Anna skrifaði:
Ich stricke mit dem angegebenen Garn und einem Nadelspiel Gr. 2,5. Das Rippenmuster sieht nicht gleichmäßig aus, die rechte Masche for den drei linken Maschen wird ungleichmäßig und größer als ihre Nachbar Masche in rechts.
15.02.2025 - 10:22DROPS Design svaraði:
Liebe Anna, vielleicht liegt es daran, wie Sie die erste dieser drei rechten Maschen stricken, anders gesagt, von der Position Ihres Fadens zwischen der letzten linken Masche und der ersten rechten Masche. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!
17.02.2025 - 07:56
Janikke skrifaði:
Strikket største størrelse med Fabel. Trengte bare 100 gram.
27.01.2025 - 15:10
May skrifaði:
Åååååja! 😂 Takk, da gikk det et lys opp for meg.
18.12.2024 - 14:46
May skrifaði:
Jeg strikker 38/40. Omgangen starter med to rett. Jeg skal nå strikke forsiden i ribb og bakside i glattstrikk. Gjør jeg ingen endringer vil forsiden starte og slutte med to rett. Hvorfor skal jeg gjøre noe for at mønsteret skal passe når det allerede passer (30 m på forside - *2r, 2vr *2r)? Hvis jeg starter med 1r og fortsetter med 2r, 2vr vil ikke mønsteret stemme. Og jeg forstår fortsatt ikke hva 1-2-1 betyr. Dårlig forklart i oppskriften.
18.12.2024 - 14:35DROPS Design svaraði:
Hej May, 1-2-1 betyder 1 rett i den mindste størrelse, 2 betyder 2 rett i den mellemste størrelse og 1 betyder 1 rett i den største størrelse.
18.12.2024 - 14:43
May skrifaði:
Jeg forstår ikke hva som menes med at "men for at mønsteret skal stemme oppe på foten skal omgangen starte med 1-2-1 rettmasker" Hva betyr "1-2-1" skal jeg starte med 4 r? Dette gir ingen mening... Og, hvis jeg isteden strikker de første 30 som mønsteret (*2 r 2 vr* 2r) begynner og slutter omg foran med 2r...
18.12.2024 - 09:15DROPS Design svaraði:
Hej May, hvis du strikker den mindste størrelse, skal du starte med 1 retmaske for at få ribben til at stemme ifølge mønsteret :)
18.12.2024 - 14:15
Dorothé Wittmann skrifaði:
Wo kann ich strapazierfähige Arbeitssockenwolle kaufen?
16.11.2024 - 17:34DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wittmann, DROPS Fabel z.B. finden Sie bei unseren DROPS Händler - siehe Liste hier. Viel Spaß beim Stricken!
18.11.2024 - 07:50
Paola skrifaði:
Graz mille! era un dubbio che avevo da tempo
05.10.2023 - 23:00
Paola skrifaði:
Salve, leggo "Diminuire in questo modo su ogni giro per un totale di 4 volte, poi ogni 2 giri 6-6-7 volte" non ho mai capito se dopo ultimo giro delle quattro volte, inizio subito con un'altra diminuzione oppure faccio un giro senza diminuzione prima di iniziare la parte con diminuzioni x 6 volte. grazie
05.10.2023 - 09:14DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola, può lavorare un giro senza e poi riprendere. Buon lavoro!
05.10.2023 - 21:47
Susana skrifaði:
Forever socks
19.01.2023 - 07:48
Véronique skrifaði:
Beau modèle, classique, j'aimerais que les explications soient données dans toutes les tailles, de l'enfant à l'homme .
18.01.2023 - 20:03
Latitude Lineup#latitudelineupsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-31 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 70-75-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 6 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er fækkað um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu = 56-60-64 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 17-18-19 cm. Héðan er prjónað stroffprjón framan á sokknum og sléttprjón aftan á sokknum, en til að mynstrið passi ofan á fæti á umferðin að byrja með 1-2-1 lykkjur slétt (í stærð 35/37 og 41/43 verður að færa umferðina um 1 lykkju fram þannig að umferðin byrjar á milli 2 lykkja slétt). Prjónið stroffprjón eins og áður yfir fyrstu 28-30-32 lykkjur, prjónið 28-30-32 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 54-58-62 lykkjur. Prjónið stroffprjón framan á sokknum og sléttprjón aftan á sokknum þar til stykkið mælist 19-20-21 cm. Síðan er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Setjið 28-30-32 stroffprjónslykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir 26-28-30 sléttprjónslykkjum á prjóni fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjur, prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið stroffprjón eins og áður yfir 28-30-32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 72-76-82 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 stroffprjónslykkjur ofan á fæti. Haldið áfram með stroffprjón yfir þessar lykkjur og prjónið sléttprjón yfir lykkjur undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður er lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #latitudelineupsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.