Tina skrifaði:
Looks like a cute hat with its small crimp but hard to tell without an image from the front. Anyways, I'd like to know how much yarn I'd need for this hat but in one color only? Surely less than 300g? Thanks in advance!
20.07.2024 - 11:21DROPS Design svaraði:
Dear Tina, the 50g of each colour is because 50g is the minimal unit possible of each colour, since we use 50g balls for this piece. If you work a single colour version you'd need approx. 3 balls of yarn of that colour. Happy crochetting!
21.07.2024 - 21:03
Lisbeth Rudbeck skrifaði:
Fin opskrift
06.07.2024 - 21:56
Filippa Andersson skrifaði:
Finns det ingen mönsterbok att köpa? Är intresserad av senaste nytt och den randiga virkade hatten.
05.11.2023 - 14:05
Abc skrifaði:
Oh happy day
22.01.2023 - 17:36
Valérie skrifaði:
Je le trouve très sympa
17.01.2023 - 21:56
Lilian skrifaði:
I would make it but in pastel rainbow
17.01.2023 - 21:03
Nedellec skrifaði:
Pour aller à la plage….
17.01.2023 - 19:16
Isabel Sarle skrifaði:
Looks fund to make and to wear.
17.01.2023 - 14:09
Double Rainbow Hat#doublerainbowhat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður með regnbogaröndum. Stærð S - XL.
DROPS 238-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. RENDUR: Heklið fyrstu 5-6-6 umferðir með litnum rauður, síðan eru rendur heklaðar í eftirfarandi röð: * 3 umferðir með litnum appelsína, 3 umferðir með litnum fífill, 3 umferðir með litnum páfagaukagrænn, 3 umferðir með litnum kóngablár, 3 umferðir með litnum fjólublár, 3 umferðir með litnum rauður *, heklið frá *-* að loka máli – passið uppá að enda með heila rönd. LITASKIPTI: Þegar skipta á um lit í næstu umferð, er fallegast að skipta um lit áður en síðasta keðjulykkjan frá fyrri umferð er hekluð – þá verður fallegri skil yfir í nýjan lit. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður, þ.e.a.s. heklað er ofan frá á hatti og niður, síðan er barðið heklað í hring. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum rauður í DROPS Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 6 fastalykkjur um hringinn – lesið RENDUR og LITASKIPTI í útskýringu að ofan. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 lykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu/næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 lykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af 3 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 lykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af 4 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 lykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af 5 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 42 lykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja af 6 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 lykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af 7 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 54 lykkjur. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af 8 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 60 lykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af 9 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 66 lykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hverja af 10 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 lykkjur. UMFERÐ 13 * 1 fastalykkja í hverja af 11 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 78 lykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hverja af 12 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 84 lykkjur. STÆRÐ S/M: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 20 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 88 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð S/M. STÆRÐ M/L: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 13 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 90 lykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af 44 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 92 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð M/L. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 13 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 90 lykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af 14 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 96 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð L/XL. ALLAR STÆRÐIR: = 88-92-96 lykkjur. Heklið 16-16-19 umferðir með röndum eftir útskýringu, en án útaukningar þar til stykkið mælist ca 15-15-16½ cm frá uppfitjun. Nú er barðið heklað eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: Heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn JAFNFRAMT því sem aukið er út um 14-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 102-106-110 lykkjur. UMFERÐ 2-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12-13-13 lykkjur jafnt yfir = 114-119-123 lykkjur. UMFERÐ 6-8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12-13-13 lykkjur jafnt yfir = 126-132-136 lykkjur. UMFERÐ 10-13: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 14: Notið tvo þræði með sama lit og fyrri umferð og heklið 1 keðjulykkju um hverja fastalykkju – passið uppá að hekla keðjulykkjurnar ekki of fast. Klippið þræðina og festið. Hatturinn mælist ca 21-22-23 cm frá uppfitjun efst á hatti. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #doublerainbowhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.