Misty Lines |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð, prjónið þessa lykkju slétt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eftir stærðum. Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Aukið út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/eftir lykkju með prjónamerki. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMFERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð prjónaður á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í A.1. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í A.1. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur með DROPS Wish eða DROPS Air yfir stuttan hringprjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 8 og haldið eftir lykkjum á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 13 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 6 cm. STÆRÐ S, M og L: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-18-18 lykkjur (framstykki), setið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 16-18-18 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-80 lykkjur. Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 20-22-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 20-22-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, sækið þráðinn og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 76-80-80-88-92-96 lykkjur. Byrjið umferð strax á undan 1. prjónamerki (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið mynsturteikningu A.1 og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 3-6-7-7-5-6 sinnum (meðtalin útaukning í stuttu umferðum) = 84-112-120-128-116-128 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út alls 12-10-10-12-16-16 sinnum á fram- og bakstykki (6-5-5-6-8-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 15-16-17-19-21-22 sinnum á fram- og bakstykki og 9-11-12-13-13-14 sinnum á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 156-172-180-200-212-224 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm mitt að framan – mælt eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (tilheyrir bakstykki), setjið næstu 30-34-36-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 48-52-54-60-66-70 lykkjur (framstykki), setjið næstu 30-34-36-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 47-51-53-59-65-69 lykkjur (afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1 þar til prjónaðar hafa verið alls 7 mynstureiningar með A.1 frá byrjun á stykki, prjónið síðan sléttprjón. Prjónið þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-24-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 128-140-148-164-180-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-34-36-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-40-44-48-48-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með mynstur A.1 þar til prjónaðar hafa verið 7 mynstureiningar frá byrjun á stykki, prjónið síðan sléttprjón. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-5-4-3-3½-2½ cm millibili alls 5-6-7-9-8-10 sinnum = 26-28-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-34-33-34-33-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-36-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 43-41-40-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Dina Pinto wrote:
Boa noite. Estou a tricotar este modelo, tamanho M. Após terminar o decote tenho 80 malhas como indicado. No encaixe, na primeira explicação, se aumentar o raglan 6 vezes, fico com um total de 128 malhas e não as 112 indicadas, isto porque em cada carreira em que se aumenta o raglan, aumentam-se 8 malhas, está correto? Ou os aumentos do raglan não são 8 em cada carreira? Obrigada
17.01.2023 - 22:54DROPS Design answered:
Bom dia, Os aumentos passam a ser diferentes depois do decote, quando começa o encaixe: Continuar A.1 mas, agora, uma em cada 2 vezes, aumentar apenas para as costas/a frente (aumenta-se 4 malhas) ou seja: aumentar a cada 2 carreiras para as costas/a frente e a cada 4 carreiras para as mangas. Aumentar desta maneira 12-10-10-12-16-16 vezes ao todo para as costas/a frente (6-5-5-6-8-8 vezes para as mangas). Bons tricôs!
14.02.2023 - 10:22Rita wrote:
Olá! Parabéns pelos modelos e pelos vídeos tão úteis. Mas tenho uma dúvida. Já tricotei as carreiras encurtadas, pelo que algures entre os marcadores 2 e 3 não há nenhuma carreira de meia. Tudo ok até aqui. A próxima carreira é a primeira de A1, em canelado. Fica mal logo a seguir à gola e não é o que está na foto. Se tricoto mais carreiras de meia não sigo o padrão nas costas. O que estou a fazer errado? Obrigada!
20.10.2022 - 20:14DROPS Design answered:
Bom dia, As carreiras encurtadas tricotam-se em ponto meia (ou seja, em meia pelo direito e em liga pelo avesso). No entanto, se quiser, pode tricotar 2 voltas em meia antes de começar A.1 para ficar com mais espaço entre a gola e o diagrama A..1. Bons tricôs!
26.10.2022 - 10:08ULLA OJALAHTI wrote:
No thanks
04.08.2022 - 18:27ULLA OJALAHTI wrote:
Tylsä
04.08.2022 - 18:26