Betty skrifaði:
Bonjour, j'ai besoin d'explications pour l'assemblage des 4 carrés, je ne comprends pas bien le schéma. Merci de m'aider
30.04.2022 - 17:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Betty, posez un carré à plat comme au milieu devant du schéma, placez un 2ème carré le long du côté gauche en haut de ce carré et assemblez ces 2 carrés entre eux. Placez un autre carré le long du côté droit en haut du 1er carré et assemblez les entre eux. Ils forment maintenant une sorte de grand V. Retournez l'ouvrage sur l'envers, repliez les carrés 2 et 3 en double et placez le dernier carré (milieu dos) au-dessus du 1er et assemblez-le aux carrés pliés en double. Bon assemblage!
02.05.2022 - 08:19
Daphne skrifaði:
Sweet memories
17.01.2022 - 14:20
Carefree Feeling#carefreefeelingponcho |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho með ferningum úr DROPS Air. Stærð S – XL.
DROPS 229-15 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. LITIR FERNINGUR (A.1 til A.3): UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: bleikur sandur UMFERÐ 3: blush UMFERÐ 4: hveiti UMFERÐ 5: beige UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: bleikur sandur UMFERÐ 8: natur LITIR KANTUR (A.4 til A.6): UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: hveiti UMFERÐ 3: beige UMFERÐ 4: natur UMFERÐ 5: bleikur sandur UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: blush UMFERÐ 8: bleikur sandur UMFERÐ 9: natur LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkju í umferð með lit sem er í umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á síðustu lykkjunni, skiptið yfir í næsta lit og heklið síðasta uppsláttinn og dragið þráðinn í gegn með nýja litnum, heklið síðan áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONSHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af 4 ferningum sem saumaðir eru saman eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Síðan er heklaður breiður kantur í kringum allt stykkið og lítinn kantur með gatamynstri í kringum hálsmál. Að lokum er hekluð snúra til að þræða í gegnum kant í kringum hálsmál. EINN FERNINGUR: Sjá LITIR FERNINGUR í útskýringu að ofan. Byrjið með heklunál og litinn natur í DROPS Air. Heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Sjá LITASKIPTI og heklið mynsturteikningu A.1 (hringur). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið áfram þannig: Heklið A.2 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.3 alls 4 sinnum hringinn. Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina frá og festið. Heklið alls 4 ferninga. FRÁGANGUR: Leggið ferningana eins og útskýrt er í teikningu. ATH: Passið uppá að ferningur merktur með svartri stjörnu liggi þannig að lok umferðar snúi út að ytri kanti. Stjarnan merkir byrjun á kanti sem er heklaður í lokin. Saumið ferningana saman kant í kant þannig að saumurinn verði flatur. Klippið þræðina og festið. KANTUR AÐ NEÐAN: Lesið LITIR KANTUR í útskýringu að ofan. Byrjið í lykkju í A.2 á þeim ferningi sem er merktur með svartri stjörnu í teikningu. Heklið A.4 í þessa lykkju, heklið A.5 alls 3 sinnum, heklið A.6 í hornið/oddinn á poncho, heklið A.5 fram að næsta horni á poncho – ATH: Í hvern saum á milli 2 ferninga er hekluð 1 loftlykkja, 2 stuðlar um hornbogann á öðrum ferningnum, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um hornbogann á hinum ferningnum. Haldið svona áfram hringinn á poncho. S/M: Endið kantinn eftir 4. umferð í A.4 til A.6. Klippið þræðina og festið. M/L: Heklið A.4 til A.6 til loka. Klippið þræðina og festið. L/XL: Heklið A.4 til A.6 til loka, en stillið af síðustu umferð að lykkjufjölda, þannig að fjöldi stuðla á milli 2 horna/odda á poncho sé deilanlegur með 6. Heklið síðan umferð 1 til 4 í A.4 til A.6 einu sinni til viðbótar. Þegar A.4 til A.6 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL: Byrjið neðst í hálsi á poncho (mitt að aftan), heklið 1 fastalykkju með litnum natur, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið þráðinn og festið. SNÚRA: Heklið loftlykkjuröð með litnum natur sem mælist ca 75 til 85 cm (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 1). Heklið 1 fastalykkju í 9. loftlykkju frá heklunálinni, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram allri loftlykkjuröðinni. Klippið þráðinn og festið. Byrjið neðst í hálsmáli mitt að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í kringum hálsmál og dragið snúruna út neðst í hálsmáli mitt að framan. Hnýtið lykkju mitt að framan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carefreefeelingponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.