DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6314.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Cherished Moments

Prjónuð einföld / basic peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 231-6

#cherishedmomentscardigan

DROPS Design: Mynstur as-172
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-175-200-225-250-300 g litur 01, bleikur sandur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6314.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVEIR ÞRÆÐIR:
Þar sem stykkið er prjónað með 2 þráðum, prjónið með þráðinn bæði innan í og utan með sömu dokkunni.

SLÉTTPRJÓN:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Endurtakið þessar 2 umferðir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og er saumuð saman í lokin. Öll peysan er prjónuð með 2 þráðum.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-60-66-70-78 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk – sjá TVEIR ÞRÆÐIR.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið nú SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 31-33-35-38-40-44 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 28-28-28-29-30-31 cm er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri) og prjónið síðustu 5 lykkjur slétt.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-5-6-6-6 sinnum = 23-25-27-29-31-35 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 4-5-5-6-6-7 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-5-5-6-7 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið 1-2-1-2-1-1 lykkjur slétt = 20-22-24-26-28-32 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 31-33-35-38-40-44 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 28-28-28-29-30-31 cm er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir á hægri prjón, yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið þær lykkjur sem eftir eru slétt.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-5-6-6-6 sinnum = 23-25-27-29-31-35 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 4-5-5-6-6-7 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-5-5-6-7 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið 1-2-1-2-1-1 lykkjur slétt = 20-22-24-26-28-32 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 46-48-50-54-56-58 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 46-45-44-42-41-39 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma frá yst á öxl og inn að miðju, saumið með 1 þræði með (miðju 11-11-11-13-13-13 cm á bakstykki er hálsmál).
Setjið 1 prjónamerki í framstykkin og bakstykkið 19-20-21-22-23-24 cm frá axlasaumi og niður. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki – miðja á ermi á að passa við axlasauminn – saumið með 1 þræði.
Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt, með 1 þræði, saumið í ystu lykkjubogana.

Mynstur

Diagram for DROPS 231-6
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (119)

country flag Tremblay Michele skrifaði:

Bonjour J’ai fait ce modele sur la photo la couture de l’épaule arrive plus bas que l’épaule. Moi je n’arrive pas à comprendre comment le faire pourriez vous me l’expliquer svp Bonne journée

06.11.2026 - 17:38

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Tremblay, le dos et les devants doivent avoir exactement la même longueur, ainsi la couture doit être au milieu du haut de l'épaule. Vérifiez bien vos mesures, à 49-59 cm (cf. taille) de hauteur totale, vous tricotez 1 rang de diminutions sur l'endroit, 1 rang sur l'envers et vous rabattez sur l'endroit au rang suivant. Veillez aussi bien à ce que les manches soient bien réparties autour de l'emmanchure (le milieu de la manche doit être au niveau de la couture d'épaules). En cas de doute, n'hésitez pas à montrer votre ouvrage à votre magasin (même en photo par mail), ce sera ainsi plus facile pour eux de vous aider. Bonne continuation!

09.11.2026 - 07:10

country flag Katarzyna skrifaði:

Ile motków na zrobienie tego swetra z włóczki DROPS BRUSHED ALPACA SILK

25.10.2026 - 15:02

DROPS Design svaraði:

Witaj Katarzyna , wszystko zależy od wybranego rozmiaru. Dokładną ilość włóczki (w gramach) znajdziesz powyżej, w instrukcji. Jeden motek waży 25 g. Życzę przyjemnego dziergania!

25.10.2026 - 16:13

country flag Andrea skrifaði:

Ich habe soeben von dieser Wolle das Doppelte bestellt, weil 1 Knäuel ja nur 25 gr. hat. Also habe ich für meinen Fall 12 Knäuel (total 300 gr.) gekauft. Das ist doch bei doppelfädig gut so? Oder habe ich einen Knopf in der Leitung?

08.10.2026 - 15:02

DROPS Design svaraði:

Liebe Andrea, ja genau, hier strickt man mit 2 Fäden Brushed Alpaca Silk und mit einer Maschenprobe von 11 Maschen x 15 Reihen glattrechts = 10 x 10 cm. In XXL braucht man ja 300 g /25 g= 12 Knäuel Brushed Alpaca Silk, richtig auch. Viel Spaß beim Stricken!

09.10.2026 - 07:13

country flag Stevens Carmen skrifaði:

Hoeveel bollen garen heb je nodig voor dit patroon, medium size

23.09.2026 - 11:46

DROPS Design svaraði:

Dag Carmen,

Bovenaan bij de materialenlijst staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal geldt voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoort). 1 bol weegt meestal 50 gram, maar let erop dat dit per garensoort verschillend kan zijn. Dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat dan zou je 8 bollen nodig hebben als 1 bol 50 gram weegt.

24.09.2026 - 13:22

country flag Susann skrifaði:

Är kantmaska inräknad i antalet maskor, eller är det inga kantmaskor?

20.09.2026 - 17:59

DROPS Design svaraði:

Hei Susann. Ingen kantmaske, kanten skal rulle seg innover på denne jakken. mvh DROPS Design

21.09.2026 - 11:47

country flag Marjan skrifaði:

Hi, I'm trying to decide what type of bind off would be best/most professional/easiest for assembling with this project and yarn combo. Any advise? Thankyou so much

16.09.2026 - 20:28

DROPS Design svaraði:

Hi Marjan, If you click on "Videos" at the top of the pattern we have a binding-off technique shown there. Regards, Drops Team.

17.09.2026 - 07:21

country flag Sue skrifaði:

The sleeve length decreases as the sizes increase - is this correct please?

16.09.2026 - 20:01

DROPS Design svaraði:

Hi Sue, Yes the sleeve lengths are shorter in the larger sizes due to a wider shoulder width and a longer yoke. Regards, Drops Team.

17.09.2026 - 07:22

country flag Alexa skrifaði:

Ist die Garnmengenangabe für einen Faden oder für zweifädig? Also brauche ich die Menge, die dort steht, oder die doppelte Menge wegen des zweifädigen?

10.09.2026 - 19:32

DROPS Design svaraði:

Liebe Alexa, Sie brauchen nur die angegebene Menge für Ihre Größe und stricken dann 2fädig, die Menge sollen Sie nicht verdoppeln. Viel Spaß beim Stricken!

11.09.2026 - 16:43

country flag Heike Dietrich skrifaði:

Ich würde das Rückenteil gerne mit verkürzten Reihen stricken, damit es besser passt. Kann ich dazu für diese Jacke eine Anleitung erhalten?

01.09.2026 - 15:53

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Dietrich, für solche Modellen, die von unten nach oben gestrickt sind, haben wir keine Modellen mit verkürzten Reihen (wenn ich mich nicht irre), die verkürzten Reihen sind meistens für Modellen die von oben nach unten gestrickt werden - siehe Raglan, hier oder Rundpasse, hier. Viel Spaß beim Stricken!

02.09.2026 - 17:37

country flag Helle skrifaði:

Jeg skal bare være helt sikker: ærmerne strikkes også frem og tilbage på rundpind, ikk? Egentligt undrer det mig at de to ærmer ikke bare skal strikkes “rundt” på rundpinden. Man slipper for at sy sammen + der skal bare strikkes ret .

14.08.2026 - 23:58