Haerle skrifaði:
Anleitung in deusch bitte
15.09.2024 - 08:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Haerle, um die Sprache zu wechseln klicken Sie auf dem dropdown Menu beim Drucker Symbol, so finden Sie diese Anleitung in deutsch - auch hier. Viel Spaß beim Stricken!
16.09.2024 - 08:34
Gitte skrifaði:
Hej Ang. udtagning: Strik 1 kantmaske retstrik, tag 2 masker ud i næste maske og (slå om) – læs UDTAGNINGSTIPS-1, (slå om) og tag 1 maske løs af pinden, der står (slå om) 2 gange, hvordan gør jeg, hvis jeg kun tager ud hver 4. pind kommer der ikke længde på sidestykkerne, håber I kan hjælpe
29.07.2024 - 09:32DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, hvilken pind er det du spørger om?
02.08.2024 - 09:18
Mette Knudsen skrifaði:
Jeres opskrift er meget svære at forstå det er som om der er fejl hver gang man skal bruge en opskrift. Selv garvede strikker og forhandler af jeres garn er ingen hjælp.
27.07.2024 - 15:30
Elin skrifaði:
Hej, Jag får tyvärr inte mönstret att gå ihop. Har 10 maskor (med omslag) efter första varvet och 17 maskor (med omslag) efter andra varvet. Det stämmer väl inte?
11.07.2023 - 09:36
Little Peanut#littlepeanutbib |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni. Stærð 1 – 18 mánaða.
DROPS Baby 42-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KLUKKUPRJÓN : UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman * , endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Prjónið 3 lykkjur í lykkju og uppslátt með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 3 lykkjur (2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (frá röngu) eru útauknar lykkjur prjónaðar í klukkuprjónsmynstri, en lykkjur í útaukningu eru prjónaðar án uppsláttar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (frá röngu) eru útauknar lykkjur prjónaðar í klukkuprjónsmynstri, en lykkjur í útaukningu eru prjónaðar án uppsláttar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SMEKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og aukið er út í klukkuprjónslykkjur í hvorri hlið og í miðju á stykki. SMEKKUR: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. UMFERÐ 1 (frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Setjið 3 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja): 1. prjónamerki í 2. lykkju í umferð, 2. prjónamerki í 4. lykkju í umferð og 3. prjónamerki í 6. lykkju í umferð. UMFERÐ 2 (frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 4 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 15 lykkjur í umferð. Eftir útaukningu eru prjónamerkin færð til, 1. prjónamerki er sett í fyrstu klukkuprjónslykkju í umferð (á eftir kantlykkju), 2. prjónamerki er sett í miðjulykkju í umferð (miðjulykkjan af 5 lykkjum sem prjónaðar voru í 1 lykkju) og 3. prjónamerkið er sett í síðustu klukkuprjónslykkju í umferð (á undan kantlykkju). Í næstu umferð (frá röngu) er prjónað KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, en lykkjur í útaukningu eru prjónaðar án þess að prjóna þær saman með uppslætti. Haldið áfram í klukkuprjóni og með útaukningu, aukið er út í 4. hverri umferð í hliðum (prjónamerki 1 og 3) og í 8. hverri umferð í miðju (prjónamerki 2). Færið prjónamerkið á eftir hverja útaukningu, þannig að alltaf er aukið út í miðjulykkju og í lykkjur að kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar aukið hefur veri út 4-5 sinnum í miðjulykkju og 8-10 sinnum í lykkju innan við kantlykkju í hvorri hlið eru 55-67 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 6-8 cm. Nú heldur útaukning áfram í hvorri hlið og í miðjulykkju eins og áður, jafnframt er prjónað mynstur – frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, klukkuprjónslykkja eins og áður yfir næstu 2 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 24-30 lykkjur, prjónið miðjulykkju eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 24-30 lykkjur, klukkuprjón eins og áður yfir næstu 2 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Stykkið mælist ca 10-12 cm. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja. Festið tölu í annan endann á smekknum (tölunni er hneppt á milli kantlykkju og fyrstu lykkju í klukkuprjóni í hinum endanum). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlepeanutbib eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.