DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Seascape Wrap

Prjónað sjal úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni og gataumferðum.

DROPS 211-22
DROPS Design: Mynstur fa-450
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Mál: Hæð mælt fyrir miðju ca 32 cm. Lengd mælt meðfram efri hlið
ca 170 cm.

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 914, strönd
50 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 40 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AFFELLING – teygjanleg affelling:
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið inn vinstri prjóni í 2 lykkjurnar á hægri prjóni (frá vinstri til hægri) og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið síðan 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á hægri prjóni.
Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Affellingarkanturinn kemur til með að vera teygjanlegri þegar fellt er af með þessari aðferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.
Allt stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 38 lykkjur á hringprjón 4 með litnum strönd. Prjónið 1 umferð slétt.
Í næstu umferð eru gataumferðir prjónaðar þannig:
1. UMFERÐ (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið slétt í fremri og aftari lykkjubogann á sömu lykkju), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri) = 39 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur í fremri og aftari lykkjubogann á sömu lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum og uppslætti slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 41 lykkja.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið á sama hátt og umferð 3-4 alls 10 sinnum (= 40 lykkjur fleiri) = 81 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið gataumferð þannig:
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 25 sinnum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 27 lykkjur fleiri) = 108 lykkjur.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 110 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn strönd.
Prjónið á sama hátt og umferð 3-4 alls 15 sinnum (= 60 lykkjur fleiri) = 170 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið gataumferð þannig:
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 55 sinnum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 57 lykkjur fleiri) = 227 lykkjur.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 229 lykkjur.

Prjónið nú rendur með 2 umferðir garðaprjón í litnum strönd og 2 umferðir garðaprjón í litnum natur yfir næstu umferðir þannig: * Skiptið yfir í litinn strönd og prjónið eins og umferð 3-4, skiptið yfir í litinn natur og prjónið eins og umferð 3-4 *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Skiptið yfir í litinn strönd og prjónið eins og umferð 3-4 einu sinni til viðbótar.
Umferð 3-4 hefur nú verið prjónuð alls 5 sinnum (= 20 lykkjur fleiri) = 249 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn natur.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur í fremri og aftari lykkjubogann á sömu lykkju) og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri) = 250 lykkjur.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri) = 251 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn strönd.
Prjónið á sama hátt og umferð 9 og 10 alls 4 sinnum (= 8 lykkjur fleiri) = 259 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið gataumferð þannig:
UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 21 sinnum, nú eru eftir 4 lykkjur. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 lykkjur slétt (= 43 lykkjur fleiri) = 302 lykkjur.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri) = 303 lykkjur.

Prjónið nú rendur með 2 umferðir garðaprjón í litnum strönd og 2 umferðir garðaprjón í litnum natur yfir næstu umferðir þannig: * Skiptið yfir í litinn strönd og prjónið eins og umferð 9-10, skiptið yfir í litinn natur og prjónið eins og umferð 9-10 *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum. Skiptið yfir í litinn strönd og prjónið eins og umferð 9-10 einu sinni til viðbótar.
Umferð 9-10 hefur nú verið prjónuð alls 15 sinnum (= 30 lykkjur fleiri) = 333 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið gataumferð þannig:
UMFERÐ 13 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 27 sinnum, nú eru eftir 3 lykkjur. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt (= 56 lykkjur fleiri) = 389 lykkjur.
UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri) = 390 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn strönd.
Prjónið á sama hátt og umferð 9-10 alls 10 sinnum (= 20 lykkjur fleiri) = 410 lykkjur.

Skiptið yfir í litinn natur:
Fellið af allar lykkjur – sjá AFFELLING í útskýringu að ofan. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2021
SJAL: Fitjið upp 38 lykkjur á hringprjón 4 með strönd. Prjónið 1 umferð slétt.Í næstu umferð eru gataumferðir prjónaðar þannig: 1. UMFERÐ (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið slétt í fremri og aftari lykkjubogann á sömu lykkju), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 39 lykkjur.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
1. UMFERÐ (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið slétt í fremri og aftari lykkjubogann á sömu lykkju), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri) = 39 lykkjur.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Heike wrote:

Zum Abketten besser schreiben: 2 M rechst stricken, *die linke Nadel in die beiden rechten Maschen schieben und diese zusammen stricken, eine Masche rechts*, von *-* wiederholen

27.01.2023 - 15:03

country flag Joke Van Den Berg-Rietveld wrote:

Kom niet uit naald 5 met 1ste kleurwisseling naar naturel. Als ik patroon uitteken kom ik op 107 steken in plaats van 108. Alvast bedankt antwoord.

22.10.2022 - 21:57

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Er zat een klein foutje in naald 5. Er stond: 2 steken recht in de eerste steek, 1 omslag, 2 recht samen. Deze laatste 2 steken recht samen klopt niet en moet zijn: 2 recht. He is nu aangepast.

30.10.2022 - 17:23

country flag Ilona wrote:

Guten Tag, nachdem ich die erste Masche benutzt habe, um sie zu verdoppeln, bleiben nur noch 37 übrig. Daraus kann ich 18mal Umschlag und 2zusammen stricken machen. Es bleibt 1 Masche übrig, die einfach rechts gestrickt werden muss, um auf Gesamt 39 zu kommen.

26.02.2022 - 17:45

DROPS Design answered:

Liebe Ilona, Sie sind ja recht, dann enden Sie die Reihe mit 1 Masche rechts; eine Korrektur erfolgt sicher bald. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

28.02.2022 - 09:31

country flag Randi Andersen wrote:

Hej Drops Vil gerne be om hjælp til mit sjal 😇 drops 211-22 Seascape Wrap Er nået til 259 masker. Har prøvet 11. Pind Det giver ingen mening for mig, der mangler masker når jeg når til enden. Kan ikke lave 21 gange totalt, tror det var 17 total. Jeg regnede og regnede, men nej, ku ikke komme videre. Så ja tak til hjælp. Mvh Randi Andersen

19.07.2021 - 14:42

DROPS Design answered:

11.PIND (= retsiden): De første 3 masker strikkes således: 2 masker i første maske, 2 masker ret sammen, slå om. / De næste 12 masker strikkes således: * 2 masker ret sammen, slå om, 2 masker ret sammen, slå om, 1 maske ret, slå om, 2 masker ret sammen, slå om, 2 masker ret sammen, slå om, 1 maske ret, slå om, 2 masker ret sammen, slå om *. / Disse 12 masker strikker du fra *-* ialt 21 gange (incl første gang). Nu har du 4 masker tilbage. Strik 2 masker ret sammen, slå om og 2 maske ret (Nu har du taget ialt = 43 masker taget ud) = 302 masker.

04.08.2021 - 12:04

country flag Édith Gravel wrote:

Ce modèle peut-il être agrandi? Si oui comment?\\r\\nCe modèle me plaît beaucoup mais j’aimerais qu’il soit un peu plus visible. Merci de votre aide.

10.06.2021 - 01:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gravel, nous avons différents types de tailles de châle avec cette forme, peut-être en trouverez-vous un qui vous inspirera? Retrouvez-les tous ici. Bon tricot!

10.06.2021 - 08:25

country flag Pauline wrote:

Je viens de terminer ce modèle, j'ai réussi, qq difficultés mais bien contente. Merci pour vos modèles très beaux et plusieurs sont gratuits.

21.01.2021 - 20:35

country flag Conny wrote:

Das ist ein super schönes einfaches Tuch, hab es bisher 2x gestrickt, einmal aus Sockenwolle und einmal aus etwas dickerer Wolle

09.01.2021 - 15:51

country flag Berrit wrote:

If the first row ends with a yarn over, how am I supposed to knit two new stitches out of this after turning??

20.06.2020 - 17:53

DROPS Design answered:

Hi Berrit, You work one stitch in the front and one stitch in the back of the yarn over. Happy knitting!

22.06.2020 - 07:42

country flag Mimi wrote:

Buongiorno, per cortesia è possibile quanti metri di filato è stato usato per questo scialle? Grazie mille e buona giornata

14.05.2020 - 13:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Mimi. Vengono consigliati 4 gomitoli di Fabel. Ogni gomitolo pesa 50 g e corrisponde a ca. 205 metri di filato. Sono 3 gomitoli di un colore (quindi 615 m) e 1 dell’altro colore. In tutto circa 820 m. Buon lavoro!

14.05.2020 - 15:44

country flag Gudrun wrote:

Obwohl das Garn Drops Fabel Küste farblich anders ausgefallen ist als abgebildet, Schwarz war überhaupt nicht vorhanden, ist es ein wunderschönes Tuch geworden.

11.04.2020 - 21:17