Diminution Pour Les Emmanchures skrifaði:
Pour le dos il est écrit " diminuer pour les emmanchures tous les rangs de double brides (D2) jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 48cm" La diminution D2 répétée sur de nombreux rangs entraîne la création d'un décalage en escalier, est ce normal ou devrais je faire une autre sorte de diminution plus diagonale ?
21.11.2023 - 11:17DROPS Design svaraði:
Bonjour, vous pouvez procéder soit comme dans les explications, et les "escaliers" seront ensuite compensés/cachés lors de la bordure des emmanchures, ou bien vous pouvez diminuer différemment si vous le préférez. Bon crochet!
21.11.2023 - 16:01
Nel skrifaði:
Bij de tekening van 1.A en 2.A is er telkens een pijl. Is dat op weer te geven dat je eerst een vaste haakt en dan een dubbel stokje. En als allerlaatste steek weer een 2X een dubbel stokje haakt?
14.08.2023 - 17:22DROPS Design svaraði:
Dag Nel,
Nee, de pijl geeft aan wat patroon A.1 of A.2 is. De toer die eronder staat is dus niet patroon A.1 of A.2; deze staat er alleen bij om te laten zien hoe je de steken in de vorige toer haakt.
20.08.2023 - 15:48
Helga Eitel skrifaði:
Das Bündchen kann ich nicht erkennen und es ist in der Anleitung nicht beschrieben. Wie wird das gehäkelt? Bedanke mich für eine Beschreibung.
18.03.2023 - 14:48DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, Bündchen wird wie in A.1 gehäkelt, dh: *1 Doppelstäbchen in die nächste Masche, 1 Relief-Doppelstäbchen in die nächste Masche*, von *-* wiederholen. In diesem Video zeigen wir, wie man solche Bündchen häkelt, aber im Video wird es Stäbchen gehäkelt, in dieses Modell will man Doppelstäbchen häkeln. Viel Spaß beim häkeln!
20.03.2023 - 08:21
Phil skrifaði:
Hi again, The pattern above says its alternating rows of double treble crochet and double crochet (treble crochets and single crochets in the US English version) rather than the repeat of a row of treble and then row of double crochets as you suggested in the previous answer. Could you confirm which one it is please? Thank you :)
29.09.2022 - 13:12DROPS Design svaraði:
Dear Phil, yes correct, sorry, it should be treble crochets/single crochets (US) or double-treble crochets / double crochets (UK) . Happy crocheting!
29.09.2022 - 13:41
Phil skrifaði:
Are the instructions for the gauge swatch definitely correct? 11 rows makes it far too long and rectangular. 10cm is about 8.5-9 rows on my swatch (which is 10cm wide). Would just like to make sure I’m not totally off before starting the vest!
28.09.2022 - 22:05DROPS Design svaraði:
Dear Phil, make sure you work alternately (1 row with treble crochets, 1 row with double crochets), repeat from (to) to get the structured pattern; you should then get 11 rows with that pattern = 10 cm in height. Try to make longer stitches in height if yours are too tight. Happy crocheting!
29.09.2022 - 08:43
Kirsten Jensen Lihme skrifaði:
Hæklet vest med rund hals
06.08.2022 - 02:58
Evening Lakeside Vest#eveninglakesidevest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Sky. Stykkið er heklað neðan frá og upp með áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum byrja með 4 loftlykkjum, þessar 4 loftlykkjur koma sem viðbót við tvíbrugðna stuðla sem eru heklaðir og teljast ekki með í lykkjufjölda. Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur sem viðbót við fastalykkjur sem eru heklaðar og teljast ekki með í lykkjufjölda Í kanti í kringum handveg og hálsmál (2. umferð) er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðnum stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA-1: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál aftan í hnakka): Fækkið alltaf lykkjum í umferð með tvíbrugðnum stuðlum! Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á um með 1 keðjulykkju. Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir fjölda lykkja sem fækka á um. ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál að framan): Fækkið alltaf lykkjum í umferð með tvíbrugðnum stuðlum! Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hvorum tvíbrugðnu stuðlunum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (2 tvíbrugðnir stuðlar færri). FÆKKIÐ UM 1 TVÍBRUGÐINN STUÐUL ÞANNIG: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðan síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 tvíbrugðinn stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum báða handvegi og í kringum hálsmál. BAKSTYKKI: Sjá LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 87-95-103-111-123-133 loftlykkjur (meðtaldar 4 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4 með DROPS Sky. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 83-91-99-107-119-129 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hvern tvöfaldan stuðul frá fyrri umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Byrjið með 4 loftlykkjur eins og áður. Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins. Heklið A.1 fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT í lok síðustu umferðar með fastalykkjum er fækkað um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-1 = 82-90-98-106-118-128 lykkjur. Heklið síðan A.2 með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm, byrjar úrtaka fyrir handveg – stillið af að næsta umferð sé umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið þráðinn og festið. Nú er hekluð 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum yfir miðju 76-82-88-94-102-108 fastalykkjum (3-4-5-6-8-10 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg). Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig: Fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul 2-3-4-6-8-9 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 72-76-80-82-86-90 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm og næsta umferð er umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Heklið öxl yfir fyrstu 22-24-25-26-27-29 lykkjur, snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – sjá ÚRTAKA-2 = 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið. VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá réttu, þ.e.a.s. í umferð með tvíbrugðnum stuðlum, hoppið yfir fyrstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur á eftir hægri öxl og heklið tvíbrugðna stuðla yfir síðustu 22-24-25-26-27-29 lykkjur. Snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – munið eftir ÚRTAKA-2 = 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Klippið þráðinn og festið. FRAMSTYKKI: Heklið 87-95-103-111-123-133 loftlykkjur (meðtaldar 4 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4 með DROPS Sky. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju = 83-91-99-107-119-129 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hvern tvöfaldan stuðul frá fyrri umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Byrjið með 4 loftlykkjur eins og áður. Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins. Heklið A.1 fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað alls 2 sinnum á hæðina (framstykkið er styttra en bakstykkið) – JAFNFRAMT í lok síðustu umferðar með fastalykkjum er fækkað um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-1 = 82-90-98-106-118-128 lykkjur. Heklið síðan A.2 með til skiptis 1 umferð tvíbrugðnum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum. Þegar stykkið mælist ca 23-24-25-26-27-28 cm, byrjar úrtaka fyrir handveg – stillið af að næsta umferð sé umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið þráðinn og festið. Nú er hekluð 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum yfir miðju 76-82-88-94-102-108 fastalykkjum (3-4-5-6-8-10 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg). Fækkið nú lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig: Fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul 2-3-4-6-8-9 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 72-76-80-82-86-90 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm og næsta umferð er umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Heklið öxlina yfir fyrstu 26-28-29-30-32-34 lykkjur, snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum eins og útskýrt er að neðan (þegar fækkað er um 2 tvíbrugðna stuðla er heklað yfir síðustu 3 lykkjur að hálsmáli og þegar fækkað er um 1 tvíbrugðinn stuðul er heklað yfir síðustu 2 lykkjur við hálsmál): Fækkið um 2 tvíbrugðna stuðla við hálsmál 2 sinnum, síðan er fækkað um 1 tvíbrugðinn stuðul við hálsmál 1-1-1-1-2-2 sinnum – sjá ÚRTAKA-3. Eftir síðustu úrtöku eru 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá réttu, þ.e.a.s. í umferð með tvíbrugðnum stuðlum, hoppið yfir fyrstu 20-20-22-22-22-22 lykkjur á eftir vinstri öxl og heklið tvíbrugðna stuðla yfir síðustu 26-28-29-30-32-34 lykkjur. Snúið stykkinu og heklið fastalykkjur til baka. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig: Fækkið um 2 tvíbrugðna stuðla við hálsmál 2 sinnum, síðan er fækkað um 1 tvíbrugðinn stuðul við hálsmál 1-1-1-1-2-2 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-2. Eftir síðustu úrtöku eru 21-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant, en skiljið eftir ca 10 cm klauf neðst í hvorri hlið á framstykki (12 cm á bakstykki). KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Heklið kant í kringum báða handvegi. Byrjið neðst í botni á handvegi og heklið með heklunál 3,5 þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir tvíbrugðna stuðlaumferð *, heklið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 3 stuðla um hvern af fyrstu 3 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga fram að 6 miðju loftlykkjubogum yfir öxl, heklið 3 stuðla um hvern af næstu 6 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga þar til 3 loftlykkjubogar eru eftir neðst við handveg, heklið 3 stuðla um hvern af síðustu 3 loftlykkjubogum. Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn. KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL: Byrjið við annan axlasauminn og heklið með heklunál 3,5 þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju í fyrstu/næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 tvíbrugðna stuðlaumferð / ca 2 cm * heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eveninglakesidevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.