Minna Peltonen skrifaði:
Moi. Olisi vähän kysymyksiä liittyen tohon peittoon, joka näyttää tosi kivalta. Kysymys 1: Voiko ton peiton tehdä kahdella värillä? Kysymys 2: Jos tekee ton peiton kahdella värillä niin onko se jaettu yhden väriin niin 650g? Kysymys 3: Jos tekee ton peiton kahdella värillä niin ostanko keriä 13kpl (yhteensä 26kpl)? Ett toivottavasti nämä kysymykset ei ole liian vaikeita meinaan halusin kysyä ennenkun alan tekemään tota, koska siinä käytetään mun lemppari Dropsin lankaa.
07.08.2023 - 16:30DROPS Design svaraði:
Hei, peiton voi tehdä kahdella värillä. Yksiväriseen peittoon tarvitaan n. 1300-1350 g lankaa, joten voit esim. ostaa 14 kerää kumpaakin väriä.
17.08.2023 - 18:36
Anne-Beate Dokken skrifaði:
Hvor finner jeg video som viser monteringen av teppe. Takk for hjelpen.
09.03.2023 - 21:29DROPS Design svaraði:
Hei Anne-Beate, Teknikken for å hekle sammen rutene er beskrevet i teksten. Vi har andre metoder med video på følgende lenke: https://www.garnstudio.com/video.php?action=search&c=5&uc=13&lang=no God fornøyelse!
10.03.2023 - 06:59
Ivana skrifaði:
Flower Power
21.01.2023 - 23:24
Susana Crespo skrifaði:
Grandma blanket
19.01.2023 - 20:17
Anja skrifaði:
"Campervan cosy", was für eine schöne Idee von Aurelia 💛
17.01.2023 - 21:35
Aurelie skrifaði:
"Campervan cosy"
17.01.2023 - 14:16
Country Quilt#countryquiltblanket |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklað teppi með ömmuferningum úr DROPS Paris.
DROPS 238-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir staðsetningu á ferningum. LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkjuna í lok umferðar með nýja litnum. LITIR: Það eru heklaðar 24 ferningar í mismunandi litasamsetningum. Allir ferningarnir hafa 4 umferðir, í 4. umferð á öllum ferningunum er heklaður litur 17, natur. Heklið 4 ferninga í hverri litasamsetningu: FERNINGUR 1: UMFERÐ 1: 71, mandarína UMFERÐ 2: 68, mandla UMFERÐ 3: 70, kirsuberjablóm FERNINGUR 2: UMFERÐ 1: 27, ferskja UMFERÐ 2: 71, mandarína UMFERÐ 3: 35, vanilla FERNINGUR 3: UMFERÐ 1: 66, plóma UMFERÐ 2: 41, sinnep UMFERÐ 3: 70, kirsuberjablóm FERNINGUR 4: UMFERÐ 1: 41, sinnep UMFERÐ 2: 66, plóma UMFERÐ 3: 01, apríkósa FERNINGUR 5: UMFERÐ 1: 27, ferskja UMFERÐ 2: 41, sinnep UMFERÐ 3: 01, apríkósa FERNINGUR 6: UMFERÐ 1: 65, ryð UMFERÐ 2: 58, púðurbleikur UMFERÐ 3: 68, mandla FERNINGUR 7: UMFERÐ 1: 35, vanilla UMFERÐ 2: 58, púðurbleikur UMFERÐ 3: 64, ametist FERNINGUR 8: UMFERÐ 1: 67, hveiti UMFERÐ 2: 64, ametist UMFERÐ 3: 71, mandarína FERNINGUR 9: UMFERÐ 1: 35, vanilla UMFERÐ 2: 68, mandla UMFERÐ 3: 71, mandarína FERNINGUR 10: UMFERÐ 1: 67, hveiti UMFERÐ 2: 64, ametist UMFERÐ 3: 35, vanilla FERNINGUR 11: UMFERÐ 1: 68, mandla UMFERÐ 2: 70, kirsuberjablóm UMFERÐ 3: 66, plóma FERNINGUR 12: UMFERÐ 1: 58, púðurbleikur UMFERÐ 2: 41, sinnep UMFERÐ 3: 65, ryð FERNINGUR 13: UMFERÐ 1: 58, púðurbleikur UMFERÐ 2: 68, mandla UMFERÐ 3: 27, ferskja FERNINGUR 14: UMFERÐ 1: 67, hveiti UMFERÐ 2: 68, mandla UMFERÐ 3: 41, sinnep FERNINGUR 15: UMFERÐ 1: 68, mandla UMFERÐ 2: 41, sinnep UMFERÐ 3: 35, vanilla FERNINGUR 16: UMFERÐ 1: 27, ferskja UMFERÐ 2: 35, vanilla UMFERÐ 3: 01, apríkósa FERNINGUR 17: UMFERÐ 1: 67, hveiti UMFERÐ 2: 71, mandarína UMFERÐ 3: 70, kirsuberjablóm FERNINGUR 18: UMFERÐ 1: 70, kirsuberjablóm UMFERÐ 2: 67, hveiti UMFERÐ 3: 66, plóma FERNINGUR 19: UMFERÐ 1: 66, plóma UMFERÐ 2: 58, púðurbleikur UMFERÐ 3: 71, mandarína FERNINGUR 20: UMFERÐ 1: 35, vanilla UMFERÐ 2: 58, púðurbleikur UMFERÐ 3: 67, hveiti FERNINGUR 21: UMFERÐ 1: 66, plóma UMFERÐ 2: 65, ryð UMFERÐ 3: 70, kirsuberjablóm FERNINGUR 22: UMFERÐ 1: 66, plóma UMFERÐ 2: 58, púðurbleikur UMFERÐ 3: 35, vanilla FERNINGUR 23: UMFERÐ 1: 64, ametist UMFERÐ 2: 41, sinnep UMFERÐ 3: 70, kirsuberjablóm FERNINGUR 24: UMFERÐ 1: 64, ametist UMFERÐ 2: 41, sinnep UMFERÐ 3: 65, ryð ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru heklaðir 4 ferningar í hverri og einni af 24 mismunandi litasamsetningum. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið. TEPPI: Notið heklunál 5,5 og DROPS Paris. Lesið LITASKIPTI og LITIR og heklið ferningana eftir mynsturteikningu A.1. heklið 4 ferninga í hverri litasamsetningu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir, þá hafa verið heklaðir 96 ferningar. FRÁGANGUR: Leggið ferningana eins og útskýrt er í A.2, passið uppá að allir liggi með réttuna upp. Númerin í mynsturteikningu vísa í númer eins og útskýrt er í LITIR. Ferningarnir eru heklaðir saman fyrst á breiddina, síðan á lengdina. Notið heklunál 5,5 og litinn natur til að hekla ferningana saman þannig: Leggið 2 ferninga kant í kant þannig að hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið hann í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram hlið á ferningunum, heklið 1 loftlykkju og heklið síðan frá *-* meðfram 2 næstu ferningum alveg eins. Heklið svona þar til allir ferningarnir í þessari lengju hafa verið heklaðir saman. Heklið allar lengjurnar saman á breiddina. Þegar allar lengjurnar með ferningum hafa verið heklaðar saman á breiddina, heklið allar lengjurnar saman á lengdina alveg eins. KANTUR Í KRINGUM TEPPIÐ: Notið heklunál 5,5 og litinn natur. UMFERÐ 1: Heklið alveg eins og í A.1 og byrjið umferð ca fyrir miðju á einum ferningnum. Heklið 3 stuðla og 1 loftlykkju um hverja loftlykkju meðfram hverjum ferningi, að auki eru heklaðir 3 stuðlar og 1 loftlykkja um hverja loftlykkju meðfram 2 ferninga. Í hornum á teppinu eru heklaðir 3 stuðlar, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar og 1 loftlykkja. Þegar heklað er að byrjun á umferð er skipt yfir í litinn mandarína áður en síðasta keðjulykkjan er hekluð. UMFERÐ 2: Heklið 3 stuðla og 1 loftlykkju um hverja loftlykkju og heklið hornið eins og áður. Skiptið yfir í litinn natur áður en síðasta keðjulykkjan er hekluð. UMFERÐ 3: Heklið eins og 2. umferð og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countryquiltblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.