DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 400.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Flocking Gulls

Prjónuð peysa með stuttum ermum og laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 210-15
DROPS Design: Mynstur r-768
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-500 g litur 18, hvítur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 400.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur/sléttprjón.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-105-110-115-120-125 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-7-10-5-16-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 112-112-120-120-136-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir stroff í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið og prjónið mynstur þannig:
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, A.1 (= 10 lykkjur) yfir næstu 30 lykkjurnar, prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.1, 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið fyrstu 5 lykkjur í A.1, 0-0-1-1-3-4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð, en í lok umferðar er ekki sett prjónamerki. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu (þ.e.a.s. 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma) og það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM- aukið er út fyrir laskalínu og mynstur er prjónað þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-27-30-32-35 sinnum = 272-304-336-360-392-424 lykkjur. Aukið síðan út 1 sinni til viðbótar í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (en ekki er aukið út í hvorri hlið á ermum) = 276-308-340-364-396-428 lykkjur. JAFNFRAMT allt því sem lykkjur eru auknar út, er pláss fyrir fleiri mynstureiningar með gatamynstri að hverri laskalínu. Það eiga alltaf að vera 2-2-3-3-5-6 lykkjur slétt á milli útaukninga fyrir laskalínu og ysta uppsláttar við laskalínu í 5. og 15. umferð í A.1.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina, endurtakið mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar á hæðina. Prjónið síðan A.2 (= 10 lykkjur) yfir A.1 og prjónið eins mikið af gatamynstri og pláss er fyrir við hverja laskalínu allt eftir því sem lykkjur eru auknar út.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjón til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 15-18-20-22-24-26 cm.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Í stærð S, M og L skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki við prjónamerki og í stærð XL, XXL og XXXL eru prjónaðar 1-3-4 lykkjur frá hvorri hlið á ermum inn í framstykki og bakstykki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 79-87-95-102-112-121 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-67-75-79-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 79-87-95-103-115-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-67-75-79-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 0-0-0-1-3-4 lykkjur (= 79-87-95-103-115-125 lykkjur á bakstykki). Klippið frá.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 89-97-105-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út og fækka lykkjum í hliðum. Byrjið umferð við prjónamerki í annarri hliðinni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½ cm millibili alls 4 sinnum = 162-178-194-214-238-262 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 170-186-202-222-246-270 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu, aukið út 15-19-23-23-29-35 lykkjur jafnt yfir = 185-205-225-245-275-305 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 59-67-75-79-83-89 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 10-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 69-77-85-91-95-103 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 5-6-7-7-7-6 sinnum = 59-65-71-77-81-91 lykkjur. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka, prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 16-14-13-11-9-8 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-0-4-3-4-4 lykkjur jafnt yfir = 60-65-75-80-85-95 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Valerie wrote:

For this pattern the instructions are to cast 12 stitches on the body under the arm before knitting the body. However, there is no equivalent instruction when taking up the stitches set aside for joining to knit the sleeve in the round, which leaves 12 less 2 stitches under arm at the top of the body. Could you please explain what I should do to join the sleeve to the body.

18.11.2022 - 06:15

DROPS Design answered:

Dear Valerie, this lesson might help you understanding how to work a jumper top down and shows from picture 9) how to divide piece and work afterwards; you can also watch this video where you can see from time code approx. 07.:00 how piece will be divided. Hope it can help. Happy knitting!

18.11.2022 - 08:51

country flag Diana wrote:

Muchas gracias por las respuestas, voy a probar.

31.08.2022 - 21:25

country flag Diana wrote:

"Aumentar 1 punto a cada lado de 3 puntos derechos en cada transición entre la pieza del frente/pieza de la espalda y las mangas". pero en la respuesta anterior me decís "tiene que haber 2-2-3-3-5-6 puntos entre los aumentos del raglán y la lazada en la vuelta 5/ 15 ". En el resto de las vueltas no? Eso me confunde.

30.08.2022 - 03:14

DROPS Design answered:

Hola Diana, en todas las vueltas tiene que estar separado el dibujo de la línea del raglán. Decimos que la lazada se trabaja en las vueltas 5/15 y se tiene que notar bien que esté separada de la línea del raglán, por eso remarcamos que haya separación entre los aumentos y la lazada. En el resto de vueltas también tiene que estar separado el patrón, para que se mantenga alineado, pero no se nota o distingue tanto el resto de puntos de los puntos aumentados para el raglán.

30.08.2022 - 23:15

country flag Diana wrote:

Hola buenos días! A que se refieren cuando dicen "AL MISMO TIEMPO cuando se aumentan puntos, hay espacio para más repeticiones con patrón de calados en dirección de cada raglán. Siempre debe haber 2-2-3-3-5-6 puntos derechos entre los aumentos para el raglán y la lazada más externa en dirección del raglán en la 5ª y 15ª vuelta de A.1."? A partir de la vuelta 5 hay que ir agregando motivo independientemente de no tener 10 ó 5 puntos?

29.08.2022 - 16:14

DROPS Design answered:

Hola Diana, solo trabajas el motivo cuando puedas trabajarlo completo, es decir, cuando tengas 5 puntos puedes trabajar 1 repetición del diagrama (ten en cuenta que A.1 está representado como 2 repeticiones de 5 puntos). Recuerda que tiene que haber 2-2-3-3-5-6 puntos entre los aumentos del raglán y la lazada en la vuelta 5/ 15 de A.1. El dibujo no puede quedar pegado al raglán.

30.08.2022 - 00:54

country flag Rosario Elias Liñero wrote:

Hola Mira estoy muy confundida Para la talla mediana me pusiste así 1 der hebra, A 1 hebra mira aquí tengo dos hebras seguidas, 1 der MP 2 der hebra hebra 2 derechos aquí pasa lo mismo dos hebras seguidas que tengo que hacer? Muchas gracias por todo

26.04.2022 - 04:13

DROPS Design answered:

Hola Rosario, en la Fila 1, trabajas 1d, 1 heb, A.1 ( todos los puntos de derecho, no hay hebras). El resto de la fila trabajas según te indica el patrón. En la Fila 2, trabajas según el patrón y las hebras de la fila anterior se trabajan de derecho retorcido. En la Fila 3, trabajar 1 d, 1 hebra, 1d (el punto aumentado en la fila 1), A.1. Trabajas la fila 4 como en la fila 2. En la Fila 5, A.1 empieza con una hebra. Entonces, comienzas trabajando 1 derecho, 1 hebra, 2 derechos (puntos aumentados en la fila 1 y 3) y A.1 (comienza con una hebra, pero no hay hebras seguidas).

27.04.2022 - 21:26

country flag Rosario Elias Liñero wrote:

Hola Perdón otra vez por molestarte es que se me juntan las hebras y me salen 8 pts sin contar las hebras Discúlpame por favor por escribirte tanto y te doy las gracias Saludos

25.04.2022 - 05:23

DROPS Design answered:

Hola Rosario, puedes ver la respuesta debajo.

25.04.2022 - 21:31

country flag Rosario Elias Liñero wrote:

Hola Muchas gracias por tu explicación Te pido disculpas por volver a escribir, pero es que no entiendo Me pones que para la talla M teja así 1 der hebra y empezar con A1 lo que no entiendo es que se empieza con hebra esto es que son dos hebras seguidas? Aquí es donde me confundo Muchas gracias Saludos

25.04.2022 - 04:48

DROPS Design answered:

Hola Rosario, en la primera fila de A.1 se trabaja todo de derecho (recuerda que el diagrama se lee de abajo arriba y derecha a izquierda), por lo que no deberían coincidir las hebras. Hasta la fila 5 no hay lazadas de calados. Para que no coincidan las hebras, es recomendable que, como se aumenta en vueltas alternas, intentar no aumentar para el raglán en las filas impares, sino que en las pares, ya que en estas últimas no se está trabajando el dibujo de calados.

25.04.2022 - 21:31

country flag Rosario Elias Liñero wrote:

Hola\r\nTengo un problema con el canesú ya hice los 8 aumentos para la talla mediana tengo 112 puntos, perla talla dice 0 para hacer el diagrama A1 yo lo estoy tejiendo con las indicaciones de la talla L pero al final me sobran 2 puntos\r\nEsta bien o como teji lis pts sobre los 10 en talla mediana\r\nMuchas gracias\r\nUn saludo

24.04.2022 - 06:19

DROPS Design answered:

Hola Rosario, cuando pone que se teje 0 veces sobre 10 puntos, pasas a las siguientes instrucciones del patrón, es decir, en vez de trabajar A.1 completo, trabajas los primeros 5 puntos en A.1, y continúas. Para la talla M, la primera fila del canesú: *1 derecho, 1 hebra, A.1 (= 10 puntos) 3 veces, 5 puntos de A.1, 1 hebra, 1 derecho, MP, 2 derechos, 1 hebra, 5 puntos de A.1, 1 hebra, 2 derechos, MP, *, repetir de * a * 1 vez más. En total, trabajas 112 puntos + 8 aumentos.

24.04.2022 - 22:19

country flag Unni Mossestad wrote:

Hei, jeg lurte på diagrammet på bærestykket på denne toppen. Det står at at jeg skal strikke de 5 første maskene i diagram A.1 når diagrammet viser at begynner med 4 masker? håper dere forstår spørsmålet mitt og at dere kan forklare det nærmere for meg. Vennlig hilsen Unni G. Mossestad.

12.05.2021 - 21:26

DROPS Design answered:

Hej Unni, jeg kan ikke finde det du beskriver i opskriften. Hvis du strikker den største størrelse strikker du således: 1r, 1oms, 4 ret, A.1 (10m)x3, 5 masker fra A.1, så 4 ret, 1 omslag, 1 ret, mærketråd osv....

14.05.2021 - 09:34

country flag Evelyn wrote:

Hello, for the raglan increase of 1 stitch on each side, do I knit 3 stitches first and then make 1 yarn over for the increase (after the marker) and 1 yo, knit 3 stitches before the marker?\r\nIf so, how do I knit row 5 of A1 since the increase is between the eyelets.\r\n\r\nThank you\r\n\r\nEvelyn

06.03.2021 - 09:23

DROPS Design answered:

Dear Evelyn, you should continue to increase for raglan as explained under row 1? in other words: either make 1 yarn over, knit 1, the marker thread is here, knit 2, make 1 yarn over or make 1 yarn over, knit 2, the marker thread is here, make 1 yarn over, so that there is 1 yarn over on each side of the 3 knitted stitches with a marker inbetween. Happy knitting!

08.03.2021 - 10:00