Meda skrifaði:
For the front of the crop top, after you cast of the center stiches is is one strap worked and then you go back to the other or is there a different technique that is supposed to be used? And after the work measures 36 cm does the side edge mean the side closest to the neckline? Thanks in advance!
19.06.2020 - 05:34DROPS Design svaraði:
Dear Meda, after sts for neck have been cast off, continue each shoulder separately - after 36 cm you cast off stitches for shoulder beg from the armhole side (not from the neck), ie at the beg of a WS row on right shoulder and at the beg of a RS row on left shoulder. Happy knitting!
19.06.2020 - 07:58
Linda Whiter skrifaði:
Can you please tell me what "thread" means when you say 1 thread or 2 thread etc. Many thanks.
02.06.2020 - 21:13DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Whiter, this means you work with 2 strands of yarn Safran held together just as there were only one. You can work with 1 strand from 2 balls for example. Happy knitting!
03.06.2020 - 06:47
Maria Teresa Toni skrifaði:
Buongiorno, è possibile vedere lo scollo dietro ?
02.05.2020 - 10:24DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria Teresa. Purtroppo non abbiamo altre fotografie oltre a quelle pubblicate. Buon lavoro!
02.05.2020 - 14:35
Cassandra skrifaði:
Vorrei realizzare solo il cardigan con il filato drops you 6. Posso comunque lavorarlo a due capi con i ferri 5? Quanto ne occorrerà? Grazie
25.04.2018 - 17:43DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cassandra, il filato drops loves you 6 appartiene allo stesso gruppo di Safran, per cui può provare a lavorare un campione e vedere se corrisponde a quello indicato. Per la quantità di filato necessaria, faccia riferimento a questo link. Buon lavoro!
25.04.2018 - 18:11
Holiday Glow#holidayglow |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur í garðaprjóni úr DROPS Safran og peysa með kraga prjónuð með 2 þráðum DROPS Safran. Stærð S-L.
DROPS 51-2 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *. Endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring en við handveg skiptist stykkið upp og prjónað er fram og til baka. PEYSA: Fitjið upp 194 (206-218) lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum appelsínugulur og prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í 1 þráð gulur og 1 þráð appelsínugulur og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44 (48-50) cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 47 (50-53) lykkjur á framstykki eins og áður, fellið af 4 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 92 (98-104) lykkjur á bakstykki eins og áður, fellið af 4 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 47 (50-53) lykkjur á framstykki eins og áður. Nú er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 47 (50-53) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 (2-3) sinnum, 1 lykkja 3 (4-4) sinnum = 40 (42-43) lykkjur. Þegar stykkið mælist 61 (65-68) cm fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 5 (6-6) lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 3 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 69 (73-76) cm. BAKSTYKKI: = 92 (98-104) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi á sama hátt og á framstykki = 78 (82-84) lykkjur. Þegar stykkið mælist 67 (71-74) cm fellið af miðju 20 (22-22) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 69 (73-76) cm. ERMI: Fitjið upp 38 (38-40) lykkjur á sokkaprjón 5 með 2 þráðum í litnum appelsínugulur og prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum gulur og 1 þráð í litnum appelsínugulur og prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi í 3. hverri umferð 24 (24-25) sinnum = 86 (86-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist 43 (42-41) cm fellið af 4 lykkjur fyrir miðju undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fellið síðan af 3 lykkjur í hvorri hlið á öxl í annarri hverri umferð 8 (9-10) sinnum, fellið af. Stykkið mælist ca 51 (51-51) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 104 (112-118) lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum appelsínugulur og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan - fram og til baka í 3 cm, fellið af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur og prjónið á sama hátt og vinstri kantur, en eftir 1 cm eru prjónuð 7 hnappagöt jafnt yfir – 1 hnappagat= fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. KRAGI: Prjónið upp ca 88-92 lykkjur frá röngu í kringum hálsmál (ekki yfir kant að framan) á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum appelsínugulur og prjónið garðaprjón fram og til baka JAFNFRAMT er aukið út í 6. hverri umverð: 1 lykkja hvoru megin við lykkju fyrir miðju ofan á hvorri öxl. Fellið af þegar kraginn mælist 8-10 cm. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með 2 þráðum í litnum appelsínugulur frá réttu með heklunál 4 þannig: 1 umferð með ca 130-140 fastalykkjur umferðina hringinn neðst á fram- og bakstykki. Heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum í gagnstæða átt, frá vinstri að hægri án þess að snúa stykkinu við. Heklið fastalykkjur frá réttu í hverja fastalykkju frá fyrri umferð. Endurtakið báðar umferðirnar neðst á ermum með ca 25-30 fastalykkjum. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið tölur í kant að framan. ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 98 (106-112) lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur fyrir saum) á hringprjón 3,5 með litnum appelsínugulur og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 (16-17) cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 2 (2-2) sinnum, 1 lykkja 4 (6-8) sinnum = 82 (86-88) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25 (27-29) cm fellið af miðju 14 (16-18) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 2 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 4 sinnum. Þegar stykkið mælist 34 (36-38) cm fellið af frá öxl að hálsmáli í annarri hverri umferð: 5 lykkjur 2 (3-3) sinnum, 4 lykkjur 2 (1-1) sinni. Nú á að vera búið að fella af allar lykkjur á öxl. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á framstykki, nema þegar stykkið mælist 30 (32-34) cm fellið af miðju 18 (20-22) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 2 sinum, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 2 sinnum. Þegar stykkið mælist 34 (36-38) cm fellið af frá öxl að hálsmáli í annarri hverri umferð: 5 lykkjur 2 (3-3) sinnum, 4 lykkjur 2 (1-1) sinnum. Nú á að vera búið að fella af allar lykkjur á öxl. FRÁGANGUR: Saumið axla- og hliðarsauma. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið frá réttu með litnum appelsínugulur og heklunál 2,5 þannig: 1 umferð með ca 120 fastalykkjum í kringum hálsmál. Heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum í gagnstæða átt, frá vinstri að hægri án þess að snúa stykkinu við. Heklið fastalykkjur frá réttu í hverja fastalykkju frá fyrri umferð. Endurtakið báðar umferðir í kringum handveg með ca 85-90 fastalykkjum. |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #holidayglow eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 51-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.