DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Wake the Wind Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og tilfærslum á lykkjum. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-7
DROPS Design: Mynstur z-882
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-250-300-350 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með áferðaprjóni (= A.3) og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 6 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 5,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í fyrstu umferð í kanti í hálsmáli):
XS: 3, 9, 15, 21, 27 og 33 cm
S: 4, 11, 17, 23, 29 og 35 cm
M: 4, 11, 17, 24, 30 og 37 cm
L: 3, 10, 17, 24, 31 og 38 cm
XL: 3, 10, 18, 25, 33 og 40 cm
XXL: 4, 12, 20, 27, 34 og 42 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg og stykkið skiptist í hægra og vinstra framstykki og bakstykki. Síðan er hvert stykki prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Að lokum er kantur í hálsi prjónaður fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 224-240-256-272-304-320 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur (= kantur að framan), * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með A.2 yfir síðustu 5 lykkjur (= kantur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm- munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið eina umferð frá réttu þar sem allar 2 lykkjur brugðið er fækkað til 1 lykkja brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (lykkjum er ekki fækkað yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) = 171-183-195-207-231-243 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Síðar í stykkinu á að prjóna áferðamynstur og tilfærslur á lykkjum í hliðum. En vegna tilfærslna á lykkjum í hliðum þá kemur stykkið til með að verða bogalaga niður í hliðum og upp að miðju að framan og að aftan. Til að koma í veg fyrir að stykkið beygist upp að miðju að aftan er hægt að prjóna stuttar umferðir þannig:
Byrjið frá réttu og prjónið A.1 (= kantur að framan), 2 lykkjur slétt, A.3 (= 3 lykkjur – ATH: Þær 2 lykkjur slétt í A.3 eiga að passa yfir 2 lykkjur slétt í stroffi) yfir næstu 78-84-90-96-108-114 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= á undan miðju lykkju í umferð = 1 lykkja garðaprjón).
Haldið áfram að prjóna A.3 til baka yfir 17-23-29-35-47-53 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið A.3 yfir 20-26-32-38-50-56 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið A.3 yfir 23-29-35-41-53-59 lykkjur. Haldið áfram svona fram og til baka með því að prjóna yfir 3 lykkjur fleiri en fyrri umferð í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónaðar hafa verið 20 stuttar umferðir.
Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Snúið, prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, A.2 (= kantur að framan). Snúið og prjónið 1 umferð til baka frá röngu með A.3 og A.1/A.2 eins og áður.
Nú er mynstrið prjónað þannig: A.1 (= kantur að framan), 2 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 9-12-15-18-24-27 lykkjur (= 3-4-5-6-8-9 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.4 yfir næstu 29 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), A.5 yfir næstu 29 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 21-27-33-39-51-57 lykkjur (= 7-9-11-13-17-19 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.4 yfir næstu 29 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), A.5 yfir næstu 29 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 9-12-15-18-24-27 lykkjur (= 3-4-5-6-8-9 mynstureiningar), A.2 (= kantur að framan).
Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þau merkja hliðar og það á að nota þau síðar í stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin á hæðina 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum). Prjónið síðan með sléttprjóni yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón yfir 29 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 159-171-183-195-219-231 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm mælt frá uppfitjunarkanti og meðfram prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. þar sem stykkið er lengst), fellið af 8-8-8-14-14-14 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 4-4-4-7-7-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Nú eru 67-73-79-79-91-97 lykkjur fyrir bakstykki og 38-41-44-44-50-53 lykkjur fyrir hvort framstykki. Prjónið síðan stykkin hvert fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 67-73-79-79-91-97 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með áferðamynstri (= A.3) eins og áður. Að handveg eru prjónaðar 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af miðju 33-33-33-39-39-39 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 16-19-22-19-25-28 lykkjur fyrir öxl.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður (mælt þar sem stykkið er lengst).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 38-41-44-44-50-53 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan (= A.1) og áferðamynstur eins og áður. Að handveg eru prjónaðar 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 8-9-10-10-11-12 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið þannig: Prjónið fyrstu 16-16-16-19-19-19 lykkjur (= 5 lykkjur kantur að framan + 11-11-11-14-14-14 lykkjur mynstur) og setjið þær á þráð fyrir hálsmáli, prjónið A.7 yfir næstu 13 lykkjur (= að hálsi), prjónið eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 16-19-22-19-25-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist cm 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður (mælt þar sem stykkið er lengst).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 38-41-44-44-50-53 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með áferðamynstri eins og áður og 5 kantlykkjur að framan (= A.2) eins og áður. Að handveg eru prjónaðar 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 8-9-10-10-11-12 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, prjónið þannig: Prjónið fyrstu 16-16-16-19-19-19 lykkjur (= 5 lykkjur kantur að framan + 11-11-11-14-14-14 lykkjur mynstur) og setjið þær á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðan út umferðina eins og áður. Nú er mynstrið prjónað frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, A.6 yfir síðustu 13 lykkjurnar (= að hálsi).
Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 16-19-22-19-25-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist cm 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður (mælt þar sem stykkið er lengst).

ERMI:
Fitjið upp 44-44-48-48-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-10-8-6-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 (jafnt yfir) = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 7-5-5-4-3½-3½ cm millibili alls 6-8-8-9-10-10 sinnum = 48-52-54-58-62-64 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-47-46-46-43-42 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið ermina áfram fram og til baka frá byrjun á umferð með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þetta er gert svo að það myndist op undir ermi sem er síðar saumað að lykkjum sem felldar voru af undir handveg á fram- og bakstykki. Þegar ermin mælist alls 50-50-49-50-47-46 cm, fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið hlið á opi á ermi að 4-4-4-7-7-7 lykkjum sem felldar voru af fyrir handveg hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan (fellið af fyrir síðasta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm og saumið tölur í kant að framan í lokin).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) og hringprjón 4,5 og prjónið upp 92 til 104 lykkjur í kringum kant í hálsmáli meðtaldar lykkjur af þræði (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2 + 10 lykkjur að kanti að framan). Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Prjónið kant í hálsmáli fram og til baka í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður og það er byrjað og endað með 2 lykkjum slétt innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Þegar kantur í hálsmáli mælist 8 cm, er skipt yfir á hringprjón 5,5. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Brjótið kantinn í hálsmáli niður þannig að hann liggi tvöfaldur og saumið kantinn niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.11.2020
Leiðrétting: Staðsetning á hnappagötum hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn.
Þegar stykkið er prjónað í hring, prjónið næstu umferð þannig: Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður slétt og seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
Þegar stykkið er prjónað fram og til baka, prjónið næstu umferð (= ranga) þannig: Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður snúin brugðið, sá seinni er prjónaður brugðið (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn.
Þegar stykkið er prjónað í hring, prjónið næstu umferð þannig: Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður snúinn slétt og seinni uppslátturinn er prjónaður slétt.
Þegar stykkið er prjónað fram og til baka, prjónið næstu umferð (= ranga) þannig: Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður brugðið, sá seinni er prjónaður snúinn brugðið (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)

symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Lia De Wind wrote:

Ik snap de lege velden van A4 en A5 niet. Moet ik de steken van de bovenste rij erbij optellen? Want dan zijn er veel meer dan 29 steken. Wel een prachtig patroon trouwens

19.01.2023 - 22:08

DROPS Design answered:

Dag Lia,

Nee, deze tel je er niet bij op. De eerstvolgende steek op je linker naald brei je in de eerstvolgende steek zoals aangegeven in het telpatroon. Het lege stuk sla je dus gewoon over, m.a.w. je zou het er tussen uit kunnen knippen en de hokjes aan elkaar plakken.

22.01.2023 - 19:10

country flag Tina Petersen wrote:

Til diagram forklaring A5. Lav 3 omslag mellem 2 masker. Der står at der kun er taget 2 masker ud - er det ikke 3 masker taget ud? Og hvordan skal det sidste omslag strikkes ? Der er kun anført hvordan de 2 første omslag skal strikkes.

13.05.2021 - 18:07

DROPS Design answered:

Hej Tina, det skal være 2 omslag og det er nu blevet rettet. Tak for info :)

14.05.2021 - 09:10

country flag Angèle wrote:

Quelle quantité de pelotes de laine est nécessaire pour la grandeur XL. Ma laine à le même échantillon suggéré. Merci!

02.01.2021 - 18:28

DROPS Design answered:

Bonjour Angéle. Il faut 6 pelotes DROPS ALPACA et 6 pelotes DROPS KID-SILK pour la grandeur XL. Bon tricot!

02.01.2021 - 19:45

country flag PG wrote:

Please demonstrate for the armholes: "knit 2 inside the 1 edge stitch in garter stitch".

16.10.2020 - 16:36

DROPS Design answered:

Dear PG, this means you work from RS: 1 edge st in garter st, knit 2, work as before until 3 sts remain, finish with knit 2, 1 edge st in garter st, from WS work: 1 edge st in garter st, purl 2, work as before until 3 sts remain, finish with purl 2, 1 edge st in garter st. Happy knitting!

19.10.2020 - 07:52

country flag Pia Tangen wrote:

Hei, når man skal begynne å strikke de første forkortede pinnene på bolen(strikker XS), midt bak, så står det at man skal strikke 9 masker etter merket for så å snu pinnen og strikke 17 tilbake, når man snur igjen da for å strikke 20 masker med A.3, skal den første masken i A.3(den vrange) strikkes først da? Da havner den over den første av de rette i vrangborden. Eller skal man strikke slik at alle vrange masker(sett fra rett) i A.3 havner over den vrange masken i raden under?

10.10.2020 - 22:49

DROPS Design answered:

Hej Pia, ja vrangmaskerne skal havne på en lige linje over hinanden som du kan se i diagrammet. God fornøjelse!

28.10.2020 - 13:38

country flag Kerstin wrote:

Beskrivningen säger 6 knappar och anger var knapphålen ska komma räknat från uppläggnningskanten: Sjätte knapphålet 39 cm från uppläggningskanten vilket jag har men då har jag ännu inte kommit upp till halskanten. Mina mått i övrigt stämmer med beskrivningen och knapphålet i halskanten kommer alltså att vara det 7:e . Det behövs alltså 7 st knappar.

09.10.2020 - 13:25

country flag PG wrote:

Thank you for the quick response. The instructions say to knit 20 short rows, but that is not what your response says. I am making size medium. Am I adding new stitches with each short row or creating new stitches in A.3? Please be specific: how many stitches will there be when the short rows are completed? Can you (or any readers) send a photo of the lower back of this sweater?

03.09.2020 - 14:25

DROPS Design answered:

Dear PG, sorry my mistake, I missed that part ... you continue working 3 sts more at the end of each row until you have worked a total of 20 short rows, then work next row over all sts on left needle (no more short rows here), turn and work A.3 with front band sts as before over all sts on next row. We do not have any photo from the back piece, but it's jsut a few rows worked over A.3 on mid back. Happy knitting!

03.09.2020 - 15:51

country flag PG wrote:

I am having trouble with the short rows in the Body, after the ribbing. Am I suppose to add 3 stitches (1 pattern of A.3) with each of the short rows or use the next 3 stitches on the needle? How many stitches are on the needle in total after the short rows? Can you send a photo of the back of the sweater?

03.09.2020 - 03:39

DROPS Design answered:

Dear PG, you should work 3 more sts in A.3 at the end of each row, ie you work first 9-12-15-18-24-27 sts in A.3 after marker, then turn now 17-23-29-35-47-53 in A.3, turn and work now these sts + 3 more sts = 20-26-32-38-50-56 sts in A.3, turn and work 3 more sts = 23-29-35-41-53-59 sts in A.3, turn and work 3 more sts in A.3 = 26-32-38-45-56-62 sts and so on until 5 sts remain (=A.2) at the end of the row, then turn and work all sts with A.2, A.3 to the end of row and finish with A.1. Happy knitting!

03.09.2020 - 09:09

country flag Laura wrote:

Hello, I have knitted many of your beautiful patterns over the years but with reference to Drops 212-7 pattern, I am having trouble understanding what the blank spaces, the gaps, in A.4 and A.5 mean, I can’t find an explanation, in A.4 for example what do I do after stitch 1 with the next 12 stitches (row 1). I am unfamiliar with the ‘gap’ when working within a specific number of stitches. Kind regards, Laura

29.04.2020 - 04:50

DROPS Design answered:

Dear Laura, you will increase (with 2 yarn overs) and decrease (with k3 tog) in A.4 and A.5, let's take A.4: you increase first after the first stitch (on 5th row) and then decrease after the next 13 sts. The new stitches increased on this row do not exist before row 6, that's why they are not drawn before row 6. Same for the decreases but reversed, the 2 sts decreased on row 5 are not there anymore on row 6, reason why they are not there anymore. Just read diagram row after row, if there weren't no space - you should always have 29 sts in diagram and increase/decrease on either side of the same 13 stitches. Hope this helps, happy knitting!

29.04.2020 - 09:14

country flag Mila wrote:

Hallo lieber Drops - Team! Wäre es möglich ein Bild vom Rücken zu veröffentlichen? Ich finde, es wäre sehr nützlich! Danke!

20.04.2020 - 10:40

DROPS Design answered:

Liebe Mila, wir haben leider kein Foto vom Rücken, wir können Ihnen aber sicher irgendwie helfen, gerne können Sie Ihre Frage hier stellen. Viel Spaß beim stricken!

20.04.2020 - 11:30