingur á prjóninn og prjónið að auki upp 4 lykkjur í kanti á bakhlið á þumallykkjum = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm. Í næstu umferð eru lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt = 8-9 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, en aukið út fyrir þumalfingur hvoru megin við 2. lykkju í byrjun á umferð. Þegar stykkið skiptist fyrir litlafingur eru fyrstu 14-16 lykkjur innan í hönd settar á þráð, haldið eftir næstu 7-9 lykkjum á prjóni fyrir litlafingur og setjið síðustu 15-17 lykkjur á hönd á annan þráð. Prjónið síðan fingur og hönd til loka á sama hátt og vinstri vettlingur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softcaramelgloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.