Jeannette Thompson skrifaði:
Do you have these hats in knitting pattern please
03.03.2024 - 19:17DROPS Design svaraði:
Dear Jeannette, you could use the following pattern: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=8669&cid=19. The stripes are not equal but you can simply adjust the pattern by setting an equal stripe width for all colours. You can also see here other summer hat knitting patterns: https://www.garnstudio.com/search.php?action=browse&c=women-summer-hats&mt=1&lang=en. Happy knitting!
03.03.2024 - 23:05
Nena Elliot skrifaði:
"Scrappy rainbow chic" Great way to use up leftovers, and scrappy would be a popular search term
17.01.2023 - 21:54
Isabel Sarle skrifaði:
It looks like a fun hat to make and wear.
17.01.2023 - 14:08
True Colours Hat#truecolourshat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður með regnbogaröndum. Stærð S - XL.
DROPS 238-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. RENDUR: Uppfitjunin ásamt 9-9-8 fyrstu umferðum er heklað með litnum rauður (stykkið mælist ca 4-4-4 cm), síðan eru rendur heklaðar í eftirfarandi röð: 7-7-8 umferðir með litnum appelsína (stykkið mælist ca 7½-7½-8 cm), 7-7-8 umferðir með litnum fífill (stykkið mælist ca 11-11-12 cm), 7-7-8 umferðir með litnum páfagaukagrænn (stykkið mælist ca 14-14-15½ cm), 7-7-8 umferðir með litnum kóngablár (stykkið mælist ca 17½-17½-19½ cm), síðan er heklað með litnum fjólublár til loka máls (ca 7-8-8 umferðir með fastalykkjum). LITASKIPTI: Þegar skipta á um lit í næstu umferð, er fallegast að skipta um lit áður en síðasta keðjulykkjan frá fyrri umferð er hekluð – þá verður fallegri skil yfir í nýjan lit. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður, þ.e.a.s. heklað er ofan frá á hatti og niður, síðan er barðið heklað í hring. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum rauður í DROPS Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 6 fastalykkjur um hringinn með litnum rauður. Síðan eru heklaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan og lesið LITASKIPTI. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 lykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu/næstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 lykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af 3 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 lykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af 4 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 lykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af 5 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 42 lykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja af 6 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 lykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af 7 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 54 lykkjur. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af 8 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 60 lykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af 9 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 66 lykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hverja af 10 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 lykkjur. UMFERÐ 13 * 1 fastalykkja í hverja af 11 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 78 lykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hverja af 12 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 84 lykkjur. STÆRÐ S/M: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 20 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 88 lykkjur. Útaukningar hafa verið gerðar til loka í stærð S/M. STÆRÐ M/L: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 13 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 90 lykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af 44 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 92 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð M/L. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 13 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 90 lykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af 14 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 96 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð L/XL. ALLAR STÆRÐIR: = 88-92-96 lykkjur. Heklið 16-16-19 umferðir með röndum eftir útskýringu, en án útaukningar þar til stykkið mælist ca 15-15-16½ cm frá uppfitjun. Nú er barðið heklað eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: Heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn JAFNFRAMT því sem aukið er út um 14-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 102-106-110 lykkjur. UMFERÐ 2-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12-13-13 lykkjur jafnt yfir = 114-119-123 lykkjur. UMFERÐ 6-8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12-13-13 lykkjur jafnt yfir = 126-132-136 lykkjur. UMFERÐ 10-13: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 14: Notið tvo þræði í litnum fjólublár og heklið 1 keðjulykkju um hverja fastalykkju – passið uppá að hekla keðjulykkjurnar ekki of fast. Klippið þræðina og festið. Hatturinn mælist ca 21-22-23 cm frá uppfitjun efst á hatti. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #truecolourshat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.