DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Mermaid Magic Jacket

Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með A-formi, sólfjaðramynstri og vængjaermum. Stærð XS/S - XXXL.

DROPS 210-8
DROPS Design: Mynstur sk-069
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 15, ljós mynta.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
1 mynstureining A.1a á að mælast 3 cm á breidd.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.
DROPS TRÉTALA, Kókoshneta NR 515: 5 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININAR UM LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/tvöföldum stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul í umferð.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul í umferð.
Þegar heklað er í hring (með snúningi):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.

LEIÐBEININGAR (á við um þegar heklað er í kringum ermar):
Til að áferðin verði alveg eins og þegar heklað er fram og til baka, snúið stykkinu í hvert skipti sem heklað er. Þ.e.a.s. önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu þannig:
Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju/4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki.
Haldið svona áfram fram og til baka, til skipist ein umferð frá réttu og ein umferð frá röngu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 stuðlar eru eftir í umferð þannig: Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hvern og einn af þeim 2 stuðlum sem eftir eru. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um lofltykkjuna.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í næstu umferð frá réttu þar öll útaukning fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð. Fellið síðan af fyrir næstu 4 hnappagötum með ca 7-7-7-8-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkin eru hekluð hvert fyrir sig, fram og til baka niður að handveg. Síðan eru stykkin hekluð saman og fram- og bakstykki er síðan heklað fram og til baka.
Ermar eru heklaðar ofan frá og niður, fyrst fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er heklað áfram hringinn, jafnframt þar sem stykkinu er snúið við í hverri umferð til að áferðin verði eins yfir allt stykkið.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjur (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjurnar. Þegar fyrsta umferðin hefur verið hekluð, klippið þráðinn frá. Geymið stykkið.
Hægri öxl:
Heklið 19-25-25-25-25-31 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjurnar (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjurnar.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið næstu umferð í mynsturteikningu yfir hægri öxl. Í lok umferðar eru heklaðar 29-29-35-35-35-35 lausar loftlykkjur (= háls), haldið síðan áfram yfir vinstri öxl frá röngu í mynstri eins og áður. Hægri og vinstri öxl hafa nú verið heklaðar saman og það eru 29-29-35-35-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmáli mitt á stykki.
Snúið og heklið næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið mynstur eins og áður fram að loftlykkjum fyrir hálsmáli, síðan er heklað frá umferð með ör í A.1a yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli (= 5-5-6-6-6-6 fjaðrir), haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Nú eru 11-13-14-14-14-16 mynstureiningar með sólfjöðrum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum. Stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm frá öxl. Nú er heklað mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð XS/S, M, L og XL:
Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2b yfir A.1b. Þegar heklað hefur verið til og með næst síðustu umferð í A.2a og A.2b (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjum í næst síðustu umferð í A.2a) hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 1 nýrri sólfjöður í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 18-18-20-20 cm frá öxl (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verð gerður til loka á hæðina).

Stærð XXL og XXXL:
Nú er aukið út fyrir handveg í hvorri hlið á stykki með því að hekla A.2a yfir A.1a og A.2b yfir A.1b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð eftir ör þar sem heklað er upp að næst síðustu umferð í mynsturteikningu (umferðin endar með síðustu 2 loftlykkjur í næst síðustu umferð í A.2a). Nú hafa verið auknar út nægilega margar lykkjur fyrir 2 nýjum sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki. Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 23-23 frá öxl (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verið heklaður til loka á hæðina).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 7 loftlykkjur, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá hekunálinni (= 2 stuðlar) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum (= 5 stuðlar). Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist ca 9-9-10-10-10-10 cm. Heklið 19-25-25-25-25-31 lausar loftlykkjur í lok umferðar.
Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjur (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir næstu 7 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern af 5 stuðlum fyrir kant að framan.
Haldið áfram fram og til baka með sólfjaðramynstri og 5 stuðlum fyrir kant að framan, jafnframt er aukið út fyrir V-hálsmáli og handveg þannig:
V-hálsmál:
Þegar heklaðar hafa verið 4-4-6-6-6-8 umferðir með sólfjöðrum er aukið út í næstu umferð frá réttu þannig: Heklið frá umferð með ör í A.2b yfir sólfjöðrum á undan kanti að framan. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð eftir ör þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 3 nýjar sólfjaðrir innan við kant að framan. Ef kanturinn að framan verður aðeins of stífur á hæðina þegar aukið er út fyrir V-hálsmáli, er hægt að hekla tvíbrugðna stuðla í stað stuðla í ca annarri hverri umferð. Ef útaukningin fyrir V-hálsmáli er ekki lokið þegar útaukning fyrir handveg er lokið, heldur útaukningin áfram þegar fram- og bakstykki er heklað.
Handvegur:
Þegar heklaðar hafa verið 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum (stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm frá öxl), aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 1-1-1-1-2-2 nýjar sólfjaðrir í hlið). Síðasta umferðin sem er hekluð, heklið frá röngu og endið með 2 loftlykkjum eins og útskýrt er í næst síðustu umferð í A.2a.
Klippið frá. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 18-18-20-20-23-23 cm frá öxl og niður (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verið gerður til loka á hæðina).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 7 loftlykkjur, með heklunál 4,5 með Sky. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá hekunálinni (= 2 stuðlar) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum (= 5 stuðlar). Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist ca 9-9-10-10-10-10 cm. Heklið 19-25-25-25-25-31 lausar loftlykkjur í lok umferðar. Klippið þráðinn frá.
Heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 1 stuðul í hvern af 5 stuðlum fyrir kant að framan, A.1a yfir fyrstu 12-18-18-18-18-24 loftlykkjur (= 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar), A.1b yfir næstu 7 loftlykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með sólfjaðramynstri og 5 stuðlum fyrir kant að framan, jafnframt er aukið út fyrir V-hálsmáli og handveg þannig:
V-hálsmál:
Nú hafa verið heklaðar 4-4-6-6-6-8 umferðir með sólfjöðrum, heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið frá umferð með ör í A.2a yfir sólfjaðrir á eftir kanti að framan. Þegar mynstureining hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð á eftir með ör þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 3 nýjar sólfjaðrir innan við kant að framan. Ef kantur að framan verður aðeins stífur á hæðina þegar aukið er út fyrir V-hálsmáli, er hægt að hekla tvíbrugðna stuðla í stað stuðla í ca annarri hverri umferð. Ef útaukning fyrir V- hálsmáli er ekki lokið þegar útaukning fyrir handveg er lokið, heldur útaukning áfram þegar fram- og bakstykki er heklað.
Handvegur:
Þegar heklaðar hafa verið 10-10-12-12-10-10 umferðir með sólfjöðrum (stykkið mælist ca 13-13-15-15-13-13 cm frá öxl), aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að hekla 1-1-1-1-2-2 nýjar sólfjaðrir í hlið). Síðasta umferðin sem er hekluð, heklið frá röngu.
Stykkið mælist ca 18-18-20-20-23-23 cm frá öxl og niður (nú er eftir 1 umferð þar til handvegur hefur verið gerður til loka á hæðina).
Klippið ekki frá, en heklið stykkin saman þannig:

FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI HEKLUÐ SAMAN:
Nú eru hekluð saman framstykki og bakstykki þannig:
Heklið eins og áður yfir lykkjur á vinstra framstykki (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram þar til auknar hafa verið út 3 sólfjaðrir innan við kant að framan), heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermum), heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2a (= fyrstu 2 sólfjaðrirnar á bakstykki), haldið áfram með sólfjaðrir yfir bakstykki þar til 2 sólfjaðrir eru eftir, heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2b (= síðustu 2 sólfjaðrirnar á bakstykki), heklið 5-5-5-17-17-17 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermum), heklið eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.2a (= þær 2 fyrstu sólfjaðrirnar á hægra framstykki), haldið áfram eins og áður yfir lykkjur á hægra framstykki (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram þar til auknar hafa verið út 3 sólfjaðrir innan við kant að framan).
Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið svona áfram fram og til baka með mynstri og heklið 1-1-1-3-3-3 sólfjaðrir eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.1a yfir loftlykkjur í hlið undir ermi. Þegar allar útaukningar fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 29-33-34-38-42-46 mynstureiningar með sólfjöðrum í umferð. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 12 cm, heklið eins og útskýrt er í umferð með A.3. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist 32-35-35-37-36-36 cm. Heklið síðan eins og útskýrt er í síðustu umferð með A.3 og heklið tvíbrugðna stuðla í kanti að framan í hvorri hlið við miðju að framan í stað stuðla. Þegar stykkið mælist 36-39-39-41-40-42 cm er peysan tilbúin. Stykkið mælist alls 55-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Heklið 55-43-49-37-37-37 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig:
Heklið A.1a yfir fyrstu 48-36-42-30-30-30 loftlykkjur (= 8-6-7-5-5-5 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir síðustu 7 loftlykkjur, heklið 2 loftlykkjur í lok umferðar (= útaukning í hlið eins og útskýrt er í lok umferðar með ör A.2b). Snúið og heklið sólfjaðrir fram og til baka, jafnframt er aukið út með sólfjöðrum í hvorri hlið á stykki eins og útskýrt er í A.2a og A.2b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið jafnvel mynstur frá umferð eftir umferð með ör. Þegar aukið hefur verið út um 1-2-2-2-3-3 sólfjaðrir í hvorri hlið eru 11-11-12-10-12-12 sólfjaðrir í umferð og stykkið mælist ca 6-11-11-11-16-16 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2a og A.2b.
Í stærð XS/S er heklað áfram með sólfjöðrum án útaukningar í hliðum þar til stykkið mælist 9 cm (= ca 2 umferðir án útaukningar).
Heklið síðan í öllum stærðum þannig:
Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 5-5-5-17-17-17 loftlykkjur (= mitt undir ermi), heklið síðan 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð (= fyrsta tákn í A.2a). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið síðan hringinn – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR og sólfjaðramynstur er heklað eins og áður. Yfir nýjar loftlykkjur undir ermi eru heklaðar 1-1-1-3-3-3 nýjar sólfjaðrir alveg eins og í hlið undir ermi á fram- og bakstykki = 12-12-13-13-15-15 sólfjaðrir í umferð.
Þegar stykkið mælist ca 3 cm, fækkið lykkjum hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi þannig (miðju sólfjöður er ekki teiknuð í mynsturteikningu):
Heklið eins og útskýrt er í A.4a á eftir miðju sólfjöður (séð frá réttu) og eins og útskýrt er í A.4b á undan miðju sólfjöður (séð frá réttu). Endurtakið A.4a og A.4b þar til fækkað hefur verið um 2 sólfjaðrir hvoru megin við miðju sólfjöður undir ermi = 8-8-9-9-11-11 sólfjaðrir í umferð. Heklið áfram þar til ermin mælist 28-24-24-25-21-19 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi (nú eru eftir ca 17 cm að loka máli) – styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla.
Nú er hekluð umferð með ör í A.5 í 4 cm, heklið síðan næstu umferð í mynsturteikningu í 5 cm, heklið síðan síðustu umferð í mynsturteikningu þar til ermin mælist 45-41-41-42-38-36 cm frá nýjum loftlykkjum undir ermi. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Heklið axlasauma saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Leggið axlirnar saman þannig að réttan liggi að réttu og festið enda með 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin yst við öxl. Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin *, heklið frá *-* meðfram öxl. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina öxlina á sama hátt.
Heklið ermar fyrir fram- og bakstykki í gegnum bæði lögin frá röngu þannig:
Leggið stykkin saman þannig að réttan liggi að réttu og festið þráðinn með 1 fastalykkju ca mitt undir ermi, heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ½ -1 cm, 1 fastalykkja um bæði lögin *, heklið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina við fram- og bakstykki á sama hátt.
Saumið kanta að framan við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja – ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/tvöföldum stuðli.

symbols = 2 loftlykkjur – ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/tvöföldum stuðli.
symbols = 1 stuðull í lykkjuna
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols =
byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð. Umferðin með ör er talin sem 1. umferð í mynsturteikningu
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Hannah Pitt wrote:

I am just starting to increase for the sleeves - do I work all 6 rows of a2a & a2 b and then middle 2 again?

10.03.2024 - 23:04

DROPS Design answered:

Dear Hannah, it depends on your size. On size XS/S, M, L and XL you don't work 1 whole repeat of A.2a and A.2b in the armhole decreases. You work the next to last row of the charts and then cut the thread. On size XXL and XXXL you work 1 whole repeat of the charts and then repeat from the arrow the middle 2 rows. Work the next to last row as indicated and cut the thread. Happy crochetting!

11.03.2024 - 00:32

country flag Monna Kärki wrote:

Miten kuvio A2b ja A2a toimivat? Esim. Takakappale pitääkö kuviota a2a toistaa koko ajan vai vaan reunoissa? Ja miten kääntyminen tapahtuu tässä kuviossa? Teetkö vain uuden rivin kuviosta ja luet sitä sitten väärin päin?

18.08.2022 - 14:59

country flag Diane wrote:

Bonjour, non une fois que l\'avant-dernier rang de A.2a est fini j\'ai que 1,5 motif de plus. Il faudrait que je fasse le dernier rang de A.2a et A.2b pour compléter le 2e motif éventail supplémentaire. Est-ce grave si je fais ce dernier rang?

03.05.2022 - 15:22

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, l'avant dernier rang de A.2a est sur l'envers, vous crochetez comme indiqué et terminez par les 2 mailles en l'air = ces 2 mailles qui permettent l'augmentation du demi-motif qui vous manque (et dont vous aurez besoin au rang suivant pour faire un motif complet). Bon crochet!

03.05.2022 - 16:27

country flag Diane wrote:

Bonjour, Est-il possible qu'il manque 2 mailles en l'air à la fin du dernier rang du diagramme A.2b quand je le termine la première fois? Et après l'avoir une 2e fois, en arrêtant à l'avant-dernier rang des diagrammes A.2a et A.2b, j'ai 1,5 éventails de plus et non 2. Serais-je mieux de faire le dernier rang de ces 2 diagrammes pour compléter le 2e éventail supplémentaire?

02.05.2022 - 21:26

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, effectivement, ces 2 ml sont à faire à la fin de A.2b, elles ne sont pas dans le diagramme mais expliquées dans le texte. L'avant-dernier rang deA.2a se crochète sur l'endroit et se termine par les 2 mailles en l'air (augmentation du demi-motif qui vous manque probablement). Bon crochet!

03.05.2022 - 09:42

country flag Kia wrote:

Er lidt nybegynder så forstår måske ikke helt at læse denne del af opskriften: Str xl ryg :"Nu tages der ud til ærmegab i hver side af arbejdet ved at hækle A.2a over A.1a og A.2b over A.1b" Der er jo hæklet to stykker efter A1a og A2a. Betyder det at der også skal være udtagninger midt inde i arbejdet? Plus til ærmegreb eller menes det at der hækle efter A2b i den ene side og A2a i den modsatte side? Vh Kia

02.04.2021 - 18:23

DROPS Design answered:

Hej Kia, nej du hækler kun A.2a og A.2b over de yderste rapporter i hver side af arbejdet. God fornøjelse!

21.04.2021 - 15:53

country flag Gili Marx wrote:

Hello, At the sleeve: after closing the lope (12 fans at M size) and crocheing 3 cm, I croched the A.4a and A.4b twice and came to 8 fans at 15 cm from the starting of the sleeve loop. According to the skeching the decrease has to continue until 24 cm. What did I miss? Gili

28.01.2021 - 14:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marx, chart is just standard, you have to crochet until piece measures 24 cm from the new chains cast on mid under sleeve/arm (= 11 cm + 24 cm = 35 cm in total) and now crochet A.5 increasing for the bottom of sleeve. Happy crocheting!

28.01.2021 - 16:19

country flag גילי מרכס wrote:

Hello, Thankyou for the pattern. I didn't understand the front piece: I did 5 double crochet for 9 cm ( the piece is 2.5x9 cm) and it doesn't fit the back in the neck. I can't see the place in the pictures because of the hair. What did I miss? Gili

16.12.2020 - 07:42

DROPS Design answered:

Dear Gili, the first 9 cm over the 5 double crochets are worked for collar edge, this is supposed to be as long as the half of neckline on mid back - you will make a similar piece on left front piece and then sew together the foundation chains then sew these 9 cm x 2 pieces along neckline on back piece. Hapy crocheting!

16.12.2020 - 13:43

country flag Inger Alderblad wrote:

Har väntat 4 månader på detta mönster. Vore trevligt att få det snart i dessa coronatider då man har tid att virka.

28.04.2020 - 21:14

country flag Rey wrote:

A quand les explications merci

23.04.2020 - 13:47

country flag FRAUDAIN wrote:

J'adore ce modèle, j'aurai aimé le tricoter pendant le "Confinement".

17.03.2020 - 10:18