DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Peach Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með klukkuprjóns lykkjum á berustykki og ¾ löngum ermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-25
DROPS Design: Mynstur ai-267
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-200-250-250 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
75-100-100-125-125-125 g litur 20, bleikur sandur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS KÓKOSHNETU TALA, NR 515: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá röngu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð.
Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-8½-9-8-8½-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 43-45-47-53-55-57 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir).
Takið frá annan þráðinn með Air og prjónið afgang af stykki með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

Þegar kantur í hálsi mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 klukkuprjóns lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 59-62-65-74-77-80 lykkjur í umferð.
Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir klukkuprjóns lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, innan við 5 kantlykkjur að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16-17-18-21-22-23 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 klukkuprjóns lykkju, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju (A.2) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 75-79-83-95-99-103 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir klukkuprjóns lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Haldið áfram með mynstur eins og áður, en með A.4 yfir A.3.
Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-8 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 yfir 4 fyrstu lykkjurnar, prjónið A.5 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-16-17-20-21-22 mynstureiningar með 4 lykkjum), haldið áfram með A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 135-143-151-175-183-191 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 31-33-35-41-43-45 mynstureiningar með 4 lykkjum), haldið áfram með A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 14-15-17-19-20-22 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, haldið áfram með A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist ca 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 23-25-26-29-31-33 lykkjur í garðaprjóni og mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 27-27-29-35-35-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 35-39-41-47-51-53 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 27-27-29-35-35-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 23-25-26-29-31-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 93-101-109-117-125-135 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 26-28-30-32-34-37 lykkjur inn frá hvorri hlið. Nú eru 41-45-49-53-57-61 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu = 101-109-117-125-133-143 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 27-27-29-35-35-36 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkjur í hverja af 6-6-8-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 33-33-37-41-41-44 lykkjur.
Byrjið umferð mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist ca 28-26-25-22-21-19 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir affelling! Ermin mælist ca 31-29-28-25-24-22 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju – þessi lykkja er núna kölluð klukkuprjóns lykkja
symbols = prjónið 5 lykkjur í klukkuprjóns lykkjuna þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið sömu lykkjuna slétt án þess að lyfta henni af vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur færri)
symbols = byrjið hér
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag LILLIAN MARIT GJERDENE wrote:

Har holdt meg helt til oppskriften for str L men får ca et halvt nøste for lite. Noen pleier å sentrifugere på full styrke etter håndvask. Synspunkt?

23.05.2022 - 18:08

country flag Inger wrote:

Hej igen Nu såg jag hur maskan ska stickas ☺️

14.11.2021 - 21:29

country flag Inger wrote:

Hej! I mönster A.5 börjar det med en ⚫️ Som det inte finns någon förklaring för. Hur ska denna maska stickas?

14.11.2021 - 21:26

DROPS Design answered:

Hej Inger. Så fint att det löste sig. Mvh DROPS Design

15.11.2021 - 09:38

country flag Tina wrote:

Really great pattern and splendid result!!! I have made it twice in Natural and Wheat, both with natural Brushed alp. silk. It is really soft and light to wear, perfect for a chilly summer morning walking the dog. Thanks!

10.08.2021 - 20:20

country flag Linda wrote:

Buonasera, mi scuso per non aver inserito la taglia nel precedente commento 🙈 Vorrei lavorare una taglia S, grazie per aver risposto

30.04.2021 - 20:34

DROPS Design answered:

Buonasera Linda, per la taglia S le serviranno circa 400g di DROPS Wish. Provi e leggere qui le informazioni per la sostituzione del filato. Buon lavoro!

30.04.2021 - 20:56

country flag Linda wrote:

Posso sostituire il filato usato con 300 gr di Drops Wish (gruppo filati E) per questo modello?

29.04.2021 - 12:54

DROPS Design answered:

Buonasera Linda, che taglia vuole lavorare? Buon lavoro!

30.04.2021 - 20:32

country flag Marilena Merz wrote:

Tolle Jacke👍Modell zum verlieben, danke für die tolle Anleitung. Grüsse aus der Schweiz 🇨🇭 Marilena Merz

26.04.2021 - 13:16

country flag Laila wrote:

Hvis jeg ønsker at strikke den model i 10 Tåge mix, hvilken ekstra farve bør jeg vælge i det andet type garn? Tak

30.01.2021 - 01:00

DROPS Design answered:

Hei Laila. Fargevalg er ganske personlig, så det er best å sjekke ut fargene selv. Men kanskje du vil like lys lavende farge nr. 17 i DROPS Brushed Alpaca Silk? mvh DROPS design

01.02.2021 - 14:32

country flag Dody wrote:

Hello , i try to make this pattern but i could not understand the ( include 5 band stitches on each side ) to start the neck i choose to cast on 45 stitches. is the total will be 55 stitches ???? thank you

24.11.2020 - 19:47

DROPS Design answered:

Dear Dody, the front band sts are included in the total number of stitches to cast on, this means, in size M you cast on 45 sts = 35 sts + 5 front band sts on each side. Happy knitting!

25.11.2020 - 07:28

country flag Jax wrote:

Hi I would like to knit the Cardigan in drops air yellow can you suggest a good colour to go with from the brushed alpaca silk yarn?

01.10.2020 - 19:56

DROPS Design answered:

Dear Jax, if you want to knit the jacket from eh no 22 yellow color of Air, I would suggest to try to pair it with the np 19 curry színű Brushed Alpaca Silk yarn. I hope this helps. Happy Knitting!

02.10.2020 - 01:41