Water Ballet#waterballettop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður vafningstoppur / toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu með uppslætti): Öll útaukning er gerð frá réttu! Hægra framstykki: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Fitjið upp 17-17-19-19-21-23 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, geymið stykkið. Prjónið vinstri öxl. Vinstri öxl: Fitjið upp 17-17-19-19-21-23 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið báðar axlirnar saman þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjur á vinstri öxl, fitjið upp 32-34-34-36-36-36 lykkjur á prjóninn (= hálsmál), prjónið inn lykkjur frá hægri öxl á sama prjón = 66-68-72-74-78-82 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, prjónið garðaprjón yfir miðju 38-40-40-42-42-42 lykkjur og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju lykkjur í umferð, prjónið sléttprjón og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-11-12-10-9-8 cm frá uppfitjunarkanti á öxlum, byrjar útaukning fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-12-14-17 sinnum í hvorri hlið. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 4-6-7-8-10-11 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 86-94-102-114-126-138 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón og garðaprjón yfir ystu 7-9-10-11-13-14 lykkjur í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, prjónið áfram með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm = 82-90-98-110-122-134 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá öxl, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 17-17-19-19-21-23 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-7-6-5-5-5 cm, byrjar útaukning með uppslætti – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð til loka, jafnframt þegar stykkið mælist 11-11-12-10-9-8 cm, byrjar útaukning fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-12-14-17 sinnum. Í lok næstu umferðar frá röngu, fitjið upp 4-6-7-8-10-11 lykkjur fyrir handveg. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 7-9-10-11-13-14 lykkjur að hlið og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 7-9-10-11-13-14 lykkjur, prjónið áfram með 1 kantlykkju garðaprjón að hlið, 3 lykkjur garðaprjón við miðju að framan (á uppslætti) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm. Þegar stykkið mælist ca 41-43-45-47-49-51 cm eru ca 71-78-87-96-105-113 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af – munið eftir AFFELLING. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 17-17-19-19-21-23 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-7-6-5-5-5 cm, byrjar útaukning með uppslætti – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð til loka, jafnframt þegar stykkið mælist 11-11-12-10-9-8 cm, byrjar útaukning fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-12-14-17 sinnum. Í lok næstu umferðar frá réttu, fitjið upp 4-6-7-8-10-11 lykkjur fyrir handveg. Prjónið nú garðaprjón yfir ystu 7-9-10-11-13-14 lykkjur að hlið og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 7-9-10-11-13-14 lykkjur, prjónið áfram með 1 kantlykkju garðaprjón að hlið, 3 lykkjur garðaprjón við miðju að framan (á uppslætti) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm. Þegar stykkið mælist ca 41-43-45-47-49-51 cm eru ca 71-78-87-96-105-113 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af – munið eftir AFFELLING. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við uppfitjunarkanta. Saumið hægri hliðarsaum frá handveg og niður. Saumið vinstri hliðarsaum frá handveg og niður, en skiljið eftir smá op ca 1 cm ca 5 cm frá neðri kanti. Þetta op er notað til að þræða snúruna á hægra framstykki í gegn. SNÚRA: Prjónið upp 3 lykkjur meðfram kanti mitt framan á 4 umferðum garðaprjón sem prjónaðar voru neðst á hægra framstykki með hringprjón 3,5 og Muskat. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 3 lykkjur í 74 til 90 cm. Fellið af. Prjónið upp 3 lykkjur meðfram kanti mitt framan á 4 umferðum garðaprjón sem prjónaðar voru neðst á vinstra framstykki með hringprjón 3,5 og Muskat. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 3 lykkjur í 140 cm til 160 cm. Fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterballettop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.